Innlent

Sérsveitinni flogið til Bolungar­víkur

Jón Þór Stefánsson skrifar
Bolungarvík.
Bolungarvík. Vísir/Vilhelm

Sérsveit ríkislögreglustjóra var flogið til Bolungarvíkur fyrr í dag til að aðstoða lögregluna á Vestfjörðum.

Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hún veit ekki hvort sérsveitin sé enn að sörfum fyrir vestan, og segist ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Málið sé á forræði lögreglunnar á Vesturlandi.

Mbl.is greindi fyrst frá málinu, og hefur eftir Hlyni Haf­berg Snorra­syni, yfirlögregluþjóni á Ísafirði, að talið sé að hættuástandi hafi verið afstýrt.


Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.


Fréttastofa hefur undir höndum tölvupóst frá skólastjóra grunnskólans í Bolungarvík þar sem greint er frá heimsókn tveggja lögreglumanna í skólann. Í honum segir að ekki hafi myndast ógnvænleg astaða í skólanum þrátt fyrir „ákveðnar aðstæður“ í bænum.

„Með tilliti til bæði pósta og símtala sem við höfum fengið, viljum við fyrirbyggja allan misskilning og upplýsa ykkur um að tveir lögreglumenn komu í skólann í morgun í leit að ákveðnum upplýsingum. Staðan var ekki metin ógnvægleg fyrir neina hér í skólanum þó svo að ákveðnar aðstæður hafi myndast í bænum þegar líða tók á daginn. Okkar viðbrögð hafa tekið mið af ráðleggingum lögreglunnar á Vestfjörðum,“ segir í þessum pósti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×