Það er The Athletic sem greinir frá núna í morgun en umræddur leikmaður sem neitaði að klæðast jakkanum var varnarmaðurinn Noussair Mazraoui sem gekk til liðs við félagið frá Bayern Munchen fyrir yfirstandandi tímabil.
Mazraoui sagðist ekki vilja taka þátt í því sem átti að vera sameiginleg stuðningsyfirlýsing leikmanna Manchester United við baráttu hinsegin fólks, sökum þess að hann sé múslimi.

Undanfarin tvö tímabil hafa leikmenn Manchester United klæðst svipuðum jakka fyrir leik í ensku úrvalsdeildinni. Sökum þess að Mazraoui vildi ekki klæðast jakkanum var ákveðið hætta við framtakið svo að marokkóski landsliðsmaðurinn yrði ekki eini leikmaður liðsins til þess að klæðast ekki jakkanum.
The Athletic hefur fyrir því heimildir að ekki séu allir á eitt sáttir með þá ákvörðun að klæðast ekki umræddum jökkum. Í yfirlýsingu sem að Manchester United sendi The Athletic segir að félagið taki vel á móti stuðningsfólki með alls konar bakgrunn. Þar með talið hinsegin fólk og að félagið leggi áherslu á fjölbreytileika og inngildingu í sínu starfi.

Enska úrvalsdeildin hefur undanfarin ár lagt mikið upp úr því að vera með sýnilegan stuðning við baráttu hinsegin fólks. Meðal annars með regnbogalituðum hornfánum, fyrirliðaböndum sem og skóreimum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að Mazraoui er gagnrýndur fyrir afstöðu sína gegn sýnilegum stuðningi við baráttu hinsegin fólks. Hann var gagnrýndur á sínum tíma sem leikmaður Bayern Munchen og létu stuðningsmenn félagsins útbúa borða þar sem á stóð: „Allir litir eru fallegir. Í Toulouse, Munchen og alls staðar. Sýndu gildum okkar virðingu Mazraoui.“