Tveir handteknir vegna stolins riffils með hljóðdeyfi Karlmaður var nýverið handtekinn eftir að riffli var stolið úr verslun á höfuðborgarsvæðinu. Þegar lögregla fann riffilinn hafði hljóðdeyfir verið settur á hann af öðrum manni. Sá var sömuleiðis handtekinn og sviptur skotvopnaleyfi samstundis. Innlent 25.3.2025 10:45
Líf hans í hættu ef hann leitaði til lögreglu Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir frelsisviptingu og tilraun til ráns í því skyni að afa verðmæti af fórnarlambi þeirra. Mennirnir, sem eru tveir á fimmtugsaldri og einn á þrítugsaldri, eru sagðir hafa framið þessi meintu brot sín í Reykjavík og reyndar líka á Seltjarnarnesi. Innlent 25.3.2025 10:30
Ætlar að gefa kerfinu verkfæri til að taka á eltihrellum Dómsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem falið verður að yfirfara lög um nálgunarbann og nýtingu ökklabands til að auka öryggi brotaþola. Hún segir umsáturseinelti mun útbreiddara vandamál en fólk almennt geri sér grein fyrir og hún vill gefa kerfinu tæki og tól til að taka fast á þeim. Á síðasta ári voru 79 beiðnir um nálgunarbann lagðar fram. Innlent 24.3.2025 19:36
Tvær konur slógust í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gærkvöld eða nótt afskipti af tveimur konum. Þær munu hafa verið í slagsmálum fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði. Innlent 23. mars 2025 07:28
Dyraverðir keppist um völd í undirheimunum Þrettán manns voru handteknir á víð og dreif um höfuðborgina í nótt vegna þriggja mála sem eru talin tengjast. Tveir menn voru fluttir með sjúkrabíl frá Ingólfstorgi í gær, einn af þeim með þrjú stungusár. Að sögn lögreglu er rannsókn málsins viðamikil. Innlent 22. mars 2025 19:01
Enn margt á huldu og mögulega þrettán handteknir Sjö voru handteknir í kjölfar átaka við Ingólfstorg á tólfta tímanum í gærkvöldi. Einn var stunginn þrisvar og annar laminn í höfuðið og eru báðir á batavegi samkvæmt heimildum fréttastofu. Tvö önnur mál í gærkvöldi tengjast mögulega árásinni og gætu því þrettán verið handteknir í tengslum við málið allt í allt. Innlent 22. mars 2025 11:38
Grunur um að maður hafi farið í sjóinn Grunur er um að maður hafi farið í sjóinn við Kirkjusand. Leit stendur yfir og að henni koma kafarar, björgunarskip Landsbjargar og þyrla Landhelgisgæslunnar. Innlent 22. mars 2025 09:37
Sjö handteknir og einn stunginn þrisvar Sjö voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í vegna máls þar sem einn var stunginn þrisvar með hnífi og annar laminn í höfuðið í gærkvöldi. Svo kom til átaka milli annarra, hvort sem það mál tengist hinu er ekki ljóst að svo stöddu, en vegna þess máls voru þrír handteknir. Innlent 22. mars 2025 09:28
Hnífstunguárás á Ingólfstorgi Umfangsmikil lögregluaðgerð stóð yfir á Ingólfstorgi í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var um hnífstunguárás að ræða. Fleiri en einn hafa verið fluttir særðir af vettvangi. Innlent 21. mars 2025 23:26
Grunaður um gróf brot gegn eiginkonu og fimm börnum Karlmaður sem hlaut alþjóðlega vernd hér á landi árið 2022 hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um alvarleg ofbeldisbrot gegn eiginkonu sinni og fimm börnum þeirra. Fjölskyldan sameinaðist manninum hér á landi árið 2024 en flutti frá honum viku seinna. Innlent 21. mars 2025 13:37
Nafn hins látna í manndrápsmálinu Hjörleifur Haukur Guðmundsson, búsettur í Þorlákshöfn, lést 11. mars síðastliðinn 65 ára að aldri. Andlát hans hefur síðan verið til rannsóknar lögreglunnar á Suðurlandi, líkt og fjallað hefur verið um. Innlent 20. mars 2025 20:14
Skoða hvort grunaðir séu líka fórnarlömb í máli Quangs Lé Enn er langt í land í rannsókn máls Quangs Lé, sem grunaður er um umfangsmikið mansal. Yfirlögregluþjónn segir á annan tug hafa réttarstöðu sakbornings í rannsókninni. Innlent 20. mars 2025 14:43
