Réttarhöld yfir mönnunum þremur hófust í Wuppertal í Þýskalandi í gær. Markus Fritsche, fyrrverandi lífvörður Michaels Schumacher, ásamt feðgunum Yilmaz Tozturkan og Daniel Lins eru sakaðir um að hafa reynt að kúga fé út úr fjölskyldunni. Þeir kröfðust þess að hún greiddi þeim 2,1 milljarð íslenskra króna, annars myndu þeir leka gögnum um ástand Schumachers.
Upplýsingarnar um Schumacher voru geymdar á tveimur hörðum diskum og fjórum USB minniskubbum. Þær voru í vörslu Tozturkans en hann sagði lögreglunni að hann hefði geymt þær á heimilum fjölskyldu sinnar og vina.
Lögreglan fann alla USB kubbana en aðeins annan harða diskinn. Ekki liggur fyrir hvar hinn er niðurkominn.
Tozturkan fékk gögnin frá Fritsche sem vann fyrir Schumacher-fjölskylduna í átta. Hann á að hafa fengið gögnin frá hjúkrunarfræðingi sem starfaði á heimili Schumachers.
Þýski ökuþórinn, sem varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1, hefur ekki sést opinberlega síðan hann varð fyrir heilaskaða í skíðaslysi í ölpunum 2013.