Lífið

Ás­laug Arna fékk „elegant“ kind í af­mælis­gjöf

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Áslaug var sátt með kindina.
Áslaug var sátt með kindina. Instagram

Sjálfstæðiskonan og ráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fagnaði 34 ára afmæli sínu á kosningadag með flokksfélögum sínum og stuðningsmönnum í Sjálfstæðissalnum sem áður var Nasa. Hún fékk einstaka afmælisgjöf frá góðum vinum sem vísaði í ummæli sem Össur Skarphéðinsson lét falla snemma í kosningabaráttunni. 

Gjöfin var svokölluð bardagakind en er þó í raun loðinn brosandi og vingjarnlegur kindabangsi. 

Á Facebook skrifar Áslaug: 

„Takk fyrir allar fallegu afmæliskveðjurnar kæru vinir. Afmælisdagurinn var samt algjört aukaatriði enda skipti mestu að ná árangri í kosningunum.

Í upphafi kosningabaráttunnar kallaði húmoristinn og jafnaðarmaðurinn Össur Skarphéðinsson mig „bardagakind“ í viðtali á Sprengisandi - við Össur kynntumst fyrir um 10 árum þegar ég var komin stutt yfir tvítugt og fékk að mæta honum annan hvern sunnudag í sjónvarpinu í þættinum Mín skoðun á Stöð 2. Það var dýrmæt reynsla.

Vinum mínum fannst lýsing Össurar svo elegant að í gær fékk ég kind í afmælisgjöf. Það voru þær stöllur og vinkonur mínar Ólöf og Kristín í hlaðvarpinu í Komið gott sem fundu þennan grip og gáfu mér á afmælisdaginn - ég hlýt að þakka bara fyrir mig.“

Áslaug var að sjálfsögðu klædd í flokkslitinn bláa eins og svo oft áður og rokkaði dökkbláan kjól með hvítum röndum. 

Sambærilegan kjól má finna hjá danska tískuhúsinu Baum und Pferdgarten og kostar hann um 35 þúsund krónur. 

Áslaug klæddist bláum kjól með hvítum röndum sambærilegum þessum frá danska tískuhúsinu Baum und Pferdgarten.Baum und Pferdgarten

 

Flokksfélagarnir Áslaug og Jón Pétur Zimsen klæddust bæði bláu á laugardag.Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.