Kolbeinn Höður bætti met Jóns Arnars Heimamaðurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson náði frábærum tíma í 100 m hlaupi karla á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum í morgun. Sport 27. júlí 2013 15:32
Hilmar með yfirburði í sleggjukasti Hilmar Örn Jónsson, ÍR, hefur tryggt sér sín fyrstu gullverðlaun á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum en hann kastaði lengst í sleggjukasti í morgun. Sport 27. júlí 2013 14:18
Arna Stefanía vann á nýju meti Arna Stefanía Guðmundsdóttir, ÍR, bætti í dag eigið aldursflokkamet í 100 m grindahlaupi á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Akureyri. Sport 27. júlí 2013 14:12
Bolt að nálgast fyrra form Usain Bolt hljóp á 9,85 sekúndum á Demantamóti sem fór fram á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum í gær. Sport 27. júlí 2013 11:30
Spjót Ásdísar brotnuðu á leið til Íslands Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir varð fyrir því óláni að missa öll sín helstu spjót á einu bretti. Sport 27. júlí 2013 08:00
"Ég er búin að vera með hnút í maganum“ Hafdís Sigurðardóttir sér fram á mikla baráttu við Anítu Hinriksdóttur um gullverðlaunin í 400 m hlaupi á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Akureyri um helgina. Flest okkar besta frjálsíþróttafólk verður með. Sport 27. júlí 2013 07:00
Matthildur sjöunda í langstökki Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir hafnaði í sjöunda sæti í langstökki á HM fatlaðra í Lyon í Frakklandi er hún stökk 3,87 m. Sport 26. júlí 2013 13:45
Heimsmeistarakast Helga | Myndband Helgi Sveinsson varð heimsmeistari í spjótkasti fatlaðra í Lyon í gær með glæsilegu mótsmeti er hann kastaði 50,98 m. Helgi keppti í fötlunarflokki F42. Sport 26. júlí 2013 09:38
Gefur góð fyrirheit Ríkissjóður Íslands ákvað að styrkja Afrekssjóð ÍSÍ vegna árangurs Anítu Hinriksdóttur um samtals átta milljónir fram yfir Ólympíuleikana 2016. Formaður sjóðsins er vongóður um meiri skilning ráðamanna á afreksíþróttum á Íslandi. Sport 26. júlí 2013 08:00
"Átti ekki marga vini á tímabili" Fjölþrautarkonan Arna Stefanía Guðmundsdóttir bætti árangur sinn í sjöþraut kvenna um tæp 200 stig á Evrópumeistaramóti nítján ára og yngri á Ítalíu á dögunum. Arna segir gaman að vera kominn á fullt eftir erfitt ár í fyrra þegar fólk gekk svo langt að afskrifa hana. Sport 26. júlí 2013 07:30
Helgi heimsmeistari í Lyon | Myndasyrpa Spjótkastarinn Helgi Sveinsson varð í kvöld heimsmeistari í flokki F42 á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Lyon. Helgi vann dramatískan níu sentimetra sigur á Ólympíumeistaranum frá Kína, Yanlong Fu. Sport 25. júlí 2013 22:45
"Þetta var algjör túrbódagur" "Það er ekki hægt að lýsa því hvernig mér líður. Þetta er einhver endaleysa í hausnum á mér. Ég veit ekkert hvað ég á að segja," segir nýkrýndur heimsmeistari í spjótakasti Helgi Sveinsson. Sport 25. júlí 2013 18:13
Helgi heimsmeistari í spjótkasti Helgi Sveinsson tryggði sér í dag heimsmeistaratitilinn í spjótkasti karla í flokki F42 á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Lyon í Frakkland. Sport 25. júlí 2013 17:57
Bolt: Ég er ekki á sterum Usain Bolt, sprettharðasti maður heims, segir að hann sé "hreinn“ og að hann hafi aldrei notað ólögleg lyf. Tveir af helstu keppinautum hans í 100 m hlaupi karla féllu nýverið á lyfjaprófum. Sport 25. júlí 2013 16:00
Aníta fékk mikið áhorf á netinu Áhorf á EM U19 í Rieti á Ítalíu mældist mjög hátt á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá evrópska frjálsíþróttasambandinu. Sport 25. júlí 2013 14:30
