Skoðun

„Þessu er alltaf lofað fyrir kosningar en alltaf svikið“

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Titill þessarar greinar er setning sem ég heyrði oft þegar ég ræddi við eldra fólk um lífeyrismál og almannatryggingar í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga.

Við töldum það réttlætismál að stöðva þá miklu kjaragliðnun sem orðið hefur milli lífeyris og launa, tryggja að greiðslur TR hækki til jafns við launavísitölu (en þó aldrei minna en verðlag).

Nú – aðeins þremur mánuðum eftir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við stjórnartaumunum – hefur frumvarp verið afgreitt úr ríkisstjórn sem felur í sér nákvæmlega þetta: stöðvun kjaragliðnunar og bindingu lífeyrisgreiðslna við launavísitölu.

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra mun mæla fyrir málinu á Alþingi í vikunni og skapað hefur verið svigrúm til þessara hækkana í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Þar er líka gert ráð fyrir að frítekjumark ellilífeyris vegna lífeyrissjóðstekna hækki úr 25 þúsund krónum í 60 þúsund krónur á kjörtímabilinu. Nákvæmlega eins og við sögðumst ætla að gera.

Þetta eru mikilvægar kjarabætur fyrir eldra fólk þessa lands, sem á skilið að stjórnmálamenn standi við orð sín.

Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og jafnaðarmaður.




Skoðun

Sjá meira


×