Innlent

Næstu dagar ráða úr­slitum um fram­tíð Kvikmyndaskóla Ís­lands

Auðun Georg Ólafsson skrifar
Kennsla heldur áfram í Kvikmyndaskóla Íslands næstu daga en framtíðin er óráðin.
Kennsla heldur áfram í Kvikmyndaskóla Íslands næstu daga en framtíðin er óráðin. Vísir/Vilhelm

Þrátt fyrir að framtíð sé óráðin um rekstur Kvikmyndaskóla Íslands er samt hægt að sækja um nám á vef skólans. Opið er fyrir umsóknir fyrir haustönn 2025 sem hefst 14. ágúst. 

Í tölvupósti Hlínar til starfsfólks og kennara í gær kom fram að rekstrarfélag Kvikmyndaskólans væri farið í gjaldþrotameðferð. Um áfall væri að ræða en hún biðlaði til starfsfólks að halda starfseminni gangandi þótt margir eigi inni laun hjá félaginu. 

Á vef skólans er hægt að sækja um nám í leikstjórn og framleiðslu, skapandi tækni, handritsgerð, leikstjórn og leiklist. Nemendur eru núna um sextíu og halda áfram að mæta í tíma í dag og næstu daga. Fastráðnir starfsmenn eru fjórtán en lausráðnir kennarar sem sinna námskeiðum í verktöku skipta tugum að sögn Hlínar Jóhannesdóttur rektor skólans.

Ríkur vilji er sagður vera fyrir því að færa málefni skólans frá mennta- og barnamálaráðuneytinu yfir í háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytis. Hlín segir vilja hjá stjórnsýslunni á að leysa vanda skólans.

„Við sjáum hvernig þetta þróast. Það verða að koma einhver svör helst í dag svo við getum tekið þetta áfram. Ég ætla bara að leyfa mér að trúa því ekki að þessi góða stofnun fái ekki að halda áfram,“ segir Hlín.

Þetta snýst alltaf um peninga, skiptir þá miklu máli að vera inni í þessu ráðuneytinu eða hinu?

„Þessu kýs ég að svara ekki eins og er. Við teljum hér í þessari stofnun að við séum orðin þess bær að teljast með háskólanám og að við getum útskrifað tveggja ára diploma á háskólastigi. Við höfum farið í þannig úttektir. Námslán og fleiri hlutir tengjast því að við þurfum að teljast vera háskóli.“

Ertu bjartsýn á að þetta leysist?

„Við sjáum hvernig þetta þróast. Það verða að koma svör, helst í dag svo við getum tekið þetta áfram. Við erum bara að halda skólanum gangandi eins lengi og okkur er það unnt og spyrjum að því hvernig það fer en við erum að vænta þess að fá svör hvað verður gert fyrir vikulok.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×