

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tíunda varð norðan Grindavíkur í nóvember 2024.

Geta ekki fylgst með hvort sóttkvíarbrjótar sæki gosstöðvarnar heim
Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki sérstaklega augun á því hvort fólk sem sækir gosstöðvarnar í Geldingadal heim eigi að vera í sóttkví.

Gasútstreymið „hættuleg og sterk blanda“ lífshættulegra gastegunda
„Nú er orðið ljóst að gasútstreymi frá eldstöðvunum er ekkert í líkingu við það sem við höfum séð áður. Þar er einstaklega hættuleg og sterk blanda CO2 og CO, sem eru lífshættuleg gös.“

Kærur hafa verið sendar út vegna náttúruspjalla við gosstöðvarnar
Umhverfisstofnun hefur sent út kærur vegna umhverfisspjalla í kring um gosstöðvarnar í Geldingadal. Starfsmenn Umhverfisstofnunar hafa orðið vitni að ítrekuðum akstri utan vega ásamt því að almenningur hefur sent inn ábendingar. Tvær kærur hafa þegar verið sendar til lögreglu.

Mögnuð myndbönd af hraunpollum í Geldingadal
Göngufólk í Geldingadal hefur verið ráðið frá því að standa á hrauni sem myndast hefur í Geldingadal. Sannarlega ekki að ástæðulausu.

Dorrit vill koma á fót tónlistarhátíð í Geldingadal
Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti auglýsir eftir nafni á hátíðina. Volstock er efst á blaði.

Hringadróttinssögudrónamyndband frá gossvæðinu
Ljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir fór að gossvæðinu í Geldingadal á dögunum og tók að sjálfsögðu dróna með í ferðina.

Gossvæðið í Geldingadal opið almenningi í dag: Eldgosið skipulagt sem langtímaverkefni hjá lögreglu
Gossvæðið í Geldingadal verður opið almenningi í dag. Lögreglan á Suðurnesjum býst við fjölmenni á gosstöðvarnar og horft er á verkefnið til lengri tíma. Skipulag yfirvalda snýr að því að tryggja öryggi á svæðinu.

Lilja Katrín segir súrrealískt að eiga eldgos
Lilja Katrín Gunnarsdóttir þúsundþjalasmiður er í þeim einstöku sporum að eiga eldgosið sem nú er í Geldingahrauni.

Eldur og ís mættust á gosstöðvunum
Náttúruöflin voru með veislu á Reykjanesskaganum í gær. Göngufólk fékk yfir sig töluverða snjóhríð á leið sinni að gosstöðvunum.

Göngufólki hleypt af stað inn í Geldingadal
Lörgeglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aðgengi að gosstöðvunum í Geldingadal. Veðurskilyrði fara batnandi og fylgist Veðurstofa Íslands með veðrinu í rauntíma þökk sé veðurstöð sem komið hefur verið upp í dalnum. Unnið er að því að efla rauntímamælingar á gasi við hraunjaðra.

Ekki ljóst fyrr en um ellefuleytið hvort gossvæðið verði opnað
Þeir sem höfðu áhuga á því að sækja gösstöðvarnar á Reykjanesi heim í dag þurfa að bíða eftir niðurstöðu samráðsfundar sem hefst klukkan tíu. Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar við Vísi.

Kröftugra rennsli í öðrum af litlu gígunum tveimur
Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hvorki hafi opnast ný sprunga á eldstöðvunum í Geldingadal né nýr gígur.

Gosið aldrei sést jafnvel frá Hafnarfirði
Eldgosið í Geldingadal sést óvenjuvel frá höfuðborginni í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir engin merki um að gosið hafi aukist. Skyggni og veðurskilyrði í kvöld séu einfaldlega betri en síðustu daga en þó geti verið að minni gígarnir tveir hafi sameinast í einn.

„Þarna var rassinn á mér gjörsamlega að grillast“
Sveinn Snorri Sighvatsson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga eftir að hann reif sig úr öllum fötunum og sat fyrir nakinn – beint fyrir framan glóandi hraunið í Geldingadal.

Aðsóknin alltof mikil miðað við skipulagið
Vel hefur gengið að rýma gossvæðið í Geldingadal nú síðdegis, að sögn aðalvarðstjóra á Suðurnesjum. Hann segir óvíst hvort svæðið verði opið almenningi á morgun en ljóst sé að ráðast verði í breytingar á skipulagi. Dagurinn í dag hafi ekki gengið upp.

