Gæsluvarðhald yfir bandarískri körfuboltastjörnu í Rússlandi framlengt Dómstóll í Moskvu hefur framlengt gæsluvarðhald yfir bandarísku körfuboltastjörnunni Brittney Griner þar til 19. mars næstkomandi. Griner var handtekin fyrir mánuði síðan á flugvelli í Rússlandi og ekkert til hennar sést eða frá henni heyrst síðan. Körfubolti 17. mars 2022 13:55
Kósovó biðlar til Bandaríkjanna um inngöngu í NATO Vjosa Osmani forseti Kósovó hefur beðið Joe Biden Bandaríkjaforseta um að beita sér fyrir því innan Atlantshafsbandalagsins að ríki hennar fái inngöngu í varnarbandalagið. Erlent 17. mars 2022 12:56
Enginn veit hvar ein besta körfuboltakona heims er niðurkomin Bandaríska körfuboltakonan Brittney Griner var handtekin á flugvelli í Rússlandi fyrir mánuði síðan. Síðan veit enginn hvað varð um hana. Körfubolti 17. mars 2022 12:01
Putin líkir meðferð Vesturlanda á Rússum við ofsóknir nasista gegn gyðingum Vonir eru bundnar við að fjöldi manns hafi lifað af sprengjuárás Rússa á leikhús í Mariupol í gær þar sem um þúsund manns höfðu leitað skjóls í loftvarnabyrgi í kjallara hússins. Úkraínuforseti segir markmið viðræðna við Rússa að átökum linni og fullveldi Úkraínu verði tryggt. Rússlandsforseti líkir meðhöndlun Vesturlanda á Rússum við ofsóknir nasista gegn gyðingum. Erlent 17. mars 2022 12:00
Telur afstöðu RÚV til mannréttindabrota tækifærissinnaða Hjálmtýr Heiðdal hefur, fyrir hönd stjórnar Félagsins Ísland – Palestína, sent bréf til Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra þar sem hann krefst svara við því hvers vegna RÚV þyki nú sjálfgefið að Rússum sé vísað úr Eurovision en fráleitt áður að stíga slíkt skref þegar Ísrael átti í hlut. Innlent 17. mars 2022 11:15
„Stríð er það versta sem til er“ Eins og aðrir Úkraínumenn hefur Igor Kopyshynskyi, handboltamaður í Haukum, miklar áhyggjur af stöðunni þar í landi. Hann hefur hafið söfnun til styrktar börnum í Úkraínu. Ef ekki hefði verið fyrir símtal frá Haukum hefði hann mögulega verið í Úkraínu þegar stríðið þar braust út. Handbolti 17. mars 2022 10:00
Vaktin: Segja hundruð þúsunda hafa snúið aftur til Úkraínu Viðræður Úkraínumanna og Rússa halda áfram í dag. Báðir aðilar virtust nokkuð vongóðir í gær en Vladimir Pútín var hins vegar enn vígreifur og talaði um að „afnasistavæða“ Úkraínu. Erlent 17. mars 2022 06:52
Enn óvíst um fjölda látinna eftir árásir Rússa á leikhús og sundlaugarbyggingu Enn er óvíst um afdrif um 400 Úkraínumanna eftir að Rússar gerðu árásir á leikhús og sundlaugabyggingu í Maríupól, þar sem íbúar höfðu leitað skjóls. Myndir og myndskeið sýna rústir leikhússins en upplýsingar um fjölda látinna liggja ekki fyrir. Erlent 17. mars 2022 06:31
Úkraínsk börn á leið til Íslands strandaglópar í Varsjá Úkraínsk börn og mæður þeirra, sem voru á leið til Íslands, urðu eftir á flugvellinum í Varsjá í Póllandi vegna skorts á vegabréfum. Helga Vala Helgadóttir segir í pistli á Facebook að stjórnvöld hefðu átt að laga vandamálið í síðustu viku. Innlent 16. mars 2022 23:55
Segir fréttir um gang friðarviðræðna áhugaverðar og vekja bjartsýni Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra í Moskvu, var gestur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld og ræddi þar stríðsátökin í Úkraínu. Hann ræddi meðal annars yfirstandandi friðarviðræður á milli Rússa og Úkraínumanna. Innlent 16. mars 2022 23:01
