Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa hafa undirritað samrunasamning sem byggir á samkomulagi sem félögin undirrituðu 18. desember síðastliðinn. Viðskipti innlent 21.2.2025 06:36
Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var einn þingmanna sem tók til tals í fjögurra tíma löngum rökræðum um áfasta tappa á Alþingi. Hann sagði ef tappalöggjöfin færi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu næði hún ekki í gegn. Innlent 20.2.2025 21:04
Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Stjórn flugfélagsins PLAY sendi frá sér tilkynningu þar sem hún harmar óskýrar tilkynningar og fréttaflutning um rekstrarhæfi félagsins. Tilkynningar af þessu tagi valdi félaginu tjóni. Viðskipti innlent 20.2.2025 20:00
Tappareglurnar innsiglaðar með lögum Frumvarpi hefur verið útbýtt á Alþingi sem snýr að því að ljúka innleiðingu á Evrópureglum um áfasta tappa á drykkjarvörum hvers konar. Landsmenn ættu þó ekki að finna fyrir miklum breytingum nái frumvarpið fram að ganga enda hafa reglurnar að miklu leyti þegar verið innleiddar hér á landi, við mismikla hrifningu neytenda. Markmiðið með frumvarpinu er að skýra með lögum hvaða drykkjaríláta vara falla undir reglurnar. Neytendur 17. febrúar 2025 10:01
Bankarnir áður svikið neytendur Formaður fjárlaganefndar Alþingis er ekki spenntur fyrir mögulegri sameiningu Arion og Íslandsbanka. Bankarnir hafi sýnt það í gegnum tíðina að neytendur séu ekki í forgangi hjá þeim, og efast hann um að það sé að breytast. Viðskipti innlent 16. febrúar 2025 20:28
Greiði milljarða í arð í stað þess að lækka vexti til almennings Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforkólfur og formaður Starfsgreinasambandsins segir galið að horfa upp á arðgreiðslur íslensku bankanna sem séu af sömu stærðargráðu og kjarasamningar sem áttu að tryggja stöðugleika í íslensku samfélagi. Neytendur 16. febrúar 2025 13:18
Neytendur beri kostnað þess að reka þrjá stóra banka Bankastjóri Arion banka segir að samruni hans og Íslandsbanka fæli í sér umtalsverðan sparnað og heitir því að fimm milljarðar að lágmarki af árlegum sparnaði við samrunann skili sér til neytenda. Íslenskir neytendur tapi á því að hér séu reknir þrír kerfislega mikilvægir bankar. Viðskipti innlent 16. febrúar 2025 10:03
Ný ríkisstjórn sé að efla erlenda mjólkurframleiðslu Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands segir nýja ríkisstjórn styrkja og efla erlenda mjólkurframleiðslu á kostnað þeirrar innlendu. Það sé vegna áforma fjármálaráðherra um lagasetningu sem breytir tollflokkun á innfluttum osti. Ísland hefur verið sett á lista yfir viðskiptahindranir af Evrópusambandinu vegna málsins. Viðskipti innlent 15. febrúar 2025 21:46
Samruninn geti skilað auknum sparnaði til neytenda Í gær sendi stjórn Arion banka bréf til Kauphallar þar sem þeir lýstu yfir áhuga á samruna við Íslandsbanka. Bankastjóri Arion banka segir samrunann geta skilað auknum sparnaði til neytenda. Bankastjóri Íslandsbanka segir tímasetningu tilkynningarinnar komið á óvart. Viðskipti innlent 15. febrúar 2025 18:51
Bankarnir byrji í brekku Sérfræðingur í samkeppnisrétti segir mögulegan samruna Arion banka og Íslandsbanka byrja í brekku hjá Samkeppniseftirlitinu fari hann þangað inn á borð. Hann vill ekki útiloka að samruninn gangi í gegn á endanum. Viðskipti innlent 15. febrúar 2025 13:30
Svar við rangfærslum Félags atvinnurekenda um tollamál Fyrr í dag birtist grein á heimasíðu Félags atvinnurekenda (FA) þar sem fjallað er um tollflokkun pizza osts. Nú eins og oft áður byggir umfjöllun FA á rangfærslum þar sem ítarleg grein er gerð fyrir sjónarmiðum félagsins en horft framhjá staðreyndum málsins sem liggja þó fyrir opinberlega enda hefur Danól ehf., félagsmaður FA, tapað dómsmálum fyrir héraðsdómi og Landsrétti en heldur samt áfram að þrýsta á stjórnvöld um að breyta tollflokkun pizzaosts í andstöðu við niðurstöður íslenskra dómstóla. Verður nú rakið enn og aftur hverjar staðreyndir málsins eru enda verður þeim ekki breytt. Skoðun 14. febrúar 2025 20:33
Ísland komið í skammarkrókinn vegna osts Evrópusambandið hefur í fyrsta sinn sett Ísland á lista yfir viðskiptahindranir, sem útflutningsfyrirtæki í Evrópusambandsríkjum eru beitt í ríkjum utan sambandsins. Ástæðan er ákvörðun Skattsins árið 2020 að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu. Viðskipti innlent 14. febrúar 2025 13:26