Myndband af bílaröðinni svakalegu á Suðurstrandarvegi
Það er óhætt að segja að margir hafi ákveðið að skella sér að gosstöðvunum í Geldingadal í dag. Og flestir komu á bíl.

Ofan í auga gígsins
Hundruð ef ekki þúsundir lögðu leið sína til Grindavíkur í dag og áfram Suðurstrandarveginn í átt að gosstöðvunum. Göngufólk hefur upplifað sólskin og haglél en áfram kraumar í gígnum í Geldingadal.

Ótrúlegt að dróninn hafi lifað þetta af
Myndir og myndbönd frá gosinu á Reykjanesskaga hafa vakið mikla athygli síðustu daga, bæði hér á landi og langt út fyrir landsteinana. Björn Steinbekk hefur farið tvær ferðir til að mynda gosið.

Rýma Geldingadal: Gasmengun í dældum gæti nálgast lífshættuleg gildi
Nágrenni eldgossins í Geldingadal verður rýmt klukkan 17:00 í dag en Veðurstofan varar við því að hættulegar gastegundir geti safnast fyrir í lægðum og dældum þegar veður lægir. Styrkur gassins þar gæti verið lífshættulegur.

Bílastæðavandi við gönguleiðina: „Þetta er ekki Kringlan“
Björgunarsveitarmaður í svæðisstjórn björgunarsveitanna á Suðurnesjum mælir eindregið með því að fólk fari stikuðu leiðina að gosstöðvunum. Þannig sé best að ná til fólks ef eitthvað kemur upp á. Gríðarlegur bílastæðavandi blasir við í dag en hann biðlar til fólks að vanda sig við að leggja því viðbragðsaðilar verði alltaf að hafa greiða leið.

Fólk verður að yfirgefa svæðið í síðasta lagi klukkan fimm
Seinni partinn í dag og á morgun verður ekki óhætt að vera nálægt eldstöðvunum í Geldingadal vegna gasmengunar. Náttúruvársérfræðingur segir að fólk verði að hafa yfirgefið svæðið fyrir klukkan fimm, í síðasta lagi. Við eldgosið séu skaðlegar gastegundir og meðal annars ein sem fólk hvorki sér né finnur lykt af.

Frumstæðasta kvika sem komið hefur upp í 7000 ár
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir niðurstöður rannsókna á hraunsýnum úr eldgosinu í Geldingadal mjög athyglisverðar og spennandi.

Grípum gæsina meðan hún gefst
Gosið í Geldingadal kom kannski ekki mörgum á óvart. Það er sem betur fer lítið og virðist frekar meinlaust.

Löng bílaröð á slóðum gossins
Fallegt veður er á suðvesturhorninu í dag og greinilega fjölmargir sem ætlað að nota daginn til að heimsækja gösstöðvarnar við Fagradalsfjall.

Átti sinn langbesta leik í vetur eftir gönguferð upp að gosinu í Geldingadal
Bandaríski bakvörðurinn Calvin Burks var óstöðvandi í Grindavík í gær þegar topplið Keflavík rúllaði upp nágrönnum sínum.

Ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri part dags
Eins og veðurspáin er núna þá ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri partinn í dag en ekki er mælt með því að fólk sé mikið á ferðinni seinni partinn í dag, það er eftir klukkan fjögur, eða þá að leggja af stað seinni partinn að svæðinu vegna hættu á gasmengun.

Birta hitamynd af sólarhringsgömlu gosi
Veðurstofa Íslands birtir á Facebook-síðu sinni í morgun hitamynd af eldgosinu í Geldingadal sem tekin var rúmum sólarhring eftir að það hófst, það er á laugardagskvöldið 20. mars klukkan 22:38.

Fljúga yfir gosstöðvarnar til að meta umfang hraunsins og hraunflæðið
Eldgosið í Geldingadal er enn í fullum gangi. Á móti hefur dregið mjög úr skjálftavirkni á svæðinu sé miðað við það sem var í aðdraganda gossins en það hófst á föstudagskvöld.

„Ógleymanlegur morgunn“ ljósmyndarans Ara Magg við gosið
Ljósmyndarinn Ari Magg er á meðal þeirra sem lögðu leið sína að eldgosinu um helgina. Þó að gosið í Geldingadal sé ekki stórt þá nást af því stórkostlegar myndir.

Fyrsta gervihnattarmyndin sem sýnir gosið að degi til
Fyrsta gervihnattarmyndin sem tekin er að degi til af eldgosinu í Geldingadal, þar sem skýjahula er ekki fyrir gosinu, hefur verið birt.