Martröðin í Mariupol: Rússar valda dauða, hungri og örvæntingu með látlausum sprengjuárásum Nú þegar þrjár vikur eru liðnar frá innrás Rússa í Úkraínu hefur mannfallið, eyðileggingin og hryllingurinn hvergi verið meiri en í hafnarborginni Mariupol. Þar hafa rúmlega fjögur hundruð þúsund manns verið innikróaðir nánast frá upphafi stríðsins, sætt stöðugum loftárásum og nú vofir hungurvofan yfir íbúunum. Við vörum sterklega við myndefninu sem fylgir þessari frétt. Erlent 16. mars 2022 19:28
Rússar sprengdu leikhús í Maríupól sem notað var sem neyðarskýli Sprengja lenti á leikhúsi í Maríupól í dag sem notað hefur verið sem neyðarskýli íbúa borgarinnar. Óttast er að mannfall sé mikið. Erlent 16. mars 2022 17:52
Vaktin: Rússar brjálaðir eftir að Biden kallaði Pútín stríðsglæpamann Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, mun ávarpa bandaríska þingið í dag og þess er vænst að hann muni enn og aftur biðla til Vesturveldanna að „loka lofthelginni“ yfir Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í allan dag. Erlent 16. mars 2022 16:50
237 hafa sótt um vernd hér á landi frá því að átökin hófust Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst fyrir tæplega þremur vikum hafa 237 einstaklingar með úkraínskt ríkisfang komið til Íslands og sótt um vernd. Miðað við þann fjölda er áætlað að 280 sæki um vernd það sem eftir er mars. Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu frá landamærasviði ríkislögreglustjóra. Innlent 16. mars 2022 15:59
Fyrrverandi herforingi segir næstu daga skipta öllu máli Rússar eiga í vandræðum. Þá skortir skotfæri og mannafla og geta ekki viðhaldið árásum sínum til lengdar. Hvernig innrás þeirra í Úkraínu heppnast veltur á gengi þeirra næstu tíu daga. Erlent 16. mars 2022 15:30
„Að vera leiðtogi heimsins þýðir að vera leiðtogi friðar“ „Úkraínska fólkið er ekki eingöngu að verja Úkraínu. Við erum að verja gildi Evrópu og gildi heimsins.“ Erlent 16. mars 2022 14:40
Innrásin í Úkraínu gæti valdið hungursneyð í þróunarríkjum Innrás Rússa í Úkraínu hefur kostað þúsundir mannslífa, flótta milljóna manna og valdið miklu eignatjóni, en afleiðingarnar teygja sig um allan heim og gætu valdið hungursneyð í þróunarríkjum. Heimsmarkmiðin 16. mars 2022 14:10
Bein útsending: „Stríð, mannréttindi og lýðræði“ Félag stjórnmálafræðinga, Alþjóðamálastofnun HÍ og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála munu standa fyrir hádegisfundi undir yfirskriftinni „Stríð, mannréttindi og lýðræði: Hvaða máli skiptir alþjóðasamvinna?“ í dag klukkan 12 í Öskju 132 í Háskóla Íslands. Innlent 16. mars 2022 11:30
Hvít-rússnesk stjarna brotnaði saman í miðjum leik: „Þykir þetta svo leiðinlegt“ Victoria Azarenka er ein stærsta íþróttastjarna Hvíta-Rússlands enda fyrrum besta tenniskona heims og með tvo risatitla á bakinu. Hún var í aðalhlutverki í undarlegu atviki í móti í Kaliforníu í vikunni. Sport 16. mars 2022 11:01
Skoraði Pútín á hólm, kallaði yfirmann Roscosmos fávita og grínaðist í harðstjóra Téténíu Auðjöfurinn Elon Musk, ríkasti maður heims og eigandi SpaceX og Tesla, greip nýverið til Twitter og skoraði Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á hólm. Það var á mánudaginn og „taggaði“ Musk Kreml í færslu sinni. Í kjölfar þess hefur hann átt í orðaskiptum við yfirmann Geimvísindastofnunar Rússlands og harðstjóra Téténíu. Lífið 16. mars 2022 10:47
