Lífið

Ó­trú­leg heim­koma Búbba sem fauk alla leið í Kópa­vog

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þeir félagar Búbbi og Styrmir voru himinlifandi báðir tveir með endurfundina.
Þeir félagar Búbbi og Styrmir voru himinlifandi báðir tveir með endurfundina. Vísir/Bjarni

Sannkallað páskakraftaverk varð á dögunum þegar páfagaukurinn Búbbi fannst heill á húfi eftir að hafa fokið alla leið úr Hlíðarendahverfi og yfir á Kársnes í Kópavogi þar sem hann varð næstum ketti að bráð. Ellefu ára eigandi andar léttar.

Það leit ekki vel út síðastliðinn sunnudag þegar páfagaukurinn Búbbi slapp út af heimili sínu í Hlíðarendahverfi í Reykjavík. Hinn ellefu ára gamli Styrmir Pálsson segist þó aldrei hafa gefið upp vonina um að fuglinn myndi finnast.

Búbbi ekki hræddur við myndavélina

„Við eigum tvo hunda og við hleypum þeim alltaf út af svölunum svo á sunnudaginn þá gerðist þetta og þá ætluðum við að hleypa þeim út og þá var pabbi að opna og þá var hann hérna á stólnum og svo flaug hann út um svalirnar. Svo fór hann lengst upp í loftið, samt var svo mikill vindur, að hann fauk lengst út í buska,“ segir hinn ellefu ára gamli Styrmir.

Feðgarnir ruku þá út að leita að honum og leituðu í fimm klukkustundir án árangurs. Stjúpmamma Styrmis auglýsti eftir fuglinum á Facebook hópnum Týnd dýr og það borgaði sig heldur betur. Styrmir segist hafa verið himinlifandi þegar Búbbi fannst.

„Þá var ég ótrúlega glaður. Við vorum í Öskjuhlíðinni þarna þegar stjúpmamma mín hringdi í pabba minn af því að hún hafði sett inn á Facebook group að hann hefði fundist.“

Búbbi fannst uppi í tréi í garði á Kársnesi í Kópavogi og hafði því fokið rúma þrjá kílómetra. „Það var köttur fyrir neðan að reyna að ná honum, hann bara gargaði ótrúlega mikið, þannig einhver kona kom og náði í hann.“

Óhætt er að segja að Búbbi hafi aldrei verið betri þó ferðalagið hafi tekið á. Hann tók sitt uppáhalds lag fyrir fréttamann Stöðvar 2 sem Styrmir og pabbi hans kenndu honum. Sjón er sögu ríkari.

 „Hann er mjög vinalegur, hann er vinapáfagaukur eiginlega og er alltaf hjá manni. Ef maður fer út úr herberginu sem hann er í, þá eltir hann mann alltaf.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.