Vill svipta glæpamenn íslenskum ríkisborgararétti Jón Ísak Ragnarsson skrifar 18. febrúar 2025 23:25 Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Vísir/Vilhelm Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt. Lagt er til að hægt verði að svipta þá ríkisborgararétti sem brjóta alvarlega af sér eða gefa rangar upplýsingar til Útlendingastofnunnar. Engin muni þó missa ríkisborgararétt verði hann við það ríkisfangslaus.
Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, en meðflutningsmenn eru Vilhjálmur Árnason, Bryndís Haraldsdóttir, Jón Gunnarsson, og Guðlaugur Þór Þórðarson. Stytt útgáfa greinanna tveggja sem lagðar eru til eru svohljóðandi: Ákvörðun um veitingu ríkisborgararéttar skv. III. kafla má fella úr gildi hafi umsækjandi gegn betri vitund gefið rangar upplýsingar eða leynt atriðum sem verulegu máli skipta við ákvörðun Útlendingastofnunar. Hann missir þó ekki íslensks ríkisfangs verði hann við það ríkisfangslaus. Hafi íslenskur ríkisborgari, sem öðlast hefur ríkisborgararétt skv. II. eða III. kafla, gerst sekur um brot á ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sem varðað getur 16 ára fangelsi, getur ríkislögreglustjóri í rökstuddu áliti lagt til við ráðherra að hann verði sviptur ríkisborgararétti ef ætla má að almenningi stafi ógn af áframhaldandi veru hans hér á landi og búast má við að brotaferill hans haldi áfram. Skipulögð brotastarfsemi grafið um sig í samfélaginu Í greinargerð frumvarpsins segir að skipulögð brotatarfsemi hafi aukist gríðarlega undanfarin ár og samkvæmt greiningardeild ríkislögreglustjóra teljist áhætta vegna hennar mjög mikil hér á landi. „Brotastarfsemin hefur grafið um sig í samfélaginu og starfa hér glæpahópar sem tengjast ákveðnum þjóðarbrotum frá Mið-Austurlöndum og Suðaustur-Evrópu. Skipulögð brotastarfsemi ógnar öryggi íslensks samfélags og þeirra sem hér búa. Starfsemin þrífst á fíkniefnamarkaði og felur m.a. í sér smygl á fólki og mansal.“ Diljá Mist segir að fyrirmynd frumvarpsins sé sótt til landa sem við berum okkur gjarnan saman við. Mörg ríki Evrópu séu með sambærileg ákvæði, þar með talin öll Norðurlöndin nema Svíþjóð, en þar væri til skoðunar að taka upp slík lög. Diljá var til viðtals um málið í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Útlendingar þurfi að gangast undir samfélagssáttmálann „Það er eitt sem manni finnst auðvitað borðliggjandi, að ef maður öðlast svona ofboðslega víðtæk réttindi sem fylgja íslenskum ríkisborgararétti, ef þú öðlast þau í rauninni með sviksamlegum hætti, með þannig framgöngu að það sé orðinn forsendubrestur fyrir veitingunni, þá þykir manni bara augljós niðurstaða að það væri hægt að afturkalla ríkisborgararéttinn,“ segir hún. Þá sé það gríðarlega stórt öryggismál að hægt sé að svipta þá sem brjóti alvarlega af sér ríkisborgararétti. Íslenskum ríkisborgararétti fylgi víðtæk réttindi og skyldur, og það sé mikið keppikefli fyrir marga útlendina sem setjist hér að að öðlast hann. „Við erum að senda mjög sterk skilaboð til útlendinga sem vilja vera hér og aðlagast íslensku samfélagi, að við gerum þá kröfu að þeir gangist undir samfélagssáttmálann okkar og þær meginreglur sem hér gilda,“ segir Diljá. Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hóf athugun á því hvort hægt væri að breyta lögunum og afturkalla alþjóðlega vernd þeirra sem brjóta alvarlega af sér. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, nýr dómsmálaráðherra, ætlar að beita sér fyrir því að þeim breytingum verði komið í gegn. Diljá Mist segir að það sé komin breið samstaða um þessar breytingar á dvalarleyfi fólks með alþjóðlega vernd, en hún viti ekki til þess að aðrir hafi verið að tala fyrir sviptingu ríkisborgararéttarins.
Innflytjendamál Alþingi Reykjavík síðdegis Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Innlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Erlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Erlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Erlent Fleiri fréttir Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Sjá meira