Vonbrigði í málum neytenda en ástæða til bjartsýni Formaður Neytendasamtakanna segir dóma Landsréttar í þremur málum neytenda á hendur viðskiptabönkunum þremur vonbrigði. Dómunum verði öllum áfrýjað. Hins vegar gefi niðurstaða í máli Neytendastofu á hendur Íslandsbanka ástæðu til bjartsýni. Neytendur 13. febrúar 2025 16:30
Bankarnir lögðu neytendur í Vaxtamálinu Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa verið sýknaðir í vaxtamálunum svokölluðu í Landsrétti. Milljarðahagsmunir neytenda voru undir í málunum. Neytendastofa lagði þó Íslandsbanka í einu máli. Neytendur 13. febrúar 2025 15:03
„Þjóðarsport“ að hækka vöruverð í janúar Matvöruverð tekur stökk upp á við í febrúar. Verð á tilbúnum réttum, sælgæti og fuglakjöti hækkaði sérstaklega en ávaxtaverð lækkar. Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir skjóta skökku við að verslanir tilkynni um hækkanir þegar samfélagið allt sé að reyna að keyra niður verðbólgu fyrir fullt og allt. Neytendur 12. febrúar 2025 12:00
Matvöruverð tekur stökk upp á við Dagvöruvísitala hækkaði um 0,22% á milli mánaða samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Um er að ræða nokkurn viðsnúning frá mælingu eftirlitsins sem gerða var í síðustu viku þegar hækkun milli mánaða stóð í stað. Meðal þess sem hækkar mest er innfluttur ostur, kjúklingur, tómatar í lausu og sælgæti. Ávextir hafa hins vegar lækkað í verði. Neytendur 12. febrúar 2025 09:42
Landsbankinn lækkar vexti Landsbankinn hefur tilkynnt um breytta vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 13. febrúar næstkomandi. Arion Banki, Indó, Íslandsbanki og nú Landsbankinn hafa allir lækkað vexti eftir að stýrivextir Seðlabankans lækkuðu um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Viðskipti innlent 7. febrúar 2025 18:59
Nammið rýkur áfram upp í verði Kúlusúkk og þristar hafa hækkað um ríflega fjórðung í verði í lágvöruverðsverslunum á einu ári. Kílóverðið er þó enn lægra en á vinsælasta súkkulaði stærri framleiðanda sem einnig hækkar og hækkar í verði. Neytendur 7. febrúar 2025 16:59
Í samkeppni við Noona með Sinna Inga Tinna Sigurðardóttir, eigandi Dineout.is, opnaði nýlega nýtt markaðstorg á vefnum sinna.is þar sem hægt er að bóka tíma í hárgreiðslu, á snyrtistofu, heilsulind, nudd og ýmsa þjálfun. Inga Tinna segir þau leggja áherslu á heilsu og vellíðan. Um 60 rekstraraðilar hafa skráð sig á síðuna. Neytendur 7. febrúar 2025 06:46
Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Rauð vaxtaviðvörun hefur verið í gildi á Íslandi í á þriðja ár. Þetta segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, sem fagnar því að Seðlabankinn hafi lækkað stýrivexti um fimmtíu punkta í gær en bendir þó á að stýrivextir standi í átta prósentum sem sé ansi mikið. Viðskipti innlent 6. febrúar 2025 20:12
Verð í Bónus hækkað meira en í Krónunni Dagvöruvísitala verðlagseftirlitsins lækkar milli mánaða og mælist nú -0,1 prósent í febrúar þegar fyrstu mælingar liggja fyrir. Orsök lækkunarinnar eru Heilsudagar í Nettó sem standa yfir fyrstu vikuna í febrúar. Prís er enn ódýrasta verslunin og verðlag í Bónus hefur að jafnaði hækkað meira en í Krónunni síðustu mánuði. Þetta, og meira, kemur fram í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ. Neytendur 6. febrúar 2025 13:19
Braut húsaleigulög með litavalinu Leigusala er heimilt að fá greiddar tíu þúsund krónur úr tryggingu fyrrverandi leigjanda síns sem hafði málað veggi í íbúðinni í dökkgráum lit í stað þess málarahvíta litar sem fyrir var og var sömuleiðis að finna á öðrum veggjum íbúðarinnar. Leigjandinn hafi með litavalinu brotið gegn ákvæðum húsaleigulaga. Innlent 6. febrúar 2025 08:56
Íslandsbanki tilkynnir vaxtabreytingu Íslandsbanki hefur ákveðið að breyta vöxtum inn- og útlána og taka mið af stýrivaxtalækkun Seðlabankans sem var kynnt í morgun og hljóðaði upp á 0,5 prósentustig. Breytingin mun taka gildi þann 12. febrúar næstkomandi. Viðskipti innlent 5. febrúar 2025 21:50
Stór hópur komist nú í gegnum greiðslumat eftir 50 punkta lækkun Stýrivextir Seðlabanka Íslands standa í átta prósentum eftir að peningastefnunefnd bankans lækkaði vexti um 0,5 prósentustig. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni. Annar tveggja eigenda Mikluborgar telur lækkunina munu auðvelda stórum hópi að komast í gegnum greiðslumat en segir um leið að betur megi ef duga skal. Viðskipti innlent 5. febrúar 2025 20:03