Tíska og hönnun

Enginn nakinn á Óskarnum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnurnar skinu skært á Óskarsverðlaununum.
Stjörnurnar skinu skært á Óskarsverðlaununum. Getty

Stærstu stjörnur leiklistarheimsins skinu skært á rauða dreglinum í gær þegar Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í 97. skipti í Los Angeles. Þær gáfu ekkert eftir í elegansinum og dregillinn minnti að vanda á hátísku hátíð.

Það er alltaf galaþema hjá stjörnunum þegar það kemur að þessari virtu hátíð og virðist Óskarinn ekki endilega vera staður og stund þar sem þær þora að taka mikla áhættu. 

Hér má sjá nokkrar af best klæddu stjörnum gærkvöldsins: 

Demi Moore vann ekki til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í The Substance og kom það ýmsum spekingum á óvart. Hún var stórglæsileg í Giorgio Armani Privé silfurlituðum steinuðum galakjól með nóg af demöntum við. Mike Coppola/Getty Images
Halle Berry glitraði í trylltum Christian Siriano spegluðum silfurkjól. Eitt af langbestu fittum kvöldsins. Mike Coppola/Getty Images
Michelle Yeoh ratar beint á lista yfir best klæddu stjörnurnar í þessum djúpbláa Balenciaga glæsikjól. Geggjaður litur á geggjaðri leikkonu. Savion Washington/Getty Images
Tónlistarkonan og tískudrottningin Doja Cat ber alltaf af á rauða dreglinum og er alltaf óhrædd við að taka áhættu í æðislegum hlébarðasíðkjól. Klæðnaður hennar er frá Balmain Messika og Amina Muaddi.Mike Coppola/Getty Images
Hin bráðfyndna Mindy Kaling glitraði í stórkostlegum listaverkakjól frá tískuhúsinu Oscar de la Renta. Monica Schipper/Getty Images
Cynthia Erivo hefur sannað sig sem ein nettasta og glæsilegasta tískudrottning kvikmyndahátíða ársins. Hún er glæsileg í dökkgrænu flaueli frá hátískuhúsinu Louis Vuitton sem hún hefur unnið svo mikið með að undanförnu.Mike Coppola/Getty Images
Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn Bretman Rock rokkaði tryllt bronsað og gyllt!Arturo Holmes/WireImage
Mikey Madison leikkona og nú Óskarsverðlaunahafi fyrir hlutverk sitt í Anora klæddist svörtum og bleikum Christian Dior kjól með skart frá Tiffany & Co. Monica Schipper/Getty Images
Colman Domingo einn best klæddi í rauðri skyrtu og rauðum jakka frá Valentinu með fylgihluti frá Boucheron og Omega.Mike Coppola/Getty Images
Leikkonan og tónlistarkonan Lisa úr sveitinni Blackpink var einn mesti töffari kvöldsins í þessum skemmtilegu klæðum frá Markgong. Frazer Harrison/WireImage
Selena Gomez hefur ratað á best klæddu listana yfir þetta verðlaunahátíðar tímabil og er alltaf stórglæsileg til fara auk þess sem hún lítur alltaf óaðfinnanlega út. Hún er hér í stílhreinum og elegant kjól frá Ralph Lauren með demantshálsmen við. Frazer Harrison/WireImage
Miley Cyrus fabjúlöss í svörtum McQueen galakjól með svarta blúnduhanska og skart frá Boucheron.Frazer Harrison/WireImage
Timothée Chalamet fékk ekki verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Bob Dylan en var líklega best klæddi karlmaðurinn í gær og tekur áhættu. Hann er hér í ljós-pastel gulu leðursetti frá hátískuhönnuðinum Givenchy í gulri skyrtu við. Vá hvað þetta er skemmtilegt lúkk! Monica Schipper/Getty Images
Breska bomban Raye í rauðu frá breska hátískuhúsinu Vivienne Westwood, í skóm frá Jimmy Choo og með skart frá Lorraine Schwartz. Monica Schipper/Getty Images
Drottningin Whoopi Goldberg lét ekki lítil fyrir sér fara og skein einstaklega skært í þessum ótrúlega skemmtilega krómaða grábláa kjól frá Christian Siriano.Monica Schipper/Getty Images
Ariana Grande eins og alvöru prinsessa í glæsikjól frá tískuhúsinu Schiaparelli.Monica Schipper/Getty Images
Brecht Van Elslande og Nicolas Keppens eru mennirnir á bak við stuttmyndina Beautiful Men. Keppens fór út fyrir kassann í klæðaburði en dúkkan vitnar í karakter úr kvikmyndinni sem segir frá þremur mönnum sem skella sér til Istanbúl í hárígræðslu.Allen J. Schaben / Los Angeles Times via Getty Images





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.