Einar Daði annar besti tugþrautarkappi Íslandssögunnar | Fimmti í Kladno ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson stóð sig frábærlega á helgina á mjög sterku tugþrautarmóti í Kladno í Tékkland en hann fékk 7898 stig og endaði í fimmta sæti á mótinu. Einar Daði er nú kominn í hóp með Jóni Arnari Magnússyni en þeir eru nú þeir tveir Íslendingar sem hafa ná flestum stigum í einni tugþraut. Sport 10. júní 2012 15:28
Ásdís fimmta á Demantamótinu í New York Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni, keppti í dag á Demantamótinu í New York í Bandaríkjunum. Ásdís kastaði spjótinu lengst 58,72 metra sem er hennar lengsta kast í ár. Ásdís hafði áður kastað lengst 58,47 metra á þessu ári en það var á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Riga í síðustu viku. Sport 9. júní 2012 21:48
Einar Daði í þriðja sæti eftir fyrri dag í Kladno ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson er að standa sig vel á geysisterku alþjóðlegu tugþrautarmóti í Kladnó í Tékklandi. Hann fékk 4130 stig fyrir fyrstu fimm greinarnar sem er 143 stigum meira en í þraut hans á Ítalíu fyrr í vor. Einar Daði er í 3. sæti eftir fyrri daginn. Dmitriy Karpov frá Kazastan leiðir með 4248 stig en í öðru sæti er Adam Sebastian Helcelet með 4159 stig. Sport 9. júní 2012 18:03
Einar Daði keppir í Kladno Einar Daði Lárusson tugþrautarmaður úr ÍR keppir um helgina á stigamóti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins (IAAF) sem fram fer í Kladno í Tékklandi. Fyrir mánuði síðan náði Einar Daði þeim frábæra árangri að ná þriðja sæti á öðru slíku stigamóti sem fram fór á Ítalíu. Sport 8. júní 2012 17:00
Hafdís fljótust í sprettunum | Tvö unglingamet hjá Hilmari Erni Hafdís Sigurðardóttir úr Ungmennafélagi Akureyrar sigraði í 100 og 200 metra hlaupi kvenna á vormóti ÍR í frjálsum íþróttum í Laugardal í gærkvöldi. Sport 8. júní 2012 11:30
Bolt sigraði á næstbesta tíma ársins Usain Bolt kom fyrstur í mark í 100 m hlaupi á demantamótinu í Osló í kvöld en hann hljóp vegalengdina á 9,79 sekúndum - næstbesta tíma ársins. Sport 7. júní 2012 20:26
Óðinn Björn sjötti í Osló Óðinn Björn Þorsteinsson hafnaði í sjötta sæti í kúluvarpi á demantamóti í Osló sem fer þar fram í dag. Hann kastaði lengst 18,66 m. Sport 7. júní 2012 18:36
Óðinn fær að keppa á Demantamótinu á Bislett Kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson verður meðal keppanda á Demantamóti í Osló 7. júní næstkomandi en honum var boðið að keppa á mótinu sem fer fram á Bislett-leikvanginum. Óðinn er að undirbúa sig fyrir keppni á Ólympíuleikunum í London. Sport 31. maí 2012 22:47
Bolt að komast í Ólympíugírinn - hljóp 100 m á 9.76 sek.í kvöld Usain Bolt náði besta tíma ársins og áttunda besta tíma sögunnar þegar hann hljóp 100 metrana á 9.76 sekúndum á móti í Róm í kvöld. Bolt hljóp á miklu betri tíma en í síðustu viku þegar hann kom í mark á "aðeins" 10.04 sekúndum á móti í Ostrava. Sport 31. maí 2012 20:39
Ásdís náði fjórða sæti í Brasilíu Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir stendur í ströngu þessa dagana en um helgina keppti hún á móti í Rio de Janeiro í Brasilíu. Sport 21. maí 2012 10:34
