Á Íslandi.is má finna undirskriftalistann, en söfnun undirskrifta lauk á föstudag. Þá voru undirskriftirnar orðnar 2830 talsins.
Í lýsingu segir að undirritaðir geri alvarlegar athugasemdir vegna framkvæmda við Álfabakka 2A-2D, 109 Reykjavík. Þeir álíti að húsið og starfsemin sem þar á að vera sé algjörlega á skjön við samfélagið, gangi gegn markmiðum skipulagslaga og stefnu Reykjavíkurborgar í grænni byggð.

„Íbúar eru uggandi yfir möguleikanum á stóraukinni umferð, þá sér í lagi þungaflutninga, um svæðið. Efumst við um að framkvæmdir standist mat á umhverfisáhrifum. Við teljum einnig að byggingarmagn og hæð byggingarinnar muni hafa mikil áhrif á skuggavarp og valda skerðingu á sólarljósi, sem mun hafa mjög neikvæð áhrif á lífsgæði íbúa nærliggjandi húsa.“
Að lokum telji þeir að málsmeðferð þessa máls hafi verið fyrir neðan allar hellur og langt í frá í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Samráð og upplýsingaflæði Reykjavíkurborgar hafi verið ófullnægjandi og hvorki uppfyllt kröfur stjórnsýslulaga né skipulagslaga.
„Við krefjumst þess að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan unnið er að farsælli lausn málsins öllum í hag.“
Einar Þorsteinsson borgarstjóri gerði sér ferð upp í Breiðholt síðdegis til þess að veita undirskriftalistanum móttöku.

Kristján Hálfdánarson, formaður Húsfélagsins að Árskógum 7 og upphafsmaður undirskriftasöfnunarinnar, bauð heim og afhenti borgarstjóra listann að nokkrum fjölda fólks viðstöddum.