Innlent

Engin hóp­nauðgun um páskana á borði lög­reglu

Árni Sæberg skrifar
Bylgja Hrönn Baldursdóttir er yfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Bylgja Hrönn Baldursdóttir er yfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Bjarni

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki borist tilkynning um hópnauðgun um páskana. Frásögn af ætlaðri hópnauðgun hóps hælisleitenda gagnvart sextán ára stúlku gengur nú sem eldur í sinu á Internetinu.

Umræða um kynferðisofbeldi og sér í lagi hópnauðganir hefur verið hávær í samfélaginu undanfarna daga. Um miðjan apríl greindi Vísir frá því að sex hópnauðganir hefðu komið inn á borð lögreglu það sem af er ári.

Þá hefur verið fjallað um þrjá menn sem eru til rannsóknar grunaðir um tvær hópnauðganir en ganga þrátt fyrir það lausir.

Ummæli á samfélagsmiðlum og frétt á Fréttinni

Nú síðast hefur hávær umræða myndast um ummæli konu nokkurrar sem fullyrðir að hópur níu hælisleitenda hafi numið sextán ára stúlku á brott um páskana, haldið henni fanginni í fjölda klukkustunda og skipst á að nauðga henni.

Auk þess að hafa gengið manna á milli á samfélagsmiðlum hafa ummæli konunnar orðið að fréttaefni á Fréttinni og Fréttatímanum. Í frétt Fréttarinnar er ætluð hópnauðgun reifuð og haft eftir heimildum að upptökur af frelsissviptingunni liggi fyrir hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Kannast ekki við málið

Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá kynferðisbrotadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir aftur á móti að ekkert mál sé til rannsóknar hjá embættinu sem geti passað við lýsingar á ætlaðri hópnauðgun um páskana. Engin tilkynning hafi borist um slíkt brot.


Tengdar fréttir

Um­ræða um gróf kyn­ferðis­brot eigi ekki að snúast um þjóðerni ger­enda

Réttargæslumaður tveggja kvenna sem hafa kært hóp manna fyrir nauðgun, segir útlit fyrir að brotin hafi verið skipulögð. Móðir annarrar kvennanna segir miður að fólk noti málið til að kynda undir útlendingahatur í stað þess að virða hugrekkið sem konurnar sýna með því að leita réttar síns og skila skömminni.

Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar

Fleiri en ein hópnauðgun er til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einn er í farbanni vegna meintrar hópnauðgunar í Reykjavík fyrir rúmum tveimur vikum. 

Grunur um hópnauðgun í Reykja­vík

Lögreglan hefur til rannsóknar meinta hópnauðgun í Reykjavík fyrir tveimur vikum. Þrír voru handteknir í tengslum við málið og sættu þeir gæsluvarðhaldi í fimm daga. Rannsókn stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×