Lífið

Sig­mundur taki stríðnina alla leið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Nanna er bjartsýn fyrir kvöldinu.
Nanna er bjartsýn fyrir kvöldinu. Vísir/Vilhelm

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir systir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins kíkti í settið til Sindra Sindrasonar í kosningasjónvarpi Stöðvar 2. Hún segir bróður sinn hafa verið brjálæðislega stríðinn í æsku og er bjartsýn á gengi flokksins í kvöld en Nanna skipar jafnframt 2. sætið í kraganum fyrir flokkinn.

„Ég er mjög bjartsýn. Búin að vera bjartsýn eftir því sem líður á daginn,“ segir Nanna hjá Sindra. Sindri hefur í kvöld fengið til sín aðstandendur leiðtoga stjórnmálaflokkanna. Þar bað Sindri Nönnu um að rifja upp eina stríðnissögu af Sigmundi.

„Já hann er mjög stríðinn. Ég veit ekki hvort margir vita það en við erum þrjú systkini á fjórum árum. Hann er elstur hann Sigmundur, þannig hann þurfti mjög fljótt að sjá um sig sjálfur en hann tekur til dæmis 1. apríl mjög alvarlega,“ segir Nanna. Hún rifjar upp einn hrekk þegar hún var átta ára gömul.

„Hann leggur svo mikinn metnað í að vera stríðinn, hann útbjó skjal og setti í póstkassann, svo beið hann bara eftir því að ég færi í póstkassann og svo stóð: Þú hefur unnið páskaegg, þú þarft bara að mæta út í sjoppu þarna klukkan þetta í Íssel í Breiðholtinu. Ég hef verið svona átta ára, ég bara fer af stað til að missa ekki af, fer og næ í páskaeggið sem er náttúrulega ekki til staðar, kem heim og þá liggja þeir bræður emjandi úr hlátri. Hann tekur hluti alla leið.“


Tengdar fréttir

„Álagið er þessi fjar­vera“

Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna Benediktssonar, segir mikið álag hafa verið á heimili þeirra hjóna á kjörtímabilinu. „Álagið er þessi fjarvera. Það er mikil fjarvera. Það er miklu fórnað fyrir pólitíkina.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.