Þegar vanefndir og spilling spanna hálfan hnöttinn „Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, haldinn á Selfossi 23.-25. október 2015, leggst eindregið gegn hvalveiðum við Íslandsstrendur“. Úr landsfundarályktunum Vinstri grænna 2015. Skoðun 31. október 2022 10:00
Norska leiðin og sú íslenzka í auðlindamálum - vantar par kauphéðna í ríkisstjórnina? Ég hef fjallað nokkuð um þá nýlegu ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar, að taka afnotagjald, auðlindagjald, af fiskeldisfyrirtækjum fyrir afnot þeirra af hafinu, fjörðum landsins, frá 1. janúar 2023. Vil ég fara frekar ofan í saumana á því máli hér. Skoðun 20. október 2022 13:01
Þegar pólitíkusar mála sig út í horn Íslenzkir stjórnmálamenn hafa haft hægt um sig síðustu misseri. Smá sviptingar á meintri miðju, sem reyndar teygist yst út á hægri kant, milli Sigurðar Inga og Sigmundar Davíðs, þar sem sá fyrrnefndi hafði miklu betur, annars hefur andinn yfir stjórnmálavötnunum verið rólegur. Skoðun 19. september 2022 14:02
Er lausnarinn fundinn? Hér vil ég skoða þann stjórnmálaflokk, sem stofnaður var úr 4 flokkum árið 2000, til að verða mótvægisafl við Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna. Skoðun 7. september 2022 07:02
BNA klofin þjóð og ótryggur bandamaður Árásarstríð Pútíns á Úkraínumenn hefur vakið upp spurninguna um varnir og öryggi annarra Evrópu-landa, líka þá auðvitað okkar Íslendinga. Skoðun 13. júlí 2022 08:00
Seðlabankastjóri sýnir á sér betri hlið Ég hef skrifað nokkuð um Seðlabanka, og þá einkum um stýrivaxtastefnu hans og vafasamar tilraunir til að hemja verðbólguna. Skoðun 21. júní 2022 08:01
Gluggað á Framsóknarflokkinn Formaður Framsóknarflokksins 2009-2016 var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Í þingkosningunum 2013 fékk flokkurinn 24,4%. Á þessum tíma var Sigurður Ingi Jóhannsson varaformaður, en til ágreinings kom milli þeirra félaga, og klofnaði flokkurinn. Sigmundur Davíð stofnaði í framhaldi af því Miðflokkinn 2017. Skoðun 4. júní 2022 13:00
Bréf til Svandísar Svavarsdóttur um brotastafsemi, dýraníð og skemmdarverk á ímynd Íslands Við í Jarðarvinum höfum rekið tvö sakamál gegn forráðamönnum Hvals hf, vegna brota þeirra á reglugerðum fyrir matvælaöryggi við verkun hvals og skilyrðum og ákvæðum hvalveiðileyfa, þar sem sekt forráðamanna félagsins hefur sannast. Skoðun 5. apríl 2022 08:00
Þjóðaratkvæði 14. maí 2022! Undirritaður dvaldi lengi erlendis, og fylgdist þá ekki gjörla með umræðunni og gangi mála hér. Skoðun 25. mars 2022 07:30
Frekari hækkun stýrivaxta byggir á hundalógik og er ranglát og siðlaus Skv. síðustu tölum, er verðbólga á Íslandi 5,7%. Þar af stendur húsnæðisliðurinn fyrir 2,0%. 3,7% stafa þannnig mest af erlendum verðhækkunum, sem aftur stafa beint og óbeint af COVID-faraldrinum. Skoðun 9. febrúar 2022 08:15
Ætlar Seðlabanki nú að fara að „tappa blóði af fólki”!? Það er mat undirritaðs, að vinnubrögð Seðlabanka séu á ýmsan hátt gamaldags og slitin, þó undir ungri forystu sé, og, að þar vanti oft heildarsýn - skilning, vilja og getu - til nútímalegrar nálgunar og skapandi, lausna sinnaðra vinnubragða. Skoðun 3. febrúar 2022 10:30
Dýrin og við Það er þannig um margt, að eitthvað sérstakt þarf að gerast, til að menn átti sig á eðli og stöðu mála. Oft þarf eitthvað nýtt og óvenjulegt að koma til, til að menn opni augun fyrir ákveðnum - kannske vondum og krítískum, en mögulega líka góðum og gæfulegum - málum, sem þó hafa blasað við eða mátt blasa við lengi. Skoðun 29. janúar 2022 11:00
