Skoðun

Gildi kær­leika og mann­úðar

Toshiki Toma skrifar

Mig langar að senda nokkrar línur um mál sem varðar Oscar Anders Florez Bocanegra, 17 ára dreng frá Kólumbíu.

Ég játa það fyrst að ég hafði ekki þekkt Oscar og mál hans þar til fréttirnar hermdu fyrir páska, og þekking mín um mál Oscars er öll úr fjölmiðlum.

Mér sýnist ýmislegt skrítið við lögfræðileg atriði í úrskurðinum, en ég ætla ekki að tala um lögfræðileg atriði þar sem aðrir eru sérfræðingar um það. Mig langar frekar að tala um gildi mannúðar og kærleika í máli Oscars og í samfélagi okkar.

„Með lögum skal land byggja,“ segjum við, og mér finnst það rétt. Ég virði að starfsfólk undir dómsmálayfirvöldum vinni daglega með þetta slagorð. En raunar byggist land eða samfélag ekki aðeins á lögum. Samfélag vantar fleiri hluti, meðal annars mannúð eða kærleika.

Við erum nýbúin að fagna páskahátíð, en hvað er kjarni páskanna? Það er náð Guðs sem vill bjarga mönnum úr vandsamlegum syndum. Gerði Guð það vegna þess að það hefði verið lögbundið? Nei. Guð gerði það vegna kærleika. Mannúð eða kærleiki er ekki bundinn við lög.

Hins vegar er heldur ekki hægt að byggja samfélag aðeins með kærleika. Samfélag vantar ákveðna skipulagningu til að halda öllu í röð og reglu. Þannig eru kærleiki og lagakerfi í sambýli hvort við annað í samfélagi. Samfélag þarfnast bæði lagakerfis og kærleika eða mannúðar.

Þessa dagana sjáum við mörg atvik um morð eða ofbeldi í kringum okkur. Slík atvik brjóta lög auðvitað, en samtímis brjóta þau einnig hjörtu okkar allra í samfélagi. Þegar slæmt atvik á sér stað verðum við, sem erum ekki bein fórnarlömb, særð líka. Og það sem græðir sársauka okkar er kærleiki annarra og mannúð.

Kærleikinn sem við sjáum hjá Svövu og Sonju í máli Oscars er samtímis orðinn kærleiki til okkar allra í samfélaginu og græðir sársauka okkar. Út af svona kærleika góðs fólks getum við haldið áfram í daglegu lífi okkar.

Ég skora á stjórnendur í dómsmálayfirvöldum að endurskoða mál Oscars einu sinni enn og reyna að horfa á stærri mynd málsins. Oscar er nýorðinn 17 ára saklaus drengur. Dvöl hans á Íslandi er ekkert álag fyrir íslenska ríkið og skaðar hagsmuni einskis.

Þvert á móti, er sú ákvörðun að vísa Oscari úr landi til Kólumbíu fyrirsjáanlega skaðleg. Ef við fordæmum það sem gerist núna í Gaza, verðum við að viðurkenna að ákvörðun um brottvísun Oscars er í eðli sínu af sama toga.

Þessi brottvísun eyðileggur ekki aðeins líf Oscars heldur líka hjörtu Svövu, Sonju og margra annarra Íslendinga sem vilja lifa með kærleika, sem vilja viðhalda Íslandi sem þjóð með mannúð.

Stöðvið brottvísun Oscars og leyfið honum að búa á Íslandi.

Höfundur er prestur innflytjenda og flóttafólks.




Skoðun

Sjá meira


×