Ljóst er að um söguleg tímamót er að ræða enda Bjarni verið formaður flokksins í fimmtán ár, frá árinu 2009. Bjarni hefur svo setið enn lengur sem þingmaður eða í tæplega 22 ár, frá árinu 2003. Meðal þeirra sem senda Bjarna kveðjur er fólk úr öllum áttum, fyrrverandi samherjar hans í pólitík en líka andstæðingar.
Rifjar upp fyrsta framboðsfundinn
„Innilegar þakkir fyrir að standa vaktina þennan langa tíma Bjarni,“ skrifar Halldór Halldórsson fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Hann rifjar upp að Bjarni hafi blásið til síns fyrsta framboðsfundar til formanns á Ísafirði.
„Við höfum með einum eða öðrum hætti átt samleið allan tímann síðan á þínum fyrsta framboðsfundi til formanns á Ísafirði fyrir 15-16 árum. Þú hefur lagt mikið og gott framlag til stjórnmálanna og bættra kjara þjóðarinnar.“
Frétt Stöðvar 2 frá 29. mars árið 2009 þegar Bjarni Benediktsson tók við sem formaður.
Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM Vallá og fyrrverandi ráðherra Viðreisnar þakkar Bjarna sömuleiðis fyrir störf hans og það gerir Pawel Bartozsek þingmaður Viðreisnar sömuleiðis auk Árna Páls Árnasonar fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Jón Ólafsson tónlistarmaður leggur jafnframt orð í belg og segir hlutskipti Bjarna ekki hafa verið öfundsvert.
Feðginin Vilhjálmur Egilsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og dóttir hans Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi senda Bjarna líka kveðjur og þakkir. „Það eru fáir sem geta þolað það að standa í stafni stærsta stjórnmálaflokks landsins svona lengi. Það er til marks um ótrúlegan styrk. Takk fyrir kröftuga forystu. Hlakka til að fylgjast með góðum verkum framtíðarinnar.“
Önnur frétt Stöðvar 2 frá deginum Bjarni tók við sem formaður þann 29. mars árið 2009.
Þá stingur Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, niður penna á bloggsíðu sinni í tilefni tímamótanna.
„Stjórnmálaumræðurnar taka á sig annan svip á Íslandi vegna ákvörðunar Bjarna Benediktssonar. Hann hefur verið þungamiðja þessara umræðna um árabil. Til sögunnar hefur komið hópur undirmálsmanna sem þrífst á níði um hann. Sagan jarðar róginn en eftir stendur allt sem áunnist hefur á glæsilegum og mögnuðum stjórnmálaferli.“
Þá heyrist nokkuð í fólki vinstra megin á hinum pólitíska væng.
„En við losnum aldrei við Jón Gunnarsson,“ segir Mörður Árnason. Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður hefur gagnrýnt Bjarna harðlega í gegnum tíðina.

„Það segir einhverja sögu um formannstíð Bjarna Benediktssonar í Sjálfstæðisflokknum að þau einu sem virðast sjá í alvöru eftir honum eru andstæðingar flokksins sem höfðu vonast til að hann færi enn neðar með flokkinn.“
Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins, segir:
„Tímabili sem kenna má við Bjarna og Katrínu er lokið, annað fólk mun móta stjórnmálin á næstu árum.“
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi í sama flokki, segir einfaldlega: „Bless, bless“.
Lykilfólk í Sjálfstæðisflokknum og formannsefni eru meðal þeirra sem hafa tjáð sig um tímamótin. Eru þau öll full af þakklætis og lýsa Bjarna sem einum mesta stjórnmálamanni síðari tíma á Íslandi. Sjá að neðan.