Á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning eða skúrir víða um land, en lengst af þurrt norðaustanlands.
Hiti verður á bilinu fjögur til níu stig. Kalt loft kemur um tíma á Vestfirðir nú í morgunsárið með norðaustanátt, snjókomu og líkum á erfiðum aksturskilyrðum, en hlýnar aftur fyrir hádegi.
Gular viðvaranir taka gildi á norðvestanverðu landinu eftir hádegi í dag þar sem von er á stormi í vindstrengjum. Viðvörunin tekur gildi á Breiðafjarðarsvæðinu klukkan 13 í dag og verður í gildi til miðnættis. Þar má reikna með að vindur geti náð 35 metrum á sekúndu í hviðum.
Á Vestfjörðum tekur viðvörunin gildi klukkan 15 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 16 og verða þær í gildi fram á nótt. Þar má sömuleiðis reikna með að vindstyrkur geti náð 35 metrum á sekúndu við fjöll og að varasamar aðstæður geti skapast fyrir ökutæki.

„Á morgun fer lægð þvert yfir landið. Á vestanverðu landinu verður vestlæg átt 5-10 m/s, snjókoma eða slydda með köflum og hiti nálægt frostmarki, en á Suðausturlandi verður sunnan 8-15, rigning og hiti 3 til 6 stig. Þurrt að mestu norðaustantil. Síðdegis fer lægðin til norðurs frá landi, snýst þá í norðvestlæga átt, kólnar og styttir smám saman upp, dálítil él fyrir norðan, en þurrt að kalla sunnantil.
Aðfaranótt föstudags fer önnur lægð til norðurs, skammt austur af landinu. Útlit er fyrir norðanátt og að það fari að snjóa á austanverðu landinu, en annars stöku él.
Á föstudag fjarlægast lægðin og þá verður breytileg átt 5-10 m/s og bjart með köflum, en dálítil él austanlands framan af degi. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins norðaustantil.
En þá er stutt í næstu lægð úr suðri, með vaxandi austanátt og snjókomu syðst á landinu seint um kvöldið,“ segir á vef Veðurstofunnar.