Ingvar Þóroddsson leiðir Viðreisn í Norðausturkjördæmi Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri leiðir lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Í öðru sæti er Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningamála á Egilsstöðum. Þriðja sætið skipar Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari á Akureyri og í fjórða sæti er Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar. Innlent 26. október 2024 15:01
Einar Bárðarson í öðru sæti Framsóknar í Reykjavík suður Einar Bárðarson, landsfrægur lagahöfundur og umboðsmaður, sem nú er formaður stjórnar Tónlistarmiðstöðvar Íslands, verður í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningunum 30. nóvember næstkomandi. Innlent 26. október 2024 14:44
Samfylkingin hafi fjarlægst gildin Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir Samfylkinguna hafa fjarlægst þau gildi sem hún brennur fyrir en hún er aftur gengin til liðs við Vinstri græn. Hún segist enn brenna fyrir þau málefni sem kjarnist í stefnu flokksins og hún sé tilbúin að snúa til baka nú þegar stjórnarsamstarfinu hafi verið slitið. Innlent 26. október 2024 13:39
Séra Sindri Geir leiðir VG í Norðausturkjördæmi Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur á Akureyri leiðir framboðslista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi í Þingeyjarsveit vermir annað sætið. Innlent 26. október 2024 13:13
Alma leiðir Samfylkinguna í Kraganum Alma Möller, landlæknir, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi er í öðru sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, í því þriðja. Innlent 26. október 2024 12:47
Listinn í Reykjavík norður: „Við ætlum að hrista upp í kerfinu“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Reykjavík norður, Dagur B. Eggertsson, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, er í öðru sæti og Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður, í því þriðja. Innlent 26. október 2024 12:23
Willum leiðir Framsókn í Suðvesturkjördæmi Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, mun leiða lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í kjördæminu hefur samþykkt framboðslistann. Innlent 26. október 2024 12:01
Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík suður staðfestur Framboðslistar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 voru samþykktir á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík í félagsheimili Þróttar í Laugardal í dag. Jóhann Páll leiðir í Reykjavíkurkjördæmi suður og Kristrún Frostadóttir í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 26. október 2024 11:47
Logi leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi Logi Einarsson, alþingismaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, leiðir listann í Norðausturkjördæmi. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, og fjórða sætið skipar Sindri Kristjánsson lögfræðingur. Innlent 26. október 2024 10:41
Ingibjörg leiði Miðflokkinn í Norðvesturkjördæmi Uppstillinganefnd Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur lagt til að Ingibjörg Davíðsdóttir leiði lista flokksins í kosningunum í næsta mánuði. Ingibjörg er 53 ára Borgfirðingur, frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð. Hún er stjórnmálafræðingur (BA) frá HÍ og með MA í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Kantaraborg í Bretlandi. Innlent 26. október 2024 08:53
Þakklát fyrir að missa ekki sjónina síðar á ævinni Inga Sæland formaður og stofnandi Flokks fólksins gerir lítið úr væringum innan flokksins nú þegar hún leiðir hann í fjórða sinn í kosningum til Alþingis. Tveir áberandi þingmenn í forystu flokksins, Tómas A. Tómasson í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jakob Frímann Magnússon í Norðausturkjördæmi, fengu ekki brautargengi til að leiða flokkinn í kjördæmum sínum. Innlent 26. október 2024 08:02
Ásókn karla á lista Samfylkingarinnar geti reynst flokknum erfið Almannatengill segir ásókn karla á lista Samfylkingarinnar geta reynst flokknum erfið enda er hann bundinn af reglum um fléttu- eða paralista. Það geti verið snjallt þegar formenn flokka tjá sig lítið um eigin skoðanir í dægurmálum. Innlent 25. október 2024 22:53
Með í maganum og stígur út fyrir þægindarammann „Það er þannig að sumir lenda á milli og þá eru engin úrræði sem passa við. Við sjáum það í samtölum við fólk að það eru til börn og ungmenni sem eru með þannig vandkvæði að þau passa hvergi. Við finnum það öll að þegar það er talað um málefni barna að þetta er viðkvæmt og miklar tilfinningar í þessu. Fyrir utan það að það er auðvitað kostnaður fyrir samfélagið að það verði til fólk sem brýtur af sér eða verði ekki nýtir þjóðfélagsþegnar.“ Innlent 25. október 2024 22:32
Fleiri vilja sjá Þórdísi eða Guðlaug leiða í stað Bjarna Töluvert fleiri vilja sjá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra eða Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, leiða Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum í stað Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, ef marka má nýja skoðanakönnun. Innlent 25. október 2024 21:42
