

Íslenska krónan
Allt er viðkemur ríkisgjaldmiðlinum.

Íslenskur seðill seldist á 1,2 milljónir króna
Á vefnum segir að seðillinn sé íslenskur ríkisdalur frá árinu 1798, prentaður aftan á danskan kúrantdal.

Uppsagnir og sala á rútum hjá Gray Line vegna samdráttar í ferðaþjónustu
Gray Line, eitt stærsta rútufyrirtæki landsins, hefur ráðist í endurskipulagningu á rekstri á síðustu mánuðum með því að fækka starfsmönnum um þrjátíu og tvo og selja átta rútur. Stjórnarformaður fyrirtækisins segir að það sé klárlega samdráttur í íslenskri ferðaþjónustu því kaupmáttur erlendra ferðamanna á Íslandi hafi minnkað vegna styrkingar íslensku krónunnar.

Verðhrun á olíu lengi að skila sér til neytenda
Olíuverð hefur hrunið að undanförnu og stendur tunnan af Brent-hráolíu núna í 55 dollurum. Verðið hefur lækkað um 35 prósent frá því í byrjun október þegar tunnan kostaði 85 dollara. Að sögn séfræðings hjá Íslandsbanka tekur dálítinn tíma fyrir lækkunina að skila sér í lægra bensínverði hjá neytendum.

Munu verja krónuna gegn útstreymi aflandskróna
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að það þurfi ekki að óttast að gengi krónu veikist samhliða væntanlegu frumvarpi ríkisstjórnarinnar um losun aflandskróna.

Krónan veikist
Gengi íslensku krónunnar veiktist nokkuð myndarlega í dag.

Raunvextir enn lágir á Íslandi í sögulegu samhengi
Seðlabankastjóri segir raunvexti enn lága á Íslandi í sögulegu samhengi þrátt fyrir vaxtahækkunina í gær en þeir eru núna rúmlega eitt prósent miðað við forsendur sem Seðlabankinn styðst við. Könnun Seðlabankans meðal starfsmanna á fjármálamarkaði leiddi í ljós flestir þeirra bjuggust við vaxtahækkun.

Gengi hinnar sveiflukenndu krónu vart haggast þrátt fyrir stórar fréttir úr viðskiptalífinu
Sveiflur á gengi krónunnar í október voru miklar en gengið hefur verið stöðugt það sem af er nóvembermánuði.

Formaður VR segir Seðlabankann lýsa yfir stríði við verkalýðshreyfinguna
Miðstjórn Alþýðusambandsins lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að hækka stýrivexti.

Seðlabankinn reiknar með 3 prósenta verðbólgu strax í desember
Horfur eru á að verðbólga haldi áfram að aukast og býst Seðlabankinn við þriggja prósenta verðbólgu strax í desember.

Seðlabankinn slakar á innflæðishöftum
Seðlabanki Íslands ákvað í dag að slaka á innflæðishöftunum svokölluðu með breytingu á reglum um bindiskyldu vegna innstreymis erlends gjaldeyris. Breytingarnar fela í sér lækkun á bindingarhlutfalli reglnanna úr 40% í 20%.

Forstjóri Marels segir að þeir sem tapi mest á krónunni þurfi að leiða umræðuna um hana
Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marels segir að þeir sem hafi helst hagsmuna að gæta vegna krónunnar, heimilin í landinu og lítil og meðalstór fyrirtæki, þurfi að leiða umræðu um gjaldmiðils- og peningamál því það sé dýrast fyrir þessa hópa að halda í krónuna.

Fregnir af dauða hagkerfisins stórlega ýktar
Þrátt fyrir áskoranir framundan, lækkun krónunnar að undanförnu og að útlit sé fyrir hægan vöxt hagkerfisins á næsta ári er óþarfi að örvænta, að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka.

Segja komið að vatnaskilum í hagsveiflunni
Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að verulega muni hægja á hagvexti á næstu árum eftir kröftugan vöxt undanfarin ár.

Bein útsending: Ný hagspá Landsbankans kynnt í Hörpu
Ný hagspá Landsbankans kynnt fyrir fullum sal í Hörpu. Drífa Snædal, Bjarni Benediktsson og Halldór Benjamín eru meðal þeirra sem taka þátt í pallborðsumræðu.

