ADHD getur haft mikil áhrif á daglegt líf, samskipti og verkaskiptingu í samböndum. Ég hitti oft pör þar sem annar aðilinn (eða báðir) eru með ADHD og sé hvernig það getur skapað bæði álag og ójafnvægi í sambandinu. Þegar börn bætast við, sérstaklega ef þau eru einnig með ADHD, getur streitan margfaldast. Ég vil þó líka minna á að ADHD er ekki bara áskorun – því getur líka fylgt mikill kraftur, sköpunargleði og nýjungagirni sem getur styrkt sambandið.
Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Lesendur eru hvattir til þess að senda Aldísi spurningar í spurningaformi sem er neðar í greininni.

ADHD og daglegt álag
Flest ef ekki öll pör þurfa að tækla verkaskiptingu, þriðju vaktina og skipulag heimilisins. Álagið í sambandi þar sem annar aðilinn eða báðir eru með ADHD er umtalsvert meira en það sem önnur pör upplifa. Skilnaðartíðni er talin vera tvisvar til þrisvar sinnum hærri, sem endurspeglar álagið.
Ósjáanlegt álag og gremjan sem getur fylgt því
Mörgum finnst erfitt að þurfa stöðugt að minna makann á, skipuleggja og stíga inn í þegar hlutir gleymast eða týnast. Þetta getur leitt til gremju og ójafnvægis í sambandinu.
Nokkur ráð til að draga úr streitu:
- Það er mikilvægt að aðgreina manneskjuna frá taugaþroskaröskuninni (ADHD): Gleymska og skipulagsleysi eru hluti af birtingamynd ADHD en ekki makinn þinn að reyna að stuða þig eða ekki standa sig. Að minna sig á það getur dregið úr pirringi.
- Aðlagið skipulagið að ADHD heilanum: Notið sjónrænar áminningar, öpp með hljóðviðvörunum og sameiginlegt dagatal.
- Minnkið ósýnilegt álag: Kortleggið verkaskiptingu til að jafna ábyrgðina.
- Einfaldið umhverfið: Finnið geymslusvæði fyrir lykla, síma og veski
- Takið vikulegan fund: þar sem farið er yfir skipulag, líðan og plan varðandi nánd/kynlíf.
- Fyrirbyggjandi lausnir: Frekar en að rífast um sama hlutinn aftur og aftur, finnið kerfi sem virka fyrir ykkur og koma í veg fyrir árekstra.
- Munið að hlúa vel að ykkar í sitthvoru lagi líka.

ADHD og áhrif á kynlíf
ADHD getur haft áhrif á kynlíf á marga vegu. Sum með ADHD upplifa meiri kynlöngun og finna til dæmis fyrir auknum áhuga á því að prófa nýja hluti.
Aðrir upplifa minni kynlöngun og finna að athyglisbrestur og skynúrvinnsluvandi hafi áhrif á þau í kynlífi.

Hér eru algeng áhrif ADHD á kynlíf og hvað má gera:
- Einbeitingarvandi og að detta úr gírnum. Hugsanir um eitthvað allt annað eða jafnvel hlutir í umhverfinu geta truflað. Þetta getur leitt til þess að annað ykkar eða bæði upplifa sig detta úr gírnum. Mikilvægt er að æfa það að láta þessi augnablik ekki endilega eyðileggja fyrir sér, færa mjúklega athyglina aftur að því sem er í gangi eða taka pásu, t.d. faðmast í smá stund og byrja svo aftur.
- Skynúrvinnsluvandi – ofurnæmni fyrir áreiti. Sumir með ADHD eru mjög viðkvæmir fyrir ákveðinni snertingu, lykt eða hljóðum, sem getur haft áhrif á kynlöngun eða truflað kynlíf. Prófið að aðlaga umhverfið betur. skoðið saman hvernig snerting, hljóð, lykt, áferð og annað í kynlífi hefur áhrif á kveikjur og bremsur!
- Streita og ójafnvægi hefur áhrif á kynlíf. Þegar það er álag og ágreiningur í sambandinu er skiljanlegt að það hafi áhrif á nánd og kynlíf. Leggið rækt við nánd utan svefnherbergisins. Litlir ástúðlegir hlutir yfir daginn, eins og koss í framhjáhlaupi eða sæt skilaboð, geta ýtt undir nánd í hversdeginum.
- Áhugi á nýjungum. Sum með ADHD finna fyrir aukinni þörf fyrir spennu og nýjungum. Prófið að setjast niður og ræða hvað þið hafið áhuga á að prófa og skoðið hvort það sé hægt að auka fjölbreytni eða auka spennuna.
Við Indíana Rós, kynfræðingur, fjölluðum um áhrif ADHD á kynlíf í hlaðvarpinu Kynlífið. Hægt er að hlusta hér:
Allar greinar eftir Aldísi má finna á sama stað á Vísi.