Fjölskyldan, sem er frá Venesúela, fékk upphaflega synjun um dvalarleyfi frá kærunefnd útlendingamála í nóvember. Þá sótti Jón Sigurðsson, lögmaður fjölskyldunnar, um leyfi frá Útlendingastofnun fyrir því að fjölskyldan fengi að dvelja á landinu þar til Emma kæmist í nauðsynlega skurðaðgerð.
Hún hafði farið, að ráði íslenskra lækna, í skurðaðgerð þar sem fótleggurinn var festur við mjaðmagrindina og málmplötu komið fyrir. Fjarlægja átti málmplötuna í aðgerð 10. febrúar næstkomandi en horfði fram á að vera vísað úr landi áður en hún kæmist í hana.
Fjölskyldan hafði sýnt samstarfsvilja og sótt um aðstoð við sjálfviljuga heimför en báðu um að fá að fresta heimför þar til aðgerðin væri yfirstaðin. Útlendingastofnun féllst ekki á það og var beiðninni hafnað endanlega í gær, 14. janúar.
Beiðni um frestun samþykkt
Nú degi síðar hefur orðið vending í málinu, fjölskyldunni barst bréf upp úr 15 í dag þess efnis að brottvísuninni yrði frestað fram yfir aðgerðina. Beiðni um frestunina er samþykkt á grundvelli framlags læknisvottorðs.

„Ég fékk nýtt vottorð í dag frá lækninum sem hefur verið að sinna stelpunni, framkvæmdi aðgerðina og kemur til með framkvæma næstu aðgerð. Eftir að það barst sendi ég inn nýja beiðni um frestun á þessu og það var samþykkt,“ segir Jón Sigurðsson, lögmaður hjá Landlögmönnum
„Þau vísa í þetta vottorð þannig það skiptir greinilega máli,“ segir hann.
Er einhver dagsetning á brottvísuninni?
„Það er ekki skýrt. En mér finnst mega ætla það út frá þessu svari að það sé miðað við þessa aðgerð og væntanlega einhverja eftirfylgni. Hún verður ekki send úr landi nýbúin úr aðgerð. Við erum að tala um einhvern tímann eftir 10. febrúar,“ segir Jón.
„Eins og staðan er núna þá er fjölskyldan glöð að komast í þessa aðgerð og fókusinn er á því,“ segir Jón spurður út í næstu skref í málinu.