Afturelding, Fram og Valur með góða sigra Afturelding, Fram og Valur unnu góða sigra þegar Olís-deild karla í handbolta fór af stað á nýjan leik eftir langa pásu sökum HM í handbolta. Handbolti 4. febrúar 2025 21:15
Uppgjörið: FH - Stjarnan 29-29 | Jafnt í Krikanum FH og Stjarnan skildu jöfn í fyrstu umferðinni eftir að HM- og jólafríinu lauk. Leikurinn var jafn og spennandi og það var Hans Jörgen Ólafsson sem gerði síðasta mark leiksins og tryggði Stjörnunni stig. Uppgjör og viðtöl væntanleg. Handbolti 4. febrúar 2025 20:59
ÍBV vann í Grafarvogi ÍBV sótti sigur í Grafarvog þegar liðið mætti Fjölni í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Handbolti 4. febrúar 2025 20:03
Kurr í íþróttahreyfingunni vegna krafna Skattsins Lögmaður og fyrrverandi körfuknattleiksmaður segir nýjar leiðbeiningar Ríkisskattstjóra sem koma fram í bréfi til íþróttafélaga hafa valdið talsverðu kurri innan íþróttahreyfingarinnar. Hann telur auknar kröfur meðal annars geta leitt til þess að fólk veigri sér við því að gerast sjálfboðaliðar hjá sínum félögum. Innlent 4. febrúar 2025 16:50
Mourinho stoltur af landsliði Portúgals í handbolta Portúgalski knattspyrnuþjálfarinn Jose Mourinho lét ekki HM í handbolta fram hjá sér fara. Handbolti 4. febrúar 2025 16:16
Viktor Gísli næst bestur á HM Viktor Gísli Hallgrímsson var næst besti markvörður heimsmeistaramóts karla í handbolta samkvæmt tölfræðinni. Aðeins Daninn Emil Nielsen varði hlutfallslega meira. Handbolti 4. febrúar 2025 13:15
Meiddist á HM og missir af næstu leikjum Viggó Kristjánsson meiddist lítillega í hné á HM og þarf að bíða um stund eftir frumraun sinni með Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti 4. febrúar 2025 10:11
Trylltust þegar Dagur ávarpaði fjöldann: „Þið eruð klikkað fólk“ Dagur Sigurðsson flutti stutt og skýr skilaboð til þeirra tugþúsunda króatískra aðdáenda sem í gær hópuðust saman á torgi í miðborg Zagreb til að fagna Degi og hans mönnum eftir silfurverðlaunin á HM í handbolta. Handbolti 4. febrúar 2025 09:04
Dagur til bjargar hjá frönsku stórliði Handboltamaðurinn Dagur Gautason hefur samið við franska stórveldið Montpellier og kemur inn í liðið til að leysa af hólmi sænska landsliðsmanninn Lucas Pellas, sem sleit hásin. Handbolti 4. febrúar 2025 08:30
Skrif Víðis „vonbrigði“ en málinu lokið Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar og leikgreinandi fyrir Dag Sigurðsson hjá króatíska karlalandsliðinu í handbolta, segir skrif Víðis Sigurðssonar hafa slegið sig. Víðir hafi séð að sér og beðist afsökunar, sem Gunnar kann að meta, og málinu sé lokið af hans hálfu. Handbolti 4. febrúar 2025 08:03
Herþotur fylgdu króatíska liðinu til Zagreb Óhætt er að segja að Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska landsliðinu hafi fengið höfðinglegar móttökur í Zagreb í dag. Handbolti 3. febrúar 2025 17:02
Haukur sé einn okkar allra besti en þurfi stærra lið í stærri deild Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, segir landsliðsmanninn Hauk Þrastarson þurfa að finna sér lið í betri deild ætli hann sér að taka næsta skref á ferlinum. Handbolti 3. febrúar 2025 14:33
Forsetinn beinskeyttur aðspurður um framtíð Alfreðs í starfi Forseti þýska handknattleikssambandsins hefur tekið allan vafa varðandi framtíð Alfreðs Gíslasonar í starfi landsliðsþjálfara þýska karlalandsliðsins. Alfreð er þeirra maður. Handbolti 3. febrúar 2025 13:32
Finnst umræðan skrýtin: „Ódýr þvæla“ „Mér finnst sú umræða bara vera skrýtin ef ég á að vera alveg hreinskilinn,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, um gagnrýni sem beindist gegn HSÍ og heimferðarplönum af HM áður en að Ísland var úr leik á mótinu. Handbolti 3. febrúar 2025 11:03
Dagur heldur áfram: „Fannst ég endurfæddur“ „Það verður að hrósa sérstaklega þjálfaranum Degi Sigurðssyni,“ segir í grein króatíska miðilsins 24 Sata þar sem Dagur staðfestir að hann verði áfram þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta nú þegar HM er lokið. Handbolti 3. febrúar 2025 09:36