Ásakanir Seðlabankastjóra á hendur Fréttablaði vart skotheldar Í gær fór Seðlabankastjóri mikinn á Facebook-síðu sinni, og áskaði hann Fréttablaðið um óvandaðan og óboðlegan fréttaflutning. Skoðun 5. janúar 2022 20:30
Telur Kári Stefánsson ráðherra undirskriftarhandbendi embættismanna? Það, sem frá Kára Stefánssyni kemur inn í umræðu deigluna, er margt nokkuð gott; sæmilega eða vel skynsamlegt, enda maðurinn auðvitað óvitlaus. Skoðun 27. desember 2021 19:00
Áform og yfirlýsingar Ísteka um dýravænt blóðmerahald standast ekki! Framkvæmdastjóri Ísteka birti grein á Vísi nú um helgina, þar sem hann reynir að sannfæra lesendur um, að Ísteka gæti vel að velferð dýranna, og, að blóðmeraiðja fyrirtækisins sé fagleg og dýravæn. Skoðun 21. desember 2021 08:01
Ekkert á Ísteka og MAST að treysta – Annar alvarlegur skuggi á blóðmerahaldi Vegna laga um dýravernd og dýravelferð fer almennt blóðmerahald ekki fram í öðrum evrópskum löndum, enda sæta fylfullar eða mjólkandi hryssur þar víðast sérstakri vernd, vegna þess viðkvæma líkamlega og andlega ástands, sem þær eru í. Skoðun 18. desember 2021 15:01
Magnaður stjórnarsáttmáli í Þýzkalandi. Gildir það hér líka? Sömu helgi í september og við kusum til Alþingis, kusu Þjóðverjar til síns sambandsþings, Bundestag. Í báðum löndum hafa þriggja flokka stjórnir verið myndaðar. Skoðun 10. desember 2021 09:30
Opið bréf til forstjóra MAST, Hrannar Ólínar Jörundsdóttur, vegna blóðmerahalds Sæl og blessuð, Hrönn Ólína. Ég vísa í viðtal við þig á sjónvarpsstöðinni Hringbraut síðastliðinn þriðjudag. Þar sagðir þú meðal annars, að það væri mat ykkar, að hægt væri að framkvæma blóðtöku af fylfullum merum – reka blóðmerahald – án þess, að ógna velferð dýranna. Skoðun 4. desember 2021 18:01
Mannúðlegt og dýravænt blóðmerahald er ekki til! Á dögunum dreifðu dýraverndunarsamtökin AWF, Þýzkalandi, og TSB, Sviss, viðamikilli skýrslu, ásamt myndbandi, um blóðmerahald á Íslandi, en þessi samtök höfðu unnið að rannsókn blóðmerahalds hér frá 2019. Skoðun 26. nóvember 2021 09:32
Sömu frelsisskerðingar allra, vegna COVID, standast illa Um þessar mundir eru stjórnvöld enn einu sinni að skerða frelsi landsmanna og þjarma að ýmsum atvinnurekstri, þar sem þúsundir manna vinna, með atferlis- og samkomutakmörkunum fyrir alla. Skoðun 14. nóvember 2021 17:00
Ráðgjöf um misþyrmingu lífríkis Íslands? Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) hefur mörgum góðum og gegnum mönnum á að skipa, sérfræðingum á sviði náttúru- og vistfræði, en hlutverk hennar er, að fylgjast með þróun íslenzka lífríkisins og leiðbeina stjórnvöldum um vernd þess og viðhald. Skoðun 23. október 2021 18:28
Þegar illska og skepnuskapur manna keyrir úr hófi; nú í Færeyjum Auðvitað eru margir uppteknir af kosningunum, sem fram undan eru, og úir hér og grúir af greinum og málflutningi þeim tengdum. En annað líf heldur líka áfram, og má ekki gleymast. Skoðun 15. september 2021 09:00
Stóreignaskattur er siðlaus og tvöföld heimska! Mér hefur fundizt Samfylkingin vera ágætur flokkur, einkum undir þeirri forustu, sem verið hefur undanfarin ár, en ég sakna nú m.a. fíns drengs, Ágústar Ólafs Ágústssonar, sem reyndar er bæði lögfræðingur og hagfræðingur, þó að það sé ekki málið, heldur hans almennu og miklu kostir, ekki sízt á sviði dýraverndar, þar sