Golf

Ís­lensk hjón fóru holu í höggi á sama hring

Sindri Sverrisson skrifar
Hólmfríður M. Bragadóttir og Páll Ingvarsson unnu ævintýralegt afrek á Þorláksvelli um helgina þegar þau fóru bæði holu í höggi.
Hólmfríður M. Bragadóttir og Páll Ingvarsson unnu ævintýralegt afrek á Þorláksvelli um helgina þegar þau fóru bæði holu í höggi. golfthor.is

Hjónin Hólmfríður M. Bragadóttir og Páll Ingvarsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur unnu ævintýralegt afrek á laugardaginn þegar þeim tókst að fara holu í höggi, á sama hringnum.

Þessu náðu hjónin á Þorláksvelli Golfklúbbs Þorlákshafnar sem fjallar um málið á Facebook-síðu sinni.

Hjónin fóru holu í höggi á sitt hvorri holunni. Páll var á undan og náði því á tíundu holu þegar hann sló 120 metra teighögg beint ofan í, skiljanlega við mikla kátínu.

„Við vorum einmitt að gantast með þetta, eftir höggið mitt, að það væri nú gaman ef Hólmfríður næði þessu líka,“ er haft eftir Páli og sú varð einmitt raunin.

Hólmfríður fór nefnilega holu í höggi á fimmtándu holunni sem líkt og sú tíunda er par 3 hola.

Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem Hólmfríður fer holu í höggi því hún hafði afrekað það þrisvar sinnum áður. Þau hjónin hafa stundað golf í um átján ár og er Hólmfríður með 22 í forgjöf og Páll 19.

Í færslu Golfklúbbs Þorlákshafnar er þess getið að talið sé að líkur á holu í höggi hjá hinum almenna kylfingi séu einn á móti tólf þúsund og að út frá því séu líkur á afreki Hólmfríðar og Páls um það bil einn á móti 5,7 milljónum. Miðað við það og fjölda árlegra golfhringja Þorláksvelli verði afrekið tæpast endurtekið á vellinum næstu aldirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×