Kári Steinn náði í brons á Norðurlandamóti Kári Steinn Karlsson varð þriðji í 10 km hlaupi á Norðurlandameistarmótinu sem fór fram í Kaupmannahöfn í gær. Sport 21. maí 2012 10:26
Geta unnið Usain Bolt ilm með góðum árangri á Mótaröð FRÍ Mótaröð FRÍ hefst á laugardaginn með keppni á Vormóti HSK á Selfossvelli en Mótaröð FRÍ er röð opinna frjálsíþróttamóta þar sem fremstu frjálsíþróttamenn landsins verða í eldlínunni og keppa jafnframt í stigakeppni eins og þekkist á Demantamótaröðinni hjá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu. Sport 17. maí 2012 20:00
Usain Bolt náði besta tíma ársins | 9,82 sek. Heims – og ólympíumethafinn í 100 metra hlaupi karla, Usain Bolt frá Jamaíku, virðist í góðu ástandi í aðdraganda Ólympíuleikana sem fram fara í London í sumar. Bolt náði besta tíma ársins í greininni í gær þegar hann hljóp á 9,82 sekúndum á móti sem fram fór í Kingston. Sport 9. maí 2012 10:45
Einar Daði bætti sinn besta árangur á Ítalíu Einar Daði Lárusson úr ÍR náði þriðja sæti á alþjóðlegu tugþrautarmóti á Ítalíu sem lauk nú síðdegis. Hann hlaut alls 7590 stig sem er hans besti árangur í keppni hingað til. Sport 6. maí 2012 17:03
Einar Daði í fimmta sæti á Ítalíu Einar Daði Lárusson, ÍR, er meðal keppenda á fyrsta tugþrautarmóti sumarseins sem fer fram í grennt við Brescia á Ítalíu. Sport 6. maí 2012 11:00
Einar Daði keppir í tugþraut á Ítalíu um helgina Einar Daði Lárusson, tugþrautarkappi úr ÍR, er á leiðinni til Ítalíu þar sem hann keppnir á stigamóti IAAF í tugþraut um helgina. Einar Daði mun þar reyna við lágmörkin inn á Ólympíuleikana í London og EM í Finnlandi. Sport 3. maí 2012 14:00
Tvöfaldur sigur Kenýa í London-maraþoninu | þrítug kona lést Wilson Kipsang frá Kenýa sigraði í karlaflokki í Lundúnarmaraþonhlaupinu sem fram fór um helgina og Mary Keitany, einnig frá Kenýa, sigraði í kvennaflokknum. Um 37.500 keppendur tóku þátt en þrítug kona lést ekki langt frá endamarkinu. Kipsang var rétt rúmlega tvær klukkstundir að hlaupa rúmlega 42 km., en hann kom í mark á tímanum 2:04.44. Keitany hljóp vegalengdina á 2:18.36 en þetta er annað árið í röð sem hún sigrar í þessu hlaupi. Sport 23. apríl 2012 11:15
Caster Semenya náði ÓL-lágmarki Caster Semenya, fyrrum heimsmeistari í 800 m hlaupi kvenna, hefur unnið sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Lundúnum eftir að hafa náð lágmarki í greininni í gær. Sport 21. apríl 2012 08:00
Kári Steinn og Aníta báru sigur úr býtum Víðavangshlaup ÍR fór fram í dag eins og ávallt á sumardaginn fyrsta en það fór nú fram í 97. sinn. Sport 19. apríl 2012 20:10
Frjálsíþróttaþingið ályktaði um kjörið á Íþróttamanni ársins Á 58. Frjálsíþróttaþingi, sem haldið var haldið á Selfossi sl. föstudag og laugardag var meðal annars samþykkt ályktun um kjör íþróttamanns ársins. Í greinargerð með ályktuninni segir m.a. að löngu tímabært sé að endurskoða aðkomu ÍSÍ að vali íþróttamanns ársins. Sport 20. mars 2012 15:00
Óðinn kastaði kúlunni 19,75 metra í gær Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarpari úr FH kastaði í gærkvöldi kúlunni 19,75 metra í gærkvöldi sem er einungis 25 cm frá Ólympíulágmarki en Óðinn var að kasta kúlunni innanhúss í Kaplakrika. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins. Sport 18. mars 2012 08:00
