Þurfi að stappa stálinu í unga karla en ekki tala þá niður Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. mars 2025 13:16 Beggi Ólafs fer um víðan völl með Sölva Tryggva. Bergsveinn Ólafsson segist hafa verið óttasleginn og einmana fyrst þegar hann flutti til Bandaríkjanna. Beggi Ólafs segir í podcasti Sölva Tryggvasonar, að hann hafi komið sér vel fyrir á Íslandi, með háar tekjur í stjórnendaþjálfun, fyrirlestrum og hlaðvarpsgerð. Hann ákvað upphaflega að halda sér innan þægindarammans, en fljótlega var eitthvað innra með honum sem fann að hann yrði að láta vaða. „
Ástæðan fyrir því að ég fór var að ég vildi prófa mig áfram á stærri leikvelli og sjá hvert það myndi taka mig. Ég vó kosti og galla og hugsaði mig vel um. En ef maður spólar lífið áfram er gott að hugsa: „Hvað væri betri saga að segja.“ Þegar ég gerði það komst ég að því að það yrði betri saga að hafa tekið stökkið. En ég vissi ekki að þetta yrði svona ógeðslega erfitt í byrjun. Egó-ið mitt átti mjög erfitt fyrst um sinn. Ég var í þeirri stöðu að vera með mjög góðar tekjur og fá mjög mikið af viðurkenningu fyrir það sem ég var að gera á Íslandi,“ segir Beggi. Ræddi við fólkið á kaffihúsinu „En þegar ég kom út var ég bara einn og enginn þekkti mig og engin tækifæri önnur en að vera á skólabekk. Það var enginn að biðja mig um að halda fyrirlestra, þjálfa sig eða neitt annað. Ég þurfti bara að kyngja því að vera venjulegur nemandi og spyrja mig hvort það sem ég væri að gera skipti einhverju máli. Svo var líka mjög erfitt að komast í einhverja rútínu og það erfiðasta að finna mitt fólk og félagsnet. Það tók mig níu mánuði og ég var mjög einmana fyrst. Það sem hélt mér gangandi var að mæta upp úr klukkan fimm á hverjum morgni á kaffihúsið sem var næst mér um leið og það opnaði og eiga fimm til tíu mínútna spjall við fólkið sem vann á kaffihúsinu. Þessi litlu tengsl hjálpuðu mér og svo byggði ég ofan á það og ég er núna umvafinn fólki sem ég vil vera í kringum,” segir Beggi, sem rifjar í þættinum upp aðdragandann að því að hann fór út. „Það kviknaði mikill ótti hjá mér þegar mér var boðið í doktorsnámið í Bandaríkjunum og fyrsta ákvörðunin hjá mér var að hafna því og vera áfram á Íslandi. En það sat ekki vel með mér og þegar ég tjáði vinum mínum og fjölskyldu frá þeirri ákvörðun var ég innst inni að vona að þau segðu mér að það væri röng ákvörðun og að ég ætti að stökkva á að fara út. Eftir það vissi ég að ég yrði að stökkva út í óvissuna. Það eina sem ég vissi þegar ég ákvað að fara var að ég hefði flugmiða og að ég væri að fara að byrja í doktorsnámi.“ Enn að læra nýja hluti „Það kom tímabil þar sem ég saknaði Íslands og hlutanna sem ég var að gera heima, en ég er kominn á þann stað núna að mér finnst lífið mitt í Los Angeles alveg frábært. Það var stórt stökk að fara út og erfitt að hætta að gera hlutina sem ég gerði á Íslandi og þurfa að byrja að klífa fjallið alveg frá byrjunarreit aftur fyrst þegar ég kom út. Það tók mig tíma að aðlagast og efla félagsnetið, en eftir því sem tíminn líður kann ég alltaf betur og betur við mig. Mig hafði alltaf langað að kynnast annarri menningu og búa annars staðar en á Íslandi til að þroskast og reyna meira á mig. Ég er ennþá stanslaust að læra eitthvað nýtt.“ Beggi og Sölvi ræða í þættinum um pólariseringu í Bandaríkjunum og hvernig staðan er eftir kosningarnar í lok síðasta árs. „Það er ekki þannig að allir í Bandaríkjunum séu annað hvort mjög hrifnir af Trump, eða hafi fundist Kamala Harris frábær. Auðvitað upplifi ég mest skoðanir þeirra sem ég er í kringum, en mjög margir sem ég er í kringum sáu þetta þannig að það væru tveir slæmir kostir í boði. Ég upplifi stöðuna þannig að fólk sé almennt opið gagnvart því að mega hafa ólíkar skoðanir og þetta sé ekki jafn svarthvítt og við höldum á Íslandi. Auðvitað eru miklar tilfinningar í ákveðnum málum, en það sem við sjáum í fjölmiðlum eru pólarnir í báðar áttir og það endurspeglar ekki endilega venjulegt fólk í Bandaríkjunum. Það sem við sjáum á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum er mjög oft ýktasta fólkið og ýktustu skoðanirnar í báðar áttir.“ Karlmennska sé dyggð Beggi hefur í gegnum tíðina nokkrum sinnum rætt opinberlega um karlmennsku og þá hefur ákveðinn hópur í samfélaginu risið upp á afturlappirnar og gagnrýnt málflutning hans. „Mér finnst margt vera að breytast núna og ég held að það sem ég var að segja eldist vel. Ég stend við það sem ég sagði og myndi segja það aftur. Það kom tímabil þar sem það var eins og það mætti ekki hvetja unga karlmenn til dáða og að karlmennska væri dyggð. Það getur ekki verið eðlilegt að einu skilaboðin sem ungir karlmenn fá sé að þeir verði að breyta sér og að annar hver karlmaður sé eitraður. Mikið af ungum karlmönnum eru að basla og þurfa á því að halda að stálinu sé stappað í þá, en ekki að það sé stanslaust verið að tala þá niður. Ég vil að við sendum þau skilaboð út í samfélagið að karlmennska sé dyggð og það sé jákvætt að vera sterkur og taka ábyrgð, hafa sýn á framtíðina og sterkan tilgang,“ segir Beggi, sem segist lifa eftir því móttói að segja það sem hann hugsar og segja satt. „Þú þarft ekki stöðugt að reyna að muna hvað þú segir ef þú segir bara satt. Það getur vel verið að það mislíki það einhverjum, en þá veit fólk allavega hvar það hefur þig og það fylgir því mikið frelsi að vera heiðarlegur. Það er ákveðið ævintýri að þora að segja sinn sannleika opinberlega og sleppa tökum af því hvað fólki finnst um það. Samfélagið yrði mjög furðulegt og vont ef allir væru alltaf sammála.“ Hægt er að nálgast viðtalið við Begga og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is
Podcast með Sölva Tryggva Mest lesið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Leikstjórinn James Foley er látinn Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Fleiri fréttir Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Sjá meira