Fótbolti

Leik­dagur með Gumma og Kjartani: Lá við milli­ríkja­deilu á pizza­stað í Kó­sovó

Aron Guðmundsson skrifar
Sólin skín og nóg að ræða um í Kósóvó fyrir landsleik kvöldsins
Sólin skín og nóg að ræða um í Kósóvó fyrir landsleik kvöldsins

Það er komið að leik­degi í Pristina í Kó­sovó en þar mun ís­lenska karla­lands­liðið í fót­bolta hefja veg­ferð sína undir stjórn Arnars Gunn­laugs­sonar gegn heima­mönnum í kvöld í um­spili um laust sæti í B-deild Þjóða­deildarinnar.

Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður hitar hér rækilega upp fyrir leikinn ásamt sérfræðingunum Guðmundi Benediktssyni og Kjartani Henry Finnbogasyni sem lýsa herlegheitunum í kvöld en um fyrri leik Íslands og Kósovó er að ræða í umspilinu. Seinni leikurinn fer fram í Murcia á sunnudaginn kemur.

Það var nóg að ræða enda mikið gerst á milli landsliðsverkefna. Nýr þjálfari, nýr fyrirliði, sterkir leikmenn snúa til baka og ekki skafið af neinu í upphitun strákanna.

Það er uppselt á leik kvöldsins hér í Pristina sem tekur um fjórtán þúsund manns í sæti. Kjörið að hita upp fyrir kvöldið með því að horfa á upphitun strákanna á leikdegi sem sjá má hér fyrir neðan.

Leikur Kósovó og Íslands er sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 19.45 í kvöld.

Klippa: Leikdagur í Kósovó með Gumma Ben og Kjartani Henry

Tengdar fréttir

„Vil ekki vinna á kostnað þess að það verði engar fram­farir“

Spenningurinn hefur gert ræki­lega var um sig hjá lands­liðsþjálfaranum Arnari Gunn­laugs­syni sem stýrir sínum fyrsta leik með ís­lenska karla­lands­liðinu í fót­bolta í kvöld í fyrri leik liðsins gegn Kó­sovó í um­spili Þjóða­deildarinnar. Undir­búningurinn fyrir þennan fyrsta leik hefur verið knappur.

Mikael mjög leiður: „Var búinn að ætla honum stórt hlutverk"

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir Mikael Neville Anderson hafa verið mjög leiðan yfir því að geta ekki tekið þátt í komandi leikjum Íslands gegn Kósovó, í umspili Þjóðadeildarinnar, vegna meiðsla. Honum hafi verið ætlað stórt hlutverk.

Breyta ekki því sem virkar

Tindastóll hefur bætt við sig framherja fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna. Framherjanum Makala Woods er ætlað að leiða framlínu liðsins og tekur við keflinu af fyrrum skólafélaga.

„Búnar að vera dálítið skrýtnar vikur“

Ari Sigurpálsson er nýjasti atvinnumaður Íslands í fótbolta en hann samdi við Elfsborg í Svíþjóð í dag. Ari kveður Víking með söknuði en tímapunkturinn réttur að taka næsta skref á hans ferli.

„Myndi ekki einu sinni segja að þetta hafi verið draumur"

Orra Stein Óskars­son hefði vart geta órað fyrir því að hann fengi fyrir­liða­bandið hjá ís­lenska karla­lands­liðinu í fót­bolta. Bandið er hins vegar hans fyrir fyrstu lands­leiki Ís­lands undir stjórn Arnars Gunnlaugsonar, gegn Kó­sovó í um­spili fyrir B-deild Þjóða­deildarinnar. Fyrri leikur liðanna fer fram í kvöld.

Sjö leikmenn Íslands á hálum ís

Sjö leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta eru á hættusvæði fyrir leik kvöldsins gegn Kósovó í Pristina í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar. Fái þeir gult spjald í kvöld geta þeir ekki tekið þátt í seinni leiknum.

Er betra fyrir Ísland að vinna eða tapa?

Væri kannski best fyrir Ísland að tapa fyrir Kósovó í kvöld? Myndi það koma liðinu nær eða fjær EM 2028? Hvaða máli skiptir þetta umspil í Þjóðadeildinni eiginlega?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×