Að vera samferða sjálfum sér Fyrir nokkrum vikum bætti ég Íslandsmetið mitt í fimmtarþraut. Í kjölfarið átti ég samtal við eina bestu vinkonu mína sem vakti mig til umhugsunar og gaf mér innblástur í þennan pistil. Sport 17. mars 2012 08:00
Tek með mér alla skó Helga Margrét Þorsteinsdóttir er á leiðinni í 3 vikna æfingabúðir til Ástralíu. Innanhússtímabilið gekk vel og Helga horfir nú til þess að ná lágmarkinu inn á ÓL í London í sumar. Þessa dagana er það þó "hamurinn“ sem ræður ferðinni. Sport 14. mars 2012 06:00
Helga Margrét stórbætti árangur sinn í kúluvarpi Helga Margrét Þorsteinsdótti, sjöþrautarkonan úr Ármanni, bætti sig töluvert í kúluvarpi um helgina á alþjóðlegu móti, World Indoor Throwing, sem fram fór í Växjö í Svíþjóð um helgina. Helga kastaði 15.33 metra en besti árangur hennar í greininni var 15.01 metrar. Helga setti jafnframt Íslandsmet í flokki ungkvenna, 20-22 ára. Sport 12. mars 2012 12:15
Hrafnhild Eir nokkuð frá sínu besta Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir varð í fimmta sæti í sínum riðli í 60 metra hlaupi á HM í Istanbul í morgun. Hrafnhild hljóp á 7,97 sekúndum. Besti tími hennar er 7,69 sekúndur. Sport 10. mars 2012 12:46
Dobrynska setti heimsmet í fimmtarþraut kvenna | Fyrst yfir 5000 stig Úkraínska fimmtarþrautarkonan Natallia Dobrynska tryggði sér Heimsmeistaratitilinn í fimmtarþraut í kvöld á Heimsmeistaramóti innanhúss sem stendur nú yfir í Istanbul í Tyrklandi. Dobrynska setti nýtt heimsmet með því að ná í 5013 stig en hún háði harða keppni við breska heimsmeistarann Jessicu Ennis. Sport 9. mars 2012 18:15
Hélt að það væri þjófstart og hætti að hlaupa Bandaríski spretthlauparinn Kristi Castlin átti besta tíma ársins í 60 metra grindarhlaupi en fær þó ekki tækifæri til að vinna gull á Heimsmeistaramóti innanhúss í frjálsum íþróttum sem stendur nú yfir í Istanbul í Tyrklandi. Sport 9. mars 2012 15:45
Trausti úr leik á HM í frjálsum í Istanbúl Trausti Stefánsson er úr leik á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss sem fram fer í Istanbúl í Tyrklandi. Trausti, sem keppir fyrir FH, varð fjórði í sínum riðli á tímanum 48,86 sek. Íslandsmet hans er 48,23 sek, sem er frá því í lok janúar á þessu ári. Sport 9. mars 2012 11:30
Vann maraþon en var ekki skráður í hlaupið | Dæmdur úr leik Scott Downard missti sigurverðlaunin í Cowtown-maraþonhlaupinu um helgina eftir að upp komst að hann hafi hlaupið undir fölsku flaggi en hlaupið fór fram í Fort Worth í Texas í Bandaríkjunum. Sport 28. febrúar 2012 23:30
Usain Bolt æfir af krafti fyrir ÓL í London | 9,4 sek er markmiðið Usain Bolt, heimsmethafi í 100 og 200 metra spretthlaupum undirbýr sig af krafti fyrir titilvörnina í báðum greinunum fyrir Ólympíuleikana í London á þessu ári. Bolt hefur að undanförnu dvalið í borginni Kingston í heimalandinu Jamaíku við æfingar. Í viðtali við breska dagblaðið The Daily Mail segir Bolt að hann ætli sér að bæta sig verulega á ÓL í London. Sport 28. febrúar 2012 13:30