Formlegir fundir samninganefnda grunna- og leikskólakennara hafa ekki farið fram í meira en viku en Ástráður fundaði með forystu Kennarasambandsins í gær. Samninganefnd framhaldsskólakennara fundaði síðast í fyrradag með samninganefnd ríkisins hjá sáttasemjara.
Verkföll hefjast í fimm framhaldsskólum og einum tónlistarskóla á föstudag verði ekki samið í kjaradeilunni. Þá hefur einnig verið boðað til verkfalla í leikskólum Kópavogs og öllum grunnskólum Hveragerðis, Akraness og Ölfuss í mars. Ótímabundið verkfall stendur yfir í Leikskóla Snæfellsbæjar en það hófst 1. febrúar síðastliðinn.