Enski boltinn

Ratclif­fe þekkti ekki fyrir­liða kvenna­liðsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sir Jim Ratcliffe þekkti ekki Katie Zelem þegar hann ræddi við hana á æfingasvæði félagsins. Hún er ekki lengur leikmaður félagsins.
Sir Jim Ratcliffe þekkti ekki Katie Zelem þegar hann ræddi við hana á æfingasvæði félagsins. Hún er ekki lengur leikmaður félagsins. Charlotte Tattersall/Getty Images

Sir Jim Ratcliffe, „Íslandsvinur“ og minnihluta eigandi enska knattspyrnufélagsins Manchester United, heldur áfram að komast í fréttirnar fyrir röngu hlutina. Nú þekkti hann ekki Katie Zelem, fyrirliða kvennaliðs félagsins.

Ratcliffe hefur verið á milli tannanna á fólki þar sem hann hefur ákveðið að besta leið Man Utd til að spara pening sé að segja upp fólki sem fær hvað minnst borgað. Þá hefur verið skorið niður á ótrúlegustu stöðum, meðal annars hjá góðgerðarsamtökum félagsins.

Á sama tíma spreðar félagið milljónum er kemur að því að losa og ráða nýjan þjálfara. Að ógleymdum Dan Ashworth.

Nú er Ratcliffe enn á ný í fréttum þó um gömul ummæli sé að ræða. Í ítarlegri grein The Telegraph um fyrsta ár hans sem minnihlutaeiganda var heimsókn hans á Carrington-æfingasvæðið nefnd. Þar hitti Ratcliffe hina ýmsu starfs- og leikmenn félagsins. 

Á hann að hafa spurt Katie Zelem, þáverandi fyrirliða félagsins, hreinlega hvert starf hennar hjá félaginu væri. Zelem, sem á að baki 12 landsleiki fyrir England, hafði verið hjá félaginu frá átta ára aldri og bar fyrirliðabandið þegar kvennaliðið lyfti enska bikarnum síðasta vor. Um var að ræða fyrsta bikartitil í sögu kvennaliðsins.

Það kemur ef til vill ekki á óvart að Zelem hafi ákveðið að semja við Angel City í Bandaríkjunum síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×