Skoðun

Kann Jón Stein­dór ekki að reikna?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Evrópuhreyfinguna er munurinn á fjölda þeirra sem vilja ganga í Evrópusambandið og þeirra sem vilja það ekki orðinn fremur lítill eða 4,4%. Samkvæmt henni eru þannig 43% hlynnt því að gengið verði í sambandið en 38,6% andvíg. Í könnun Gallups í marz var munurinn mun meiri eða 8% og í marz 2022 var hann heil 14%. Á sama tíma hafa síðustu tvær kannanir Maskínu undanfarið hálft ár sýnt fleiri andvíga inngöngu en hlynnta ólíkt því sem áður var. Mögulega hefur Evrópuhreyfingin því verzlað við Gallup nú í stað Maskínu áður.

Fleira vekur athygli þegar nýja skoðanakönnunin er annars vegar. Þannig greindi Jón Steindór Valdimarsson, formaður Evrópuhreyfingarinnar og aðstoðarmaður fjármálaráðherra, frá niðurstöðum hennar í grein á Vísi fyrir helgi. Ekki er að sjá að hún hafi verið send á fjölmiðla sem hafa ekki fjallað um hana. Hvergi er í greininni samanburður við fyrri kannanir Gallups. Mjög líklega hefðu fjölmiðlar viljað birta þær upplýsingar. Þá segir Jón Steindór að sé aðeins miðað við þá sem tóku afstöðu með eða á móti séu 55% hlynnt inngöngu í Evrópusambandið. Rétta talan er þó 52,7%. Kann hann ekki að reikna?

Talsverður munur er jú á því hvort 55% séu hlynnt því að gengið verði í Evrópusambandið og 45% andvíg, og munurinn þá 10 prósentustig, eða hvort hlutföllin séu 52,7% og 47,3% og munurinn 5,4 prósentustig. Mögulega hefur verið um mistök að ræða í einföldum prósentureikningi en miðað við augljósa viðleitni að öðru leyti til þess að reyna að láta niðurstöðurnar líta betur út en þær gefa tilefni til, til dæmis með því að bera þær ekki saman við fyrri niðurstöður kannana Gallups, er það auðvitað alls ekki víst. Þróunin hefur í öllu falli ljóslega ekki verið í æskilegar áttir í þessum efnum að mati Jóns Steindórs.

Hins vegar er alltaf áhugavert þegar Evrópusambandssinnar kaupa skoðanakannanir sem kosta sitt þar sem fólk er spurt hvort það vilji ganga í Evrópusambandið í ljósi þess að því hefur löngum verið haldið fram í röðum þeirra að ekki væri hægt að svara þeirri spurningu nema samningur um inngöngu lægi fyrir. Fyrr vissi fólk í raun ekkert hvað það væri að tala um. Að vísu hefur það aðeins virzt eiga við þegar kannanir hafa sýnt fleiri andvíga inngöngu. Öðru máli hefur gegnt ef niðurstaðan hefur verið á hinn veginn. Sjálfir hafa þeir fyrir löngu gert upp hug sinn í þessum efnum. Þrátt fyrir samningsleysið.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).




Skoðun

Sjá meira


×