Þar hefur þetta fólk sagt sögur af hvítum grímuklæddum mönnum sem hafi framið áðurnefnd ódæði við hlið hermanna herforingjastjórnar Malí og brotið á konum.
Einn sem flúði til Máritaníu sagði í samtali við blaðamanna Washington Post að hann hefði aldrei séð annað eins.
Málaliðar þessir kölluðust á árum áður Wagner Group en hópurinn var fjármagnaður af rússneska auðjöfrinum Jevgení Prigósjín og hafa verið virkir í Malí frá árinu 2021. Þar hafa þeir unnið með herforingjastjórninni sem tók völd árið 2020.
Þeir hafa áður verið sakaðir um umfangsmikil ódæði í Malí.
Sjá einnig: Hermenn og rússneskir málaliðar tóku hundruð af lífi í Malí
Wagner Group og Prigósjín gerðu skammlífa uppreisn í Rússlandi sumarið 2023 en þegar málaliðarnir stefnur á Moskvu gerði auðjöfurinn samkomulag við Vladimír Pútín, forseta Rússlands.
Nokkrum mánuðum síðar lést Prigósjín þegar sprenging varð um borð í flugvél hans skammt frá Moskvu. Þá hafði auðjöfurinn ferðast til Moskvu til að reyna að halda stjórn á veldi sínu og málaliðahópnum en varnarmálaráðuneyti Rússlands var þá að taka Wagner yfir. Það tókst að mestu og er hópurinn nú iðulega kallaður Africa Corps, þó Wagner-nafnið haldi áfram velli og þá sérstaklega í Malí.
Undir stjórn varnarmálaráðuneytisins hafa umsvif þessa skuggahers Rússa aukist töluvert í Afríku og eru þeir virkir víða í heimsálfunni. Má nefna ríki eins og Malí, Búrkína Fasó, Líbíu, Mið-Afríkulýðveldið, Súdan og Mósambík.
Sjá einnig: Barist um Wagner-veldið
Starfsemi Africa Corps veitir ríkisstjórn Rússlands aðgang að tekjulindum og aukin áhrif í Afríku og víðar. Herforingjastjórn Malí er sögð greiða Rússum um tíu milljónir dala á mánuði fyrir þjónustu Africa Corps eða Wagner Group, auk þess sem Rússar fá aðgang að gullnámum á svæðinu, sem eru algengar.
Myrða mun fleiri en vígamennirnir
Í Malí hefur herforingjastjórnin barist við nokkra hópa sem hafa einnig verið virkir í öðrum ríkjum svæðisins. Má þar nefna hópa eins og JNIM, sem er nokkurs konar bandalag uppreisnarmanna og hryðjuverkamanna sem tengjast al-Qaeda, og Íslamska ríkið á Sahelsvæðinu.
Einnig má þar finna Túarega sem hafa um árabil barist fyrir eigin ríki í eyðimörkinni í norðurhluta Malí. Hópur þessu kallast FLA.
Sjá einnig: Túaregar björguðu spænskum manni úr klóm Íslamska ríkisins
Það eru þó að mestu óbreyttir borgarar sem hafa orðið fyrir barðinu á her Malí og rússnesku málaliðunum. Einn sérfræðingur hugveitunnar ACLED sagði Washington Post að árásir á óbreytta borgara væru tíðar. Til að mynda réðust málaliðarnar ítrekað á fólk á ferðinni, myrtu menn konur og börn og rændu öllu verðmætu.
Sérfræðingar ACLED áætla að í fyrra hafi að minnsta kosti 925 óbreyttir borgarar verið myrtir í árásum sem rússneskir málaliðar tóku þátt í. Um fjögur hundruð hafi verið myrtir af vígamönnum á sama tímabili.
Sjá einnig: Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina
Ag Mohamed, maðurinn sem flúði til Máritaníu og ræddi við blaðamenn WP, sagði frá því að þegar fregnir bærust af málaliðum og hermönnum á ferðinni reyndi fólk að fela sig upp í trjám.
Hann sýndi blaðamönnum einnig myndbönd sem hann og vinir hans höfðu tekið á síma sína. Þar mátti sjá fjölda líka fólks. Í einu tilfelli voru sjö lík á einum stað og í öðru hafði maður verið afhöfðaður. Á enn einu mátti sjá lík kvenna og barna í brunarústum húss.
„Ég sá dauða alls staðar,“ sagði Ag Mohamed.
Reka fólk í faðm uppreisnar- og hryðjuverkamanna
Talið er að um 1.500 málaliðar Africa Corps séu virkir í Malí. Í janúar fengu málaliðarnir mjög stóra sendingu hergagna frá Rússlandi. Um hundrað flutningabílar, brynvarðir bílar, bryndrekar og léttir skriðdrekar voru þá sendir á svæðið en hópurinn hefur einnig fengið herþotur og þyrlur.
Wassim Nasr, blaðamaður sem hefur mikla þekkingu á svæðinu, sagði í samtali við WP að stefna málaliðanna og hers Malí væri að myrða eins marga og þeir gætu. Að hræða íbúa og koma í veg fyrir að menn gangi til liðs við FLA og JNIM.
Það sé hins vegar ekki að virka. Íbúar séu frekar líklegri að líta á FLA og JNIM í jákvæðra ljósi og þar að auki hafi tengslin milli hópanna orðið meiri.