Snorri um áhyggjuefni: „Hægt að færa rök fyrir því að án hans værum við í veseni“ Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, segir alveg hægt að færa rök fyrir því að án Arons Pálmarssonar væri landsliðið í veseni. Aron átti frábært stórmót í síðasta mánuði og hefur Snorri áhyggjur af því hversu litla pressu aðrir leikmenn setji á að taka stöðu hans. Handbolti 3. febrúar 2025 08:32
Leikhlé Dags vakti athygli: „Til fjandans með þá alla“ Dagur Sigurðsson er að vonum vinsæll í Króatíu eftir að hafa stýrt handboltalandsliðinu til silfurverðlauna á HM. Síðasta leikhlé hans á mótinu virðist aðeins hafa ýtt undir vinsældirnar. Handbolti 3. febrúar 2025 07:30
Gidsel bætti 30 ára gamalt met sem sett var á Íslandi Mathias Gidsel endaði sem markahæsti leikmaður HM í handbolta sem lauk í gær með 74 mörk. Handbolti 3. febrúar 2025 07:00
Uppgjörið: Króatía - Danmörk 26-32 | Danir heimsmeistarar fjórða sinn í röð Danska karlalandsliðið í handbolta varð í kvöld heimsmeistari fjórða sinn í röð eftir öruggan sigur á Króatíu, 26-32. Strákarnir hans Dags Sigurðssonar urðu að gera sér silfrið að góðu. Handbolti 2. febrúar 2025 19:00
Frakkar tryggðu sér bronsið Frakkland varð í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í handbolta eftir 35-34 sigur á Portúgal í leiknum um þriðja sætið. Handbolti 2. febrúar 2025 15:45
Gidsel hefur búið til meira en hundrað mörk á þessu HM Danir brunuðu í fjórða úrslitaleik heimsmeistaramótsins í röð með sannfærandi þrettán marka sigri á Portúgal í undanúrslitunum. Næst á dagskrá er úrslitaleikur á móti Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í króastíska landsliðinu í dag. Handbolti 2. febrúar 2025 15:31
Danska landsliðið hefur ekki tapað leik á HM í átta ár Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska landsliðinu fá það krefjandi verkefni í dag að verða fyrsta liðið frá árinu 2017 til að vinna Dani á heimsmeistaramóti. Handbolti 2. febrúar 2025 12:15
Snorri Steinn um Gunna Magg málið: „Það er kjánaskapur að halda því fram“ Eitt heitasta málið eftir heimsmeistaramótið var aðkoma Gunnars Magnússonar að undirbúningi Króatar fyrir leikinn afdrifaríka á móti Íslandi. Íslenski landsliðsþjálfarinn hefur sjálfur skoðun á þeirri umræðu. Handbolti 2. febrúar 2025 11:32
Snorri Steinn heldur með Degi: „Ég vona innilega að hann vinni“ Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur ekki getað horft á HM eftir að Ísland datt úr keppni en íslenski landsliðsþjálfarinn segist ætla horfa á úrslitaleikinn á HM í dag og heldur með stórvini sínum Degi Sigurðssyni. Handbolti 2. febrúar 2025 09:00
FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Handknattleiksdeild FH hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta. Handbolti 1. febrúar 2025 22:47
Sigurganga Metzingen stöðvuð í Íslendingaslag Eftir fjóra sigurleiki í röð máttu Sandra Erlingsdóttir og stöllur hennar í Metzingen þola 11 marka tap gegn Íslendingaliði Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 1. febrúar 2025 19:54
Dana markahæst í tíunda sigrinum í röð Íslenska landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir og félagar hennar í Volda héldu sigurgöngu sinni áfram í dag. Handbolti 1. febrúar 2025 16:23
Haukakonur færðu Eyjastúlkum níunda tapið í röð Haukar unnu þriggja marka sigur á ÍBV, 32-29, í fjórtándu umferð Olís deild kvenna í handbolta í dag. Handbolti 1. febrúar 2025 15:33
Grein Morgunblaðsins til skammar Geir Sveinsson, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir skrif Víðis Sigurðssonar, íþróttablaðamanns hjá Morgunblaðinu, um Gunnar Magnússon til skammar. Morgunblaðið skuldi Gunnari afsökunarbeiðni. Sport 1. febrúar 2025 15:26
Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Grein Víðis Sigurðssonar í Morgunblaðinu um aðkomu Gunnars Magnússonar að leik Íslands og Króatíu á HM kom mér á óvart. Að mála Gunnar sem einhvers konar föðurlandssvikara er í besta falli ósanngjarnt og til skammar. Skoðun 1. febrúar 2025 15:23