Skoðun

Geðheil­brigðisþjónusta og fiskur – er ein­hver tenging?

Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fiskur hefur verið helsta útflutningsvara okkar Íslendinga í árhundruði. Mestu verðmætin lágu í flökunum. Stórum hluta af fiskinum var samt hent eins og fiskiroði og beinum. Við hentum humri og skötusel og kunnum eina aðferð við að elda saltfisk: sjóða í mauk og borða með hnoðmör og soðnum kartöflum.

Sjávarklasinn var stofnaður með það að markmiði að nýta afurðir fisksins betur og þannig hámarka virði og stuðla að meiri sjálfbærni og betri umgengni um auðlindina. Þetta var gert með því að leiða saman aðila úr ólíkum áttum með víðtæka reynslu og menntun. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og í dag eru t.d. ýmsar lækningavörur, snyrtivörur og tískuvörur framleiddar úr fiski og öll þekkjum við söguna af nýsköpunarfyrirtækinu Kerecis.

Fyrir mörgum okkar var hugmyndin að Geðráði, sem heilbrigðisráðuneytið setti á laggirnar fyrir nokkrum misserum, af svipuðum toga. Þar kæmu saman hagaðilar geðheilbrigðiskerfisins með það að markmiði að stuðla að framþróun og nýsköpun í geðheilbrigðisþjónustu og fjölga þeim leiðum sem væru í boði fyrir fólk í vanlíðan.

Geðheilbrigðisþjónustan yrði þannig notendamiðaðri og um leið meira valdeflandi. En Geðráðið hefur því miður ekki komist á þann stað. Það virðist ekki ná þessum sameiginlega takti eins og Sjávarklasanum hefur tekist. Roðinu í geðheilbrigðiskerfinu er enn þá hent eða í mesta lagi gefið köttum og humarinn þykir bæði ljótur og ólystugur.

Líkja má roði fisksins og fleiri hluta fisksins, sem ekki voru taldir nýtilegir til skamms tíma, við persónulega reynslu fólks. Í Sjávarklasanum urðu til milljarða verðmæti í hlutum sem áður var hent. Innan geðheilbrigðisins liggja hin ónýttu verðmæti m.a. í persónulegu þekkingu fólks á áföllum, að lifa með röddum, að búa við skynnæmni, mikilvægi allskyns sköpunar, menningar, og samfélagsþátttöku. Þekkingu sem sprottið hefur í grasrótinni og rannsóknum sem ekki tengjast hefðbundnum heilbrigðisstéttum og þeirra hugmyndum um hvað sé rétt og rangt.

Hefðbundin geðheilbrigðisþjónusta hefur um áratuga skeið aðeins nýtt fiskiflökin. Einstaklingar með reynslu, sem ekki hefur verið sátt við hefðbundnar aðferðir, hafa þurft að leita annað. Þeir hafa nú margir hverjir menntað sig í nálgun jafningastuðnings og hafa reynst öðrum, sem standa í sömu sporum og þeir gerðu, betur en hin hefðbundna hugsun kerfisins til þessa hefur boðið upp á. Þeir eru farnir að vinna roðið, þeir eru farnir að bjóða upp á grillaðan humar – þeir eru verðmætin sem eru beint fyrir framan nefið á okkur!

Höfundur er iðjuþjálfi og varaformaður Geðhjálpar.




Skoðun

Sjá meira


×