

MMA
Nýjustu fréttir af Gunnari Nelson og fleiri MMA-köppum.

Risakvöld framundan fyrir bardagaíþróttir á Íslandi
Úrslitakvöld Unbroken deildarinnar fer fram í kvöld, laugardaginn 3. júní. Þar munu úrslitin ráðast í fyrstu deildarkeppninni í uppgafarglímu á Íslandi.

Dómaraskandall í Doncaster: Hrafn sviptur titlinum daginn eftir skrautlegan sigur
Íslenskur bardagakappi vann nýverið titilbardaga í ofur-léttvigt í MMA þrátt fyrir vítavert klúður tímavarðar. Daginn eftir að hann lyfti beltinu var hann á umdeildan hátt sviptur titlinum eftir kvartanir andstæðingsins.

Þeir bestu farnir að taka eftir Gunnari Nelson á ný
Það má með sanni segja að frammistaða íslenska UFC bardagakappans Gunnars Nelson, sem hefur nú unnið tvo bardaga í röð í bardagabúrinu, hafi séð til þess að kollegar hans í veltivigtardeildinni geti ekki litið fram hjá honum.

UFC snýr aftur á heimavöll Gunnars í júlí
UFC snýr aftur til London í sumar og verður bardagakvöld sambandsins á dagskrá í O2-höllinni þann 22. júlí næstkomandi. Frá þessu var greint í gærkvöldi en orðrómur hafði verðið á kreiki um að UFC væri að snúa aftur til London.

Gunnar stoltur af metum og skýtur á gagnrýnendur
Bardagakappinn Gunnar Nelson getur státað sig af tveimur metum eftir nær fullkomna frammistöðu á UFC bardagakvöldinu í London um síðustu helgi.

„Maður er löngu hættur að setja sig í fyrsta sæti“
Sindri Sindrason leit við í morgunkaffi til Gunnars Nelson í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.

„Eins og hann hafi verið í tölvuleik því það var nákvæmlega það sem ég gerði“
Gunnar Nelson sneri aftur í búrið á bardagakvöldi UFC sem fram fór í O2-höllinni í Lundúnum á laugardagskvöld.

Gunnar fer yfir sigur helgarinnar: „Horfi á hann og brosi á meðan hann er að kýla mig“
Gunnar Nelson vann Bryan Barbarena örugglega á laugardagskvöld þegar þeir mættust í búrinu í UFC 286. Þeir virtust ná ágætlega saman en það er ekki oft sem menn fara að hlægja á meðan þeir eru að keppa í UFC.

Gunnar mættur í dagvinnuna og sér fyrir titilbardaga í nánustu framtíð
Gunnar Nelson segir að mögulega sé stutt í titilbardaga hjá honum í UFC og töluverðir möguleikar séu í boði í hans þyngdarflokki.

Frammistaða kvöldsins ágætis búbót fyrir Gunnar
Gunnar Nelson sneri aftur í búrið á bardagakvöldi UFC sem fram fór í O2-höllinni í Lundúnum á laugardagskvöld. Sigraði hann andstæðing sinn örugglega og var frammistaða hans valin frammistaða kvöldsins. Gefur það íslenska bardagakappanum nokkrar aukakrónur í vasann.

Conor McGregor hrósar Gunnari í hástert: „Einn sá besti sem ég hef kynnst“
Bardagakappinn Gunnar Nelson vann góðan sigur er hann mætti aftur í hringinn gegn Bandaríkjamanninum Bryan Barberena í O2 höllinni í London í gærkvöldi.

Gunnar Nelson: Átti von á meiri mótspyrnu í gólfinu
Gunnar Nelson kláraði Bryan Barberena í fyrstu lotu. Gunnar var venju samkvæmt yfirvegaður í viðtali beint eftir bardagann en sáttur með niðurstöðuna.

Gunnar Nelson kláraði Bryan Barberena í fyrstu lotu
Gunnar Nelson vann Bryan Barberena með miklum yfirburðum í O2 Arena. Þetta var annar sigur Gunnars í röð og það er alveg á hreinu að Gunnar á nóg eftir sem bardagamaður.

Myndband: Þægileg vigtun hjá Gunna fyrir bardaga kvöldsins
Gunnar Nelson mætir Bryan Barberena á UFC 286 í O2-höllinni í Lundúnum í kvöld. Gunnar var vigtaður í gær, föstudag, og náði. Í kjölfarið var endanlega staðfest að bardaginn myndi fara fram.

