Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæði rannsakar nú tilkynningar um mann sem er sagður hafa ógnað og áreitt börn í Hafnarfirði. Innlent 9. maí 2024 17:38
Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Kona á sextugsaldri hefur verið ákærð fyrir fjárdrátt í störfum sínum sem skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn. Konan er sökuð um að hafa dregið að sér tæplega níu milljónir króna af fjármunum bæði grunnskóla og félagsmiðstöðvar í Langanesbyggð á tímabilinu 2016 til 2020. Innlent 9. maí 2024 13:00
Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi vegna meints manndráps í sumarhúsi í Kiðjabregi 20. apríl miðar vel að sögn yfirlögregluþjóns. Gæsluvarðhald yfir tveimur litháískum karlmönnum rennur út á morgun og verður tekin ákvörðun síðar í dag hvort farið verði fram á að það verði framlengt. Innlent 9. maí 2024 10:56
Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Skúli Tómas Gunnlaugsson, læknir sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á árunum 2018 til 2020, sinnir af og til sjúklingum á Landspítalanum. Innlent 8. maí 2024 14:08
„Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ Dómsmálaráðherra kveðst hafa haft áhyggjur af fangelsismálum frá því hún tók við embætti. Allar aðstæður á Litla-Hrauni í dag séu með þeim hætti að erfitt sé að tryggja öryggi fanga. Maður fannst látinn í klefa fangelsisins um liðna helgi. Innlent 8. maí 2024 13:08
Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt Gæsluvarðhald yfir íslenskum karlmanni sem handtekinn var í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna hefur verið framlengt. Innlent 7. maí 2024 15:39
Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá í Hafnarfirði í nótt fyrir vopnalagabrot. Þá eru viðkomandi sagðir hafa hunsað fyrirmæli lögreglu. Innlent 7. maí 2024 06:49
Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati sótti að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á þingi nú fyrir stundu og spurði hana hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að rannsókn yrði gerð á örlætisgjörningi Haraldar Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóra. Innlent 6. maí 2024 16:08
Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Héraðsdómur Norðurlands eystra staðfesti í dag kröfu lögreglunnar um áframhaldandi gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri í lok aprílmánaðar. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Innlent 6. maí 2024 15:30
Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur þá ökumenn sem það á við, að skipta út nagladekkjunum. Innlent 6. maí 2024 15:09
Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Lögreglan á Akureyri mun í dag krefjast þess að gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri verði framlengt. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið konu sinni, sem var um fimmtugt, að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri í lok aprílmánaðar. Innlent 6. maí 2024 10:52
Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Lögregla á höfuðborgarsvæðinu vill ekkert tjá sig um gang rannsóknarinnar á þjófnaðarmáli þar sem milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna var stolið úr verðmætaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðinn. Innlent 6. maí 2024 10:52
Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Fangi á Litla Hrauni fannst látinn í klefa sínum í gærmorgun. Greint er frá andlátinu á Facebook-síðu Afstöðu, félags fanga, í morgun, en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir andlátið í samtali við fréttastofu. Innlent 6. maí 2024 08:02
Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í dag vegna manns sem var til vandræða á hóteli í miðborginni. Maðurinn hafði þá ráðist á aðila á hótelinu. Innlent 5. maí 2024 18:34
Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Sendiferðabíll sem gjöreyðilagðist í bruna í Vesturbæ Reykjavíkur í nótt stóð í ljósum logum áður en slökkviliðsmenn náðu að hemja eldinn. Þá varð nokkuð öflug sprenging í bílnum. Innlent 5. maí 2024 13:54
Slagsmál enduðu með nefbroti Einn varð fyrir því óláni að nefbrotna í slagsmálum í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Innlent 5. maí 2024 07:40
Bíll logaði í Vesturbænum Laut eftir klukkan 03 í nótt var tilkynnt um eld í bifreið í Vesturbæ Reykjavíkur. Slökkvilið var ekki lengi að slökkva eldinn en bíllinn, sem er sagður glænýr, er ónýtur. Innlent 5. maí 2024 07:20
Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Lögregla var kölluð út til verslunar Krónunnar í Skeifunni um klukkan fjögur síðdegis eftir að maður hafði slegið til starfsmanns verslunarinnar sem meinaði honum aðgang að búðinni, auk þess að hafa bitið annan viðskiptavin. Innlent 4. maí 2024 17:04
Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Ökumaður gistir nú fangageymslur lögreglu eftir að hann var handtekinn í kjölfar eftirför lögreglu, meðal annars um íbúðahverfi. Hann ók á allt að tvö hundruð kílómetra hraða og lögregla þurfti að bregða á það ráð að aka utan í bifreið hans. Innlent 4. maí 2024 07:25
Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Kona, sem hefur sætt gæsluvarðhaldi óslitið frá því að sonur hennar fannst látinn á heimili þeirra á Nýbýlavegi í lok janúar, sætir ákæru fyrir að bana drengnum með kodda. Innlent 3. maí 2024 12:12
Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Lögreglan var kölluð til vegna brothljóða í nótt en þá höfðu allar rúður verið brotnar á staðnum Just Kebab við Lækjargötu. Rúðurnar eru þrjár stórar og svo voru rúður í dyrum einnig brotnar. Innlent 3. maí 2024 11:35
Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Í nótt var maður á ferð sem lét sig ekki muna um að brjóta rúður í versluninni Korakmarket sem er við Skólavörðustíg 21. Ætla má að þarna sé sami maðurinn á ferð og fyrir fáeinum dögum en þá voru nánast allar rúður brotnar í versluninni. Innlent 3. maí 2024 10:30
Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2. maí 2024 11:11
Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Íslenskur karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborg fyrir rúmum fimm vikum. Innlent 2. maí 2024 09:42
Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Lögregla heldur spilunum afar þétt að sér við rannsókn á þjófnaði á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborginni fyrir rúmum fimm vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að reynt hafi verið að koma lituðum peningum í umferð. Innlent 1. maí 2024 07:01
Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Litlar líkur eru á því að innbrot á Facebook-síðu Quangs Le, sem gengur einnig undir nafninu Davíð Viðarsson, hafi áhrif á sakamálarannsókn lögreglu á hendur honum. Innlent 30. apríl 2024 17:56
Umferðartafir vegna elds í tengivagni Umferðin gengur nú hægar en venjulega á Reykjanesbraut í Garðabæ, en þar kviknaði eldur í tengivangi bifreiðar á þriðja tímanum í dag, á móts við IKEA. Innlent 30. apríl 2024 15:24
Gæsluvarðhald beggja framlengt Tveir litáískir karlmenn, sem sætt hafa gæsluvarðhaldi vegna meints manndráps í sumarhúsi í Kiðjabergi frá 20. apríl, munu sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 10. maí. Þeir verða báðir í einangrun. Innlent 30. apríl 2024 13:57
Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Aðfararnótt mánudags gekk grímuklæddur maður inn Njálsgötuna, upp að Skólavörðustíg 21 og stillti sér upp fyrir framan nýlenduvöruverslunina Korakmarket. Þar skaut hann með reglubundnum hætti gat á hverja einustu rúðu. Þrjátíu að tölu. Innlent 30. apríl 2024 13:27
Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu, eða til 27. maí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann var handtekinn á sunnudagskvöld eftir eftirför á ógnarhraða um Vogahverfi í Reykjavík. Innlent 30. apríl 2024 13:10