Skoðun

Um­hverfis­mál og efna­hags­mál – sterk já­kvæð tengsl

Vilhjálmur Hilmarsson skrifar

Í gær var opnað fyrir umsóknir í 1 milljarðs króna styrktarpott hjá Loftslags- og orkusjóði. Átakið sem um ræðir, „Jarðhiti jafnar leikinn“, er stærsta jarðhitaleitarátak sem ráðist hefur verið í á þessari öld. Markmiðið er skýrt; að hefja nýtingu jarðhita á þeim svæðum sem enn treysta á rafmagn eða olíu til húshitunar.

„Jarðhiti jafnar leikinn“ varpar ljósi á þau sterku jákvæðu tengsl sem geta verið milli umhverfismála og efnahagsmála á Íslandi. Ef vel tekst til mun átakið skila mörgum krónum til hagkerfisins, á móti hverri útgjaldakrónu skattgreiðenda.

80% hærra verð á Ísafirði en Seltjarnarnesi

Um 10% heimila og fjöldi fyrirtækja treysta enn á rafmagn eða olíu til húshitunar. Í byggðarlögum eins og Ísafirði, Bolungarvík, Patreksfirði, Seyðisfirði og í Vestmannaeyjum er enn notast við kynta hitaveitu, með tilheyrandi íþyngingu fyrir fólk og fyrirtæki.Á árinu 2024 var lægsta húshitunarverð á Ísafirði t.a.m. um 80% hærra en á Seltjarnarnesi.

Aðstöðumunur á Íslandi gagnvart verði á orku bitnar beint á hagvaxtargetu byggða. Hærri orkukostnaður skerðir ráðstöfunartekjur heimila, dregur úr fjárfestingargetu og veikir samkeppnishæfni fyrirtækja. Innflutningur á olíu eykst og dýrmætri raforku er sóað í húshitun - raforku sem að öðrum kosti gæti verið varið til orkuskipta.

1% sparnaður í niðurgreiðslum og átakið mun borga sig

Jarðhiti jafnar leikinn“ er fjárfesting sem getur skilað hagkerfinu tugum milljarða í ávinning til framtíðar. Það þarf ekki stórar breytingar til - jafnvel hóflegur árangur í formi 1% sparnaðar í niðurgreiðslum ríkisins nægir til að átakið standi undir sér.

Ríkissjóður greiðir árlega yfir 2,5 milljarða króna í niðurgreiðslur til húshitunar á rafhituðum svæðum. Sé gert ráð fyrir 1% árlegri hækkun í niðurgreiðslum og 3,5% ávöxtunarkröfu á opinbert fjármagn nemur þessi framtíðarskuldbinding 100 milljörðum króna á núvirði – beinn kostnaður fyrir skattgreiðendur. Takist að lækka þennan kostnað um aðeins 1% með jarðhitaleit og nýtingu, skilar verkefnið sér að fullu til baka til skattgreiðenda – milljarður í sparnað á móti þeim milljarði sem verkefnið kostar. Þar að auki mun losna um dýrmæta raforku og dregið verður úr þörf fyrir frekari virkjanaframkvæmdir.

Full ástæða til bjartsýni

„Jarðhiti jafnar leikinn er skýr áminning um að umhverfismál eru nátengd efnahag þjóðarinnar. Ef vel tekst til með átakinu verður mörgum krónum skilað til baka á móti hverri útgjaldakrónu. Það er full ástæða til bjartsýni en ekki þarf að líta lengra en til nýlegs dæmis frá Ísafirði. Þar hefur nýlega fundist rúmlega 50°C heitt vatn sem getur líklega hitað upp þéttbýlið með stuðningi varmadælu.

Við hjá Loftslags- og orkusjóði erum stolt af þessu mikilvæga verkefni. Með því að horfa til þjóðhagslegra hagkvæmra verkefna má leggja traustar efnahags- og umhverfisstoðir fyrir íslenskt samfélag til framtíðar.

Höfundur er formaður stjórnar Loftslags-og orkusjóðs




Skoðun

Sjá meira


×