Sport

Ó­sáttur fótboltapabbi skaut þjálfarann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daryl Clemmons vildi sjá meira af stráknum sínum inn á vellinum og missti algjörlega stjórn á skapi sínu.
Daryl Clemmons vildi sjá meira af stráknum sínum inn á vellinum og missti algjörlega stjórn á skapi sínu. @projectfootballer

Faðir frá Missouri fylki í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur sekur fyrir að skjóta unglingaliðsþjálfara sonar síns mörgum sinnum. Þjálfarinn lifði af en pabbinn er á leið í fangelsi.

Maðurinn heitir Daryl Clemmons og er 45 ára gamall. Hann skaut þjálfarann alls fimm sinnum.

Sonur hans lék amerískan fótbolta fyrir hinn 34 ára gamla þjálfara Shaquille Latimore sem sjálfur er fimm barna faðir og var þjálfa liðið í sjálfboðavinnu.

Skotárásin varð nálægt æfingasvæði liðsins og fyrir framan níu og tíu ára gamla stráka sem voru að leika sér í nágrenninu.

Clemmons og Latimore voru báðir vopnaðir þegar þeir byrjuðu að rífast yfir spilatíma drengsins. Faðir leikmannsins taldi son sinn fá of lítið að spila og taldi að hann ætti að vera í byrjunarliðinu.

Þjálfarinn var ekki sammála því og stóð fastur á sínu. Latimore lét þá vin sinn fá byssuna sína og sagði föðurnum að hann væri til í slag. Pabbinn var ekki alveg á því. Hann þorði ekki í hnefabardaga og tók frekar upp byssuna.

„Ég sá ekki byssuna hans fyrr en of seint,“ sagði Latimore í viðtali við St. Louis Post en NY Post segir frá.

„Ég hljóp í burtu en hann skaut mig í bakið. Svo kom hann til mín og skaut mig nokkrum sinnum til viðbótar,“ sagði Latimore. Hann hefur sem betur fer náð sér af skotsárunum.

„Eftir að hann skaut mig þá sagði hann: Ég sagði þér að ég myndi skjóta þig í rassinn,“ sagði Latimore.

Faðirinn flúði í framhaldinu en var handtekinn seinna um kvöldið.

Clemmons hefur eins og áður verið dæmdur sekur en það á eftir að úrskurða um refsinguna. Það kemur í ljós seinna í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×