Valdníðsla og hneyksli Ákvörðun matvælaráðherra að taka umsókn um leyfi til hvalveiða til efnislegrar meðferðar stuttu fyrir kosningar er hneyksli og ber vott um valdníðslu að sögn talskonu Hvalavina. Vinstri græn beri ábyrgð á stöðunni sem upp sé komin. Innlent 25. október 2024 19:08
Kunnugleg andlit á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, skipar fyrsta sæti lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í Norðvesturkjördæmi kom saman klukkan 18 í dag og hefur samþykkt framboðslista. Innlent 25. október 2024 18:50
Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG Listar Vinstri grænna fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður og suður voru samþykktir á fundi flokksins sem hófst á Nauthóli klukkan 17:30 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Kunnugleg andlit skipa fyrstu sæti beggja lista en athygli vekur að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, skipar heiðurssæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Það er kjördæmið sem hún skipaði áður forystusætið. Innlent 25. október 2024 17:58
Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Flestir myndu vilja fá sér drykk með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, af formönnum stjórnmálaflokkanna. Næst flestir myndu vilja drekka með Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins. Þó myndu enn fleiri ekki vilja drekka með neinum af stjórnmálaleiðtogunum. Lífið 25. október 2024 17:02
Gerir engar kröfur um ráðherrastól Dagur B. Eggertsson kveðst spenntur fyrir komandi kosningabaráttu og vilja vera þingmaður fyrir alla landsmenn, fái hann þingsæti. Hann segir uppi mikla kröfu um nýja ríkisstjórn en gerir engar kröfur um ráðherrasæti myndi Samfylking nýja ríkisstjórn. Innlent 25. október 2024 16:06
Gerði ekki kröfu um oddvitasæti og fær annað sætið Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, gaf kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi kosningum. Hann taldi rétt að sækjast eftir því í stað oddvitasætis í ljósi þess að hann er að hefja nýjan kafla í stjórnmálaþátttöku sinni. Innlent 25. október 2024 14:46
Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, sem bauð sig fram til þriðja eða fjórða sætis á lista Samfylkingar í Reykjavík verður ekki að ósk sinni. Hann greinir frá því í færslu á Facebook. Innlent 25. október 2024 14:36
Dagur mun ekki skipa oddvitasæti í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, mun ekki skipa efsta sæti á öðrum lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum. Viðbúið er að hann skipi annað sætið á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 25. október 2024 14:09
Ragna fær annað sætið í Reykjavík suður Ragna Sigurðardóttir, læknir og varaþingmaður, hefur verið tilnefnd af uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í annað sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Kosið verður um lista Samfylkingarinnar á morgun. Innlent 25. október 2024 13:46
Þrúgandi þögn fyrir stóru ákvörðun Kristrúnar Yfirleitt spyrst út þegar einhverjir eru á framboðsskóm og berast þá jafnan inn á ritstjórnargólf. En ekki hjá Samfylkingu nú um stundir. Þar halda menn spilum þétt að sér. Víst er að þar er við nokkurn vanda að etja þegar raða skal í efstu sæti í Reykjavíkurkjördæmunum norður og suður. Innlent 25. október 2024 13:25
Skoðaði hvað fólk gerði á Facebook án samþykkis Samfylkingin skar sig úr í frumkvæðisathugun Persónuverndar á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2021, með víðtækri notkun persónusniða á grundvelli skráningar Facebook á áhugamálum notenda. Viðreisn nýtti sér upplýsingar um þá sem líkað höfðu við flokkinn á Facebook og Instagram og heimsótt vefsíðu hans. Þó var ekki talið tilefni til að beita valdheimildum Persónuverndar. Innlent 25. október 2024 11:31
Segir ráðherra bera skyldu til að afgreiða umsóknir um hvalveiðar Jón Gunnarsson, nýr fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir að hvalveiðar séu eitt þeirra mála sem hann ætli að skoða þar. Ráðherra beri skylda til að afgreiða umsóknir um veiðileyfi. Jón fer hörðum orðum um fyrrverandi félaga sína í ríkisstjórn úr Vinstri grænum. Innlent 25. október 2024 09:17
Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Nú þegar líður að kosningum má gera ráð fyrir að hitna muni verulega í umræðunum víða. Ekki síst á vinnustöðum. Atvinnulíf 25. október 2024 07:03
Sendi út neyðarkall vegna meðmælasöfnunar Vinstri grænna Ragnar Auðun Árnason framkvæmdastjóri Vinstri grænna sendi í morgun neyðarkall á félaga í Vinstri grænum og sagði meðmælasöfnun áhyggjuefni. Hann segist ekki hafa sömu áhyggjur í kvöld. Meðmælasöfnun gangi vel en sé þó ekki lokið. Innlent 24. október 2024 23:02
Arna Lára leiðir lista Samfylkingar í Norðvestur Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og ritari Samfylkingarinnar, leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ), er í öðru sæti. Innlent 24. október 2024 22:38
Samþykktu listann í Kraganum: Jón skipar fimmta sætið Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Jón sóttist upprunalega eftir 2. sæti, því sama og hann skipaði í síðustu kosningum, en Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður flokksins hafði betur í kosningu. Innlent 24. október 2024 21:29