Innlent

Kennari mun ekki hlýða snjallsíma­banni í skólum

Jakob Bjarnar skrifar
Ragnar Þór telur fyrirhugað bann Ásthildar Lóu Þórsdóttur við farsímanotkun grunnskólabarna algjörlega út í hött, hann mun ekki hlýða. 
Ragnar Þór telur fyrirhugað bann Ásthildar Lóu Þórsdóttur við farsímanotkun grunnskólabarna algjörlega út í hött, hann mun ekki hlýða.  vísir/Sigurjón/Vilhelm

Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, fordæmir fortakslaust áform Ásthildar Lóu Þórsdóttur, barna- og menntamálaráðherra, um bann við snjallsímum í grunnskólum landsins.

„Fari svo að þú komir í gegn um Alþingi banni við að 13-16 ára ungmenni í grunnskólum hafi með sér snjallsíma í skólann mun ég ekki framfylgja því,“ segir Ragnar Þór í færslu sem hefur vakið þó nokkra athygli á Facebook.

Ljóst er að Ragnar telur þetta bann vanhugsað og í raun glórulaust. Hann veit ekki hvernig á að framfylgja þessu banni:

Mun ekki reyna að grípa nemendur góðvolga

„Ég mun ekki krefjast þess að nemendur afhendi mér eða öðrum eigur sínar. Ég mun ekki krefjast þess að þeir taki af sér snjallúr. Ég mun ekki kíkja inn í eyrun á þeim og fjarlægja þaðan heyrnartól sem þeir geta notað til að hlusta á og tala við símann sinn þótt hann sé í töskunni. Ég mun ekki reyna að grípa nemendur glóðvolga í símanum í frímínútum eða í skúmaskotum. Ég mun ekki hlýða.“

Ragnar Þór segir að það megi hóta sér áminningum og brottrekstri, hann muni samt ekki hlýða. Þó sé hann löghlýðinn maður.

„Ég mun ekki hlýða þér vegna þess að þú hefur lýst því yfir að þú sért tilbúin að fara yfir strik. Strik sem enginn hér á landi hefur stigið yfir, nema hafa nánast um leið lýst yfir fyrirlitningu á kennurum og þeirra störfum.“

Huglausasta leiðin valin

Ragnar segir börn ekki bjána. Og þó bönn geti virkar á sumt, stundum, þá virki þau ekki á allt alltaf. Bann geti gengið sér til húðar allt eins og er með frelsi. Leitað hafi verið til ráðuneytisins og fólk alltaf til í að finna lausnir.

„Í stjórnarsáttmála lofuðuð þið að gefa leiðsögn. Í stað þess virðist eiga að velja einföldustu og huglausustu leiðina. Skilgreina vandann sem ofvaxinn skólum. Smætta kennara niður í það að þeir ráði ekki við hlutverk sitt. Grafa undan starfinu og draga úr lýðræðislegu uppeldishlutverki skóla.“

Færsla Ragnars er löng og ítarleg. Hann segir skóla stofnun þar sem nemandi eigi að fá að ástunda lýðræði og njóta virðingar og þeirri skulbindindingu ætli hann sér að reynast trúr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×