Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Smári Jökull Jónsson skrifar 16. apríl 2025 20:23 Dómarar eru byrjaðir að deila við Donald Trump og það ekki í fyrsta sinn. Vísir/AP Dómari í Bandaríkjunm segir tilefni til að ákæra ríkisstjórn Donald Trump fyrir að hunsa dómsúrskurð sem kveðinn var upp um miðjan síðasta mánuð. Málið er eitt af mörgum þar sem Trump er sakaður um að fara út fyrir valdsvið sitt.
Trump Bandaríkjaforseti gaf út forsetatilskipun um miðjan mars um handtöku og brottvísun meintra gengjamiðlima til El Salvador. Hann vísaði til laga frá árinu 1798 sem heimila brottflutning fólks frá ríkjum sem eru í stríði við Bandaríkin. Dómarinn James Boasberg í Washington úrskurðaði í kjölfarið að gera ætti hlé á brottflutningum og flytja þá, sem þegar hefðu verið fluttir úr landi, til baka. Eftir þeim úrskurði var hins vegar ekki farið. Í dag kvað sagði þessi sami dómari, sem Trump og samstarfsmenn hans hafa ítrekað talað niður í fjölmiðlum, síðan upp úrskurð um að næg sönnunargögn væru fyrir hendi til að kæra Trumpstjórnina fyrir að fara gegn áðurnefndum úrskurði. „Dómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun ríkisstjórnarinnar sýni fram á að hún hafi vísvitandi hunsað ákvörðun dómstólsins og að næg sönnunargögn séu fyrir hendi til að sanna glæpsamlegt athæfi,“ skrifar Boasberg meðal annars í 46 síðna löngum úrskurði sínum. Gæti kallað til sérstakan saksóknara Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ríkisstjórn Donald Trump kannar hversu langt hún kemst með að hunsa úrskurði dómstóla sem hún er ósammála. Í öðrum málum hafa dómarar hins vegar ekki komist langt áfram með málið og James Boasberg hefur nú. Stjórnin hefur hins vegar ítrekað lýst yfir að alríkisdómstólar skorti vald til að gefa út úrskurði sem hafi áhrif á innflytjendastefnu Trump. „Stjórnarskráin líður ekki að vísvitandi sé farið gegn ákvörðunum dómstóla, sérstaklega ekki þegar um ræðir aðila sem svarið hafa eið um að virða hana,“ skrifaði Boasberg ennfremur en hann var skipaður sem dómari á sínum tíma af Barack Ombama, fyrrum forseta Bandaríkjanna. Boasberg dómari ætlar nú að safna saman yfirlýsingum frá þeim aðilum sem tóku ákvarðanir um að snúa ekki við flugvélum sem flugu með innflytjendur til El Salvador þann 15. mars. Því næst mun hann kalla fólk fyrir dóm til vitnisburðar. Það er dómsmálaráðuneytið sem tekur ákvörðun um hvort embætismenn í stjórn Trump verði ákærðir. Boasberg dómari getur hins vegar einnig ráðið sérstakan saksóknara ákveði ráðuneytið ekki að aðhafast í málinu.
Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Innlent Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Erlent Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Innlent Maðurinn er laus úr haldi Innlent Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Innlent Fleiri fréttir Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Ísraelsher játar „fagleg mistök“ í máli hjálparstarfsmannanna Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Páfinn fordæmdi gyðingahatur og ástandið á Gasa Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður „Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Hæstiréttur frestar brottvísunum Trumps Lést í snjóflóði í Ölpunum Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Diddy ekki veittur aukafrestur Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Sjá meira