Leikmaður Hauka stendur fyrir söfnun fyrir börn í Úkraínu Ihor Kopyshynskyi, úkraínskur leikmaður Hauka í handbolta, stendur fyrir söfnun fyrir börn í heimalandinu. Handbolti 16. mars 2022 09:42
Úr leyniþjónustunni í forsetahöllina Á gamlársdag árið 1999, átta árum eftir fall Sovétríkjanna, tilkynnti þáverandi forseti rússneska sambandsríkisins, Boris Jeltsín, að hann hygðist skyndilega stíga til hliðar. Eftirmaður hans birtist í sjónvarpinu rétt fyrir miðnætti til að ávarpa þjóð sína en hann hafði fæstum verið kunnur þar til fimm mánuðum áður, í ágúst 1999, þegar hann hafði verið skipaður forsætisráðherra af Jeltsín. Erlent 16. mars 2022 09:01
Telja mikilvægt að huga að netöryggi við núverandi aðstæður Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur mikilvægt að hugað sé að netöryggi landsins og rekstraröryggi fjarskipta- og fjármálainnviða her á landi. Nefndin metur stöðu fjármálastöðugleika góða. Viðskipti innlent 16. mars 2022 08:47
Selenskí segir samningamenn eygja möguleika á málamiðlun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir nú möguleika á málamiðlun eftir viðræður fulltrúa Úkraínu og Rússlands í gær. Ekkert lát er hins vegar á árásum Rússa og þá hafa fregnir borist af grimmilegum aftökum almennra borgara. Erlent 16. mars 2022 06:21
Hver Pólverji reiðubúinn að taka Úkraínumenn inn á heimili sitt Flóttamannastraumurinn frá Úkraínu undanfarnar tæpar þrjár vikur hefur mætt mest á Pólverjum. Sendiherra þeirra á Íslandi segir pólsku þjóðina ætla að standa með Úkraínumönnum gegn ofbeldi Putins allt þar til Úkraínumenn vinni stríðið. Erlent 15. mars 2022 21:48
Segja Rússa halda mörg hundruð manns í gíslingu á spítala í Mariupol Rússneskir hermenn eru sagðir halda um fjögur hundruð manns í gíslingu á sjúkrahúsi í Mariupol. Sergei Orlov aðstoðarborgarstjóri segir hermennina hafa rutt sér leið inn í sjúkrahúsið og tekið fólk þar og íbúa í nærliggjandi húsum í gíslingu. Erlent 15. mars 2022 21:27
Þúsundir Úkraínumanna snúa til baka í stríðið Þúsundir Úkraínumanna hafa snúið til baka til heimalandsins til að deila örlögum með fjölskyldu sinni og eða taka þátt í stríðinu. Enn hefur ekki tekist að koma hjálpargögnum til stríðshrjáðra í Mariupol og Rússar hertu árásir sínar á Kænugarð síðast liðna nótt. Erlent 15. mars 2022 19:21
Rússar skutu almennan borgara sem hafði hendur á lofti til bana Þann 7. mars síðastliðinn skutu rússneskir hermenn almennan úkraínskan borgara til bana þrátt fyrir að hann hafi reitt hendur á loft. Erlent 15. mars 2022 18:01
Katrín segir það hafa verið mjög áhrifamikið að heyra beint í Selenskí Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í Lundúnum í dag með leiðtogum Norðurlanda, Eystrasaltsríkja, Bretlands og Hollands sem mynda Sameiginlegu viðbragðssveitina (e. Joint Expeditionary Force) um stöðuna í Úkraínu. Innlent 15. mars 2022 17:00
Vaktin: „Með svona bandamenn munum við vinna þetta stríð“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur hvatt rússneska hermenn til að gefast upp. Sagði hann í ávarpi seint í gærkvöldi að komið yrði fram við þá eins og manneskjur, ólíkt því hvernig rússneski herinn hefði komið fram við Úkraínumenn. Erlent 15. mars 2022 16:25