Veður

Vindur, skúrir og kólnandi veður

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu fimm til fimmtán stig í dag.
Hiti verður á bilinu fimm til fimmtán stig í dag. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil hæð yfir Skotlandi og lægð við suðausturströnd Grænlandi valda suðvestanátt á landinu í dag og má búast við strekkingsvindi og skúrum. Yfirleitt verður þó þurrt norðaustanlands.

Á vef Veðurstofunnar segir að reikna má með hita á bilinu fimm til fimmtán stig, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi. Það kólnar þó heldur í kvöld.

„Í kvöld og nótt er orðið það svalt að úrkoma verður smám saman slyddukendari og él á fjallvegum, einkum norðvestantil.

Á morgun, föstudag verður ívið hvassari vindur með skúra- eða éljahryðjum nokkuð víða, þótt á láglendi verði þetta mest skúrir. Um norðaustanvert landið helst úrkomulaust að mestu. Þetta veðurlag helst síðan væntanlega áfram út morgundaginn til laugardagsmorguns og gera má ráð fyrir versnandi aksturskilyðrum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Ströndum og Norðvesturlandi, þar sem dimm él ganga yfir og hálkublettir myndast, einkum á fjallvegum.

Ökumenn, sem komnir eru á sumahjólbarða, eru því hvattir til að fresta ferðalögum milli landshluta ef mögulegt er meðan veðrið gengur yfir.

Um helgina dregur smám saman úr vindi og úrkomu og hiti fer að þokast upp á við á ný,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Suðvestan 10-18 m/s, skúrir eða él og hiti 2 til 7 stig. Þurrt að kalla norðaustanlands með hita að 12 stigum.

Á laugardag: Suðvestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él eða skúrir, en bjartviðri austanlands. Áfram fremur svalt í veðri.

Á sunnudag: Suðvestanátt, skýjað með köflum og úrkomulítið, en léttskýjað eystra. Hiti 7 til 13 stig yfir daginn.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt og víða skýjað með köflum. Hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×