Ríkissjóður styrkir Anítu um átta milljónir Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun að styrkja Afrekssjóð ÍSÍ aukalega um tvær milljónir króna árlega fram að Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016. Sport 25. júlí 2013 12:26
Ólympíumeistari fær ekki einu sinni skóstyrk Greg Rutherford, Ólympíumeistari karla í langstökki, hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann landaði gullinu á heimavelli í London síðastliðið sumar. Sport 23. júlí 2013 17:30
Annað Íslandsmet hjá Matthildi Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir náði góðum árangri í 100 m hlaupi á HM fatlaðra sem nú stendur yfir í Lyon í Frakklandi. Sport 23. júlí 2013 10:36
Íslandsmetið hennar Matthildar Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir stórbætti Íslandsmet sitt í 200 metra hlaupi á HM fatlaðra í frjálsum íþróttum sem stendur yfir í Lyon. Sport 22. júlí 2013 17:30
Aníta fékk höfðinglegar móttökur Heims- og Evrópumeistaranum Anítu Hinriksdóttur var vel tekið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar hún kom hingað til lands í nótt. Sport 22. júlí 2013 09:41
Mesta efni sögunnar Hin 17 ára Aníta Hinriksdóttir náði þeim ótrúlega áfanga að verða heims- og Evrópumeistari í sömu vikunni. Næsta skref eru fullorðinsmótin en það er á dagskrá hjá hlauparanum á næsta ári. Aníta er mesta efni Íslands fyrr og síðar. Sport 22. júlí 2013 07:00
Aníta heims- og Evrópumeistari í sömu vikunni Hlauparinn Aníta Hinriksdóttir varð rétt í þessu Evrópumeistari í 800 metra hlaupi 19 ára og yngri í Rieti á Ítalíu eftir virkilega spennandi hlaup. Sport 20. júlí 2013 14:45
Hilmar Jónsson bætti Íslandsmetið í sleggjukasti Sleggjukastarinn efnilegi Hilmar Jónsson náði frábærum árangri á Evrópumóti undir 19 ára á Ítalíu í dag en hann kastaði 71,85 og hafnaði hann því í 6. sæti keppninnar. Sport 19. júlí 2013 22:00
Gengu útaf blaðamannafundi eftir spurningar um lyfjamisnotkun Hlaupararnir Carmelita Jeter frá Bandaríkjunum og Shelly-Ann Fraser-Pryce frá Jamaíku strunsuðu út af blaðamannafundi í Mónakó fyrr í dag þegar blaðamaður hóf að spyrja þær út í lyfjamisnotkun. Sport 18. júlí 2013 19:45
Aníta flaug auðveldlega áfram í úrslitin Hlauparinn Aníta Hinriksdóttir flaug auðveldlega áfram í úrslit í 800 metra hlaupi á Evrópumóti undir 19 ára en hún kom fyrst í mark á tímanum 2:02,62, langt á undan næstu hlaupurum. Sport 18. júlí 2013 14:09
Persónulegt met dugði ekki Hlauparinn Kolbeinn Höður Gunnarsson varð naumlega af sæti í undanúrslitum í 400 m hlaupi karla á Evrópumeistaramóti nítján ára og yngri á Ítalíu í morgun. Sport 18. júlí 2013 12:24
Aníta er yngst og fljótust Aníta Hinriksdóttir er ekki aðeins yngsti keppandinn af þeim sem skráðir eru til leiks í 800 m hlaupi á EM U19 á Rieti á Ítalíu í dag heldur einnig sá sem á besta tímann. Sport 18. júlí 2013 10:33
Hilmar í úrslit á persónulegu meti Kastarinn Hilmar Örn Jónsson byrjar vel á EM ungmenna sem hófst í Rieti á Ítalíu í morgun en hann tryggði sér þá sæti í úrslitum í sleggjukasti. Sport 18. júlí 2013 10:11
Í góðum höndum í íslensku umhverfi Aníta Hinriksdóttir, nýbakaður heimsmeistari ungmenna í 800 m hlaupi, gerir um helgina atlögu að Evrópumeistaratitli nítján ára og yngri. Sigurbjörn Árni Arngrímsson íþróttafræðingur hefur fylgst vel með Anítu og telur hana hafa fulla burði til að ná enn lengra. Sport 18. júlí 2013 10:00
Pistorius keppir ekki á HM fatlaðra Oscar Pistorius verður ekki á meðal þátttakenda á HM fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fara fram í Frakklandi um helgina. Sport 17. júlí 2013 11:45