Baldvin er tengdafaðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og er þekktur fyrir að gantast á síðu sinni, að vera maður orðaleikjanna. Baldvin mælti með D-vítamíni en Dagur sagði að það gæti verið varhugavert.

Góður rómur er gerður að ábendingu Dags en þó voru ekki allir sem eru ánægðir með hans framlag. Magnús Rúnar Kjartansson er einn þeirra sem spyr: „Ætlar þú virkilega að bjóða þig fram sem mikinn reynslubolta í pólitík?? Kanntu ekki að SKAMMAST ÞÍN.“
Dagur svarar Magnúsi Rúnari snarlega og lætur hann ekki eiga neitt inni hjá sér: „Já, hvet alla kjósendur Sjálfstæðisflokksins til að strika yfir mig.“
Einhverjir vildu meina að þarna væri Dagur að rugla kjósendur Sjálfstæðisflokksins í ríminu og skrifaði Vísir þá sérstaka frétt þar sem áréttað var að þarna væri um að ræða grín.
Það er Sigurjón M. Egilsson starfsmaður Samstöðvarinnar sem birtir kæruna á Facebook-síðu sinni en þar má sjá að Lúðvík Lúðvíksson ritar undir.
Bréfið er stílað á Héraðssaksóknara, með vísan til skrifa Dags á síðu Baldvins vilji Lúðvík kæra.
Ummælin sem eftir Degi eru höfð voru birt á vefsíðunni Vísi 25. nóvember sl. og eru sett í gæsalappir af vefmiðlinum þannig að ég geri ráð fyrir að séu rétt eftir höfð:
Þá segir að Lúðvík telji að Dagur, sem er velmenntaður læknir og hafi áratugalanga reynslu af stjórnmálum hafi brotið gegn kosningalögum. Þau séu til þess fallin að geta afvegaleitt kjósendur. Þetta megi Degi vera fullljóst.
Dagur segir, í samtali við Vísi, ekki hafa þungar áhyggjur af þessu máli.
„Ég átti í áralangri baráttu og hef gert daglega tilraun til að vera fyndinn, með misjöfnum árangri. Eins og fjölskylda mín og samstarfsfólk getur vitnað um. Verst fannst mér þegar ég var að vinna með Jóni Gnarr og hann sagði út um annað munnvikið að við skyldum láta atvinnumönnum eftir grínið. En nú er ég kominn með það á pappír að ég sé fyndinn og ég mun deyja á þeirri hæð,“ segir Dagur og kímir.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig þetta gekk fyrir sig á Facebook-síðu Baldvins:

