Á árum áður voru Íslendingar vanir því að eiga varnarmenn í einni sterkustu landsdeild Evrópu, ensku úrvalsdeildinni, en í dag spilar enginn íslenskur varnarmaður í einhverri af sterkustu deildum álfunnar.
Reyndar var það einnig svo þegar Ísland náði sínum besta árangri í sögunni og fór í 8-liða úrslit á EM og inn á HM, að varnarlínan var ekki skipuð varnarmönnum sem spiluðu í sterkustu deildunum.
Arnar Gunnlaugsson, nýráðinn landsliðsþjálfari, sagði líka á blaðamannafundi á föstudaginn að hann væri ósammála umræðunni um að íslenska landsliðið væri ekki nógu sterkt í vörn. Varnarmenn Íslands hefðu sannarlega sína styrkleika.
Engur að síður hefur KSÍ nú brugðist við og boðað unga leikmenn á séræfingar í vörn, og það undir handleiðslu manna með gríðarlega reynslu af því að verjast, í efstu deildum Englands.
„Tilraunaverkefni“ sem vonandi skilar sér
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfari mun hafa umsjón með æfingunum ásamt landsliðsþjálfurum yngri landsliða, en fyrrum landsliðs- og atvinnumennirnir Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson munu einnig þjálfa á æfingunum.
„Það hefur verið kallað eftir því að okkur vanti fleiri varnarmenn. Að það þurfi að laga varnarleikinn okkar. Við erum að fara af stað í lok janúar með smá tilraunaverkefni með yngri leikmenn,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 um helgina.
„Við ætlum að vera með æfingar þar sem við köllum saman eingöngu varnarmenn yngri landsliða. Inni á þeim æfingum verða kempur eins og Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson, og mögulega fleiri, sem aðstoða landsliðsþjálfara okkar í að kenna undirstöðuatriði í varnarleik, staðsetningar og fleira. Vonandi kemur eitthvað gott út úr þessu. Við erum alltaf að reyna að finna einhverjar leiðir til að laga hlutina, og í samvinnu við félögin þá vonandi skilar þetta sér,“ sagði Jörundur Áki.
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í leikstöðuæfingum KSÍ dagana 28. – 29. janúar 2025:
Leikmenn fæddir 2008
Ásbjörn Líndal Arnarsson – Þór Ak.
Birkir Hrafn Samúelsson – ÍA
Egill Ingi Benediktsson – Leiknir R.
Gísli Snær Waywadt Gíslason – Stjarnan
Gunnar Baltasar Guðmundsson – HK
Ísak Logi Eysteinsson – Keflavík
Ketill Orri Ketilsson – FH
Kristinn Tjörvi Björnsson – Víkingur R.
Stefán Logi Sigurjónsson – Fylkir
Styrmir Jóhann Ellertsson – ÍA
Sverrir Páll Ingason – Þór Ak.
Sölvi Svær Ásgeirsson – Grindavík
Leikmenn fæddir 2009
Björn Darri Oddgeirsson – Þróttur R.
Brynjar Óðinn Atlason – ÍA
Egill Valur Karlsson – Breiðablik
Halldór Sveinn Elíasson – Njarðvík
Jakob Sævar Johansson – Afturelding
Kristófer Kató Friðriksson – Þór
Markús Andri Daníelsson Martin – Hamar
Nökkvi Arnarsson – HK
Oliver Napiórkowski – Fylkir
Rúnar Logi Ragnarsson – Breiðablik
Sigmundur Logi Þórðarson – KA
Skarphéðinn Gauti Ingimarsson – KR