Erlent

Á­ritun ekki trygging fyrir land­göngu í Banda­ríkjunum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þjóðverjar eru ekki þeir einu sem hafa verið stöðvaðir á landamærunum en fregnir hafa einnig borist af óförum Breta og Frakka, svo dæmi séu tekin.
Þjóðverjar eru ekki þeir einu sem hafa verið stöðvaðir á landamærunum en fregnir hafa einnig borist af óförum Breta og Frakka, svo dæmi séu tekin. Getty

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa uppfært ferðaupplýsingar sínar varðandi ferðalög til Bandaríkjanna, þar sem fólk er varað við því að vegabréfsáritun eða ESTA-heimild séu ekki trygging fyrir því að komast inn í landið.

Að minnsta kosti þrír Þjóðverjar hafa lent í vandræðum á landamærum Bandaríkjanna frá því að Donald Trump snéri aftur í Hvíta húsið og hóf aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum.

Samkvæmt erlendum miðlum virðast aðgerðirnar hafa teygt anga sína víðar en menn óttuðust og erlendir ríkisborgarar verið stöðvaðir og jafnvel hnepptir í varðhald fyrir engar eða litlar sakir.

„Lokaákvörðunin um það hvort manneskja fær að koma inn í Bandaríkin liggur hjá bandarískum landamærayfirvöldum,“ sagði talsmaður þýska utanríkisráðuneytisins í gær.

Hann ítrekaði hins vegar að um ábendingu væri að ræða, ekki eiginlega ferðaviðvörun. Fólk hefur verið hvatt til þess að hafa á sér gögn sem staðfesta að það hafi bókað ferð frá Bandaríkjunum.

Meðal erlendra ríkisborgara sem hafa lent í vandræðum á landamærum Bandaríkjanna eru tveir þýskir ferðamenn sem voru stöðvaðir við San Ysidro-landamærastöðina milli Tijuana og San Diego.

Um var að ræða tvö aðskilin atvik en í öðru var Jessicu Brösche haldið í 46 daga og í hinu Lucas Sielaff í sextán daga. 

Samkvæmt miðlum í Þýskalandi máttu bæði sæta illri meðferð af hálfu yfirvalda Bandaríkja-megin. Brösche var haldið í einangrun í níu daga og Sielaff neitað um túlkaþjónustu.

Bæði eru komin aftur til Þýskalands en þriðji Þjóðverjinn virðist enn í haldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×