Kauphöllin eldrauð og áfram veikist krónan
Úrvalsvísitalan hefur fallið um 1,52% það sem af er degi og gengi krónunnar hefur veikst.

„Það er að snöggkólna í hagkerfinu“
Dökkar horfur eru teiknaðar upp í nýrri hagspá greiningardeildar Arion banka fram til ársins 2021 sem birt var í dag. Greiningardeildin spáir því að verðbólga fari yfir 4 prósent strax á næsta ári. Að hennar mati eru helstu áhættuþættir í hagkerfinu annars vegar spenna á vinnumarkaði og hins vegar staða ferðaþjónustunnar.

Stýrivextir hækka, krónan veikist og atvinnuleysi eykst
Eftir sterkan fyrri árshelming 2018 er útlit fyrir að hagkerfið sé að snöggkólna.

Ekki óeðlilegt að Seðlabankinn grípi inn í gjaldeyrismarkaðinn
Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka, segir ekki óeðlilegt að Seðlabanki Íslands grípi inn í gjaldeyrismarkaðinn þegar eins konar "spírall“ skapast á markaðinum, líkt og gerðist á miðvikudag.

Aldrei heppnast að óska eftir miklum kjarabótum við enda hagsveiflunnar
Ásgeir Jónsson dósent í hagfræði við Háskóla Íslands segir að það hafi aldrei heppnast hjá verkalýðsfélögum að fara fram á miklar kjarabætur á þeim tímapunkti þegar hagkerfið er á enda hagsveiflunnar og á leið í niðursveiflu, eins og staðan sé núna.

Veiking krónunnar endurspeglar lakari væntingar
Aðalástæða fyrir veikingu krónunnar að undaförnu er endurmat á efnahagshorfunum á Íslandi en væntingar benda til þess að hægja muni á hjólum atvinnulífsins á næstunni. Þetta segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri.

Veiking því einhverjir Íslendingar hafa komið sparnaði í skjól
Íslenska krónan er búin að veikjast um tæplega tíu prósent á síðustu þremur mánuðum og sjö og hálft prósent á síðastliðnum mánuði. Útlendingar hafa ekki misst trú á Íslandi heldur skýrist veikingin meðal annars af því að Íslendingar hafa fært krónueignir sínar í gjaldeyri að sögn aðalhagfræðings Landsbankans.

Krónan spyrnir við fótum
Eftir eftirtektarverða lækkunarhrinu undanfarnar vikur hefur gengi íslensku krónunnar styrkst í dag.

Krónan ekki veikari í meira en tvö ár
Hagfræðingar segja tíðindi af vinnumarkaði vega þungt í gengisveikingu krónunnar síðustu daga. Forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands segir að ótti sé um að kjarasamningar fari úr böndunum í vetur.

Seðlabankinn seldi erlendan gjaldeyri fyrir 1,2 milljarða króna
Í inngripi Seðlabanka Íslands á gjaldeyrismarkaði á þriðjudag fólust sala á erlendum gjaldeyri fyrir um 1,2 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í hagtölum sem Seðlabankinn birti á vef sínum í gær.

Segir erfiða daga krónunnar mögulega vegna WOW Air
Krónan hefur lækkað á hverjum einasta degi frá mánaðamótum en veikingin nemur 5,3 prósentum gagnvart evru.

Dýrkeypt spaug
Eftir verslunarmannahelgina er algengt að landsmenn hugi að daglegri rútínu og undirbúningi fyrir veturinn.

Efndir, ekki nefndir
Góð lífsgæði þjóða verða til á grundvelli verðmætasköpunar.

Rekstur Mannvits reyndist erfiður vegna hærri launa og gengisþróunar
Hagnaður verkfræðistofunnar Mannvits dróst saman um 307 milljónir króna og var 32 milljónir króna í fyrra.

Íslensku trixin
Það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn að vitna í fleyg orð Laxness um að Íslendingar "... verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarnamáls“, en því miður eiga þau allt of oft við. Nýleg dæmi um þetta opinberuðust okkur á vordögum.

Hverjir eignast Ísland?
Eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar, fyrir utan að fá stöðugan gjaldmiðil, er að fá alþjóðlega samkeppni fyrir neytendur á fjármálamarkaði.