Eignin, sem er á tveimur hæðum, skiptist í eldhús sem er opið inn til borðstofu og stofu, fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi, rúmgott fjölskyldurými og bílskúr sem er innréttaður sem studioíbúð. Í eldhúsinu er dökk innrétting með eyju og góðu vinnuplássi. Á gólfum er fallegt viðarparket.

Litir og listaverk
Heimili Siggu er innréttað á skemmtilegan og sjarmerandi máta þar sem djarfir litir, listaverk og formfögur húsgögn eru í forgrunni. Í stofurýminu má sjá klassíska og tímalausa hönnun, þar á meðal Eggið eftir Arne Jacobsen, Y-Chair stólar úr smiðju Hans J. Wegner og PH-5 loftljós, hannað af Poul Henningsen, og svo fátt eitt sé nefnt.
Úr stofunni er útgengt á svalir með útsýni að Klambratúni.
Nánari upplýsingar má nálgast á fasteignavef Vísis.