Gunnar klikkar ekkert á vigtinni
Bardagi þeirra Gunnars Nelson og Bryan Barberena er formlega staðfestur en báðir kappar náðu vigt í London í morgun.

Gunnar Nelson: Pabbi skítstressaður út af vigtinni
Gunnar Nelson er á leiðinni í sinn fyrsta UFC-bardaga í heilt ár þegar hann mætir Bryan Barberena í London um helgina.

Segir Gunnar Nelson vera goðsögn og vill sjá víkinginn í honum á laugardaginn
UFC 286 fer fram í Lundúnum á laugardagskvöldið kemur, þann 18. mars. Þar mætast Bandaríkjamaðurinn Bryan Barberena. Sá vill sjá víkinginn sem býr innra með Gunnari.

Hefur ekki áhyggjur ef Conor er í formi
Gunnar Nelson er klár í slaginn en hann mætir Bryan Barberena á bardakvöldi UFC 286 sem fram fer í Lundúnum á laugardaginn kemur. Á blaðamannafundi í dag var Gunnar spurður út í sinn fyrrverandi æfingafélaga Conor McGregor.

Gunnar Nelson heldur til London og er klár í slaginn á laugardaginn
Bardagakappinn Gunnar Nelson er orðinn klár í slaginn fyrir næstkomandi laugardag þegar hann berst við Bandaríkjamanninn Bryan Barberena á bardagakvöldi UFC 286.

UFC staðfestir nýjan andstæðing Gunnars
Gunnar Nelson mun ekki keppa við Daniel Rodriguez á UFC-bardagakvöldinu í London 18. mars næstkomandi, eins og til stóð, en búið er að finna nýjan keppinaut fyrir Gunnar.

Conor sakaður um að hafa beitt konu ofbeldi í afmæli sínu
Írski bardagakappinn Conor McGregor er til rannsóknar hjá lögreglunni á Ibiza á Spáni en hann er sakaður um að hafa ráðist á konu í 34 ára afmælisfögnuði sínum í fyrra. Samkvæmt talskonu Conors hafnar hann öllum ásökunum konunnar.

Gunnar snýr aftur í búrið nánast ári eftir síðasta bardaga
Gunnar Nelson snýr aftur í búrið um miðjan mars og mætir þá Bandaríkjamanninum Daniel Rodriguez.

„Það eina sem Frakkar eru góðir í er að halda framhjá og gefast upp“
Sean Strickland hafði engan húmor fyrir því þegar Kevin Gestelum dró sig út úr bardaga þeirra og segir að andstæðingurinn sem hann fékk í staðinn sé ekki merkilegur pappír.

Gerir ekki ráð fyrir að sér verði refsað fyrir að slá konu sína
Dana White, forseti UFC, gerir ekki ráð fyrir að fá refsingu fyrir að slá eiginkonu sína.

Kallað eftir afsögn eftir að forseti UFC sló til eiginkonu sinnar
Dana White, forseti UFC bardagasamtakanna, hefur beðist afsökunar á því að hafa ítrekað slegið eiginkonu sína á nýársnótt eftir að myndskeið af atvikinu birtist á vefmiðlum í gær. Hann kveðst eiga sér engar málsbætur í málinu.

Lappalausi bardagamaðurinn vann sinn fyrsta bardaga
Zion Clark lætur ekki fötlun sína koma í veg fyrir það að hann stigi inn í búrið til að keppa í blönduðum bardagaíþróttum, MMA.

Sögulegur sigur átján ára undrabarns í UFC: Vill gefa mömmu sinni bíl í jólagjöf
Raul Rosas Jr. skrifaði nýjan kafla í sögu blandaðra bardagaíþrótta um helgina þegar hann var sá yngsti til að taka þátt í opinberum UFC-bardaga.

UFC-stjarna lést 38 ára að aldri
Fyrrverandi UFC-bardagakappinn Anthony „Rumble“ Johnson lést á sunnudaginn, 38 ára að aldri, eftir glímu við líkamleg veikindi.

Conor myndi elska að kaupa Liverpool
Írski bardagakappinn Conor McGregor segir að hann myndi elska að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool.

Rússneskur bardagakappi lést eftir að hafa borðað eitraða melónu
Alexander Pisarev, rússneskur bardagamaður, er látinn, 33 ára. Talið er að rekja megi orsök andlátsins til eitraðrar vatnsmelónu sem hann borðaði.