Átti fótum sínum fjör að launa þegar átta drengir réðust á hann Fjórtán ára drengur átti fótum sínum fjör að launa er hópur drengja undir fimmtán ára aldri réðust á hann fyrir utan Fjörð verslunarmiðstöð í Hafnarfirði í gærkvöldi. Áverkar drengsins eru minniháttar en gerendurnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Innlent 20. mars 2025 12:53
Svona var Pallborðið um ofbeldisöldu hjá ungmennum Undanfarnar vikur hefur mikið verið fjallað um ástand í Breiðholtsskóla þar sem hópur stráka í sjöunda bekk ásamt fleiri úr öðrum skólum hafa haldið hverfinu í heljargreipum. Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 20. mars 2025 11:31
Mættu til viðskipta vopnaðir hnífum og piparúða Fjórir karlmenn á fertugsaldri voru handteknir í sameign fjölbýlishúss í Laugardalnum eða grennd við hann í gær. Þeir voru vopnaðir hnífum og ólöglegum piparúða. Þeirra bíður sekt upp á 150 þúsund krónur hver. Innlent 20. mars 2025 11:13
Þrjú börn handtekin í tengslum við líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi eða nótt þrjú börn í Hafnarfirði, fyrir líkamsárás og skemmdarverk. Börnin voru látin laus að loknu viðtali við lögreglu og barnavernd. Innlent 20. mars 2025 06:22
Gerendur nýti „allar mögulegar leiðir“ Rúmlega hundrað leituðu sér aðstoðar hjá Bjarkarhlíð á síðasta ári vegna umsáturseineltis og 159 vegna stafræns ofbeldis. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra hjá Bjarkarhlíð, segir að með aukinni tæknivæðingu hafi fleiri möguleikar opnast til að meiða. Þetta sé veruleiki sem systursamtök úti í heimi segja að sé að stigmagnast. Innlent 19. mars 2025 19:18
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Héraðsdómur Suðurlands féllst síðdegis á kröfu lögreglunnar á Suðurlandi að úrskurða þrjá í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við manndrápsmálið í Gufunesi. Gæsluvarðhald var framlengt yfir tveimur karlmönnum í fjórar vikur og yfir einni konu í viku. Innlent 19. mars 2025 18:16
Bíða enn niðurstöðu um varðhald Gerð hefur verið krafa um framlengingu gæsluvarðhalds um eina viku yfir þremur sakborningum í manndrápsmálinu í Gufunesi og bíður lögreglan á Suðurlandi niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands. Gæsluvarðhald yfir þeim rennur að óbreyttu út í dag. Innlent 19. mars 2025 14:50
Ríkið sýknað í Skuggasundsmálinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af öllum kröfum níu mótmælenda vegna aðgerða lögreglunnar á mótmælum við ríkisstjórnarfund í fyrrasumar. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan hálf tólf. Innlent 19. mars 2025 11:33
Með hnút í maganum yfir næstu skilaboðum eltihrellis „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum, þetta er stöðugt hangandi yfir mér, alla daga. Mér finnst ég vera rosalega varnarlaus. Ég er alltaf með hnút í maganum yfir því hvenær næsta færsla birtist á Facebook, hvenær næsta sprengja á eftir að koma,“ segir Garpur Ingason Elísabetarson. Innlent 19. mars 2025 06:03
Handtóku einn til viðbótar Lögreglan á Suðurlandi hefur lagt fram kröfu um gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem handtekinn var í gærkvöld. Einnig hefur verið lögð fram krafa um framlengingu gæsluvarðhalds yfir þremur einstaklingum vegna rannsóknar á manndrápsmálinu í Gufunesi. Innlent 18. mars 2025 19:24
Taldi mann kominn til landsins til að vinna henni mein Kona búsett í Bolungarvík ásamt fjölskyldu sinni taldi mann, sem er búsettur erlendis vera kominn hingað til lands til að vinna henni og fjölskyldu hennar mein. Eftir rannsókn telur lögreglan að hann sé í raun ekki hér á landi. Innlent 18. mars 2025 16:55
Sérsveitinni flogið til Bolungarvíkur Sérsveit ríkislögreglustjóra var flogið til Bolungarvíkur fyrr í dag til að aðstoða lögregluna á Vestfjörðum. Innlent 18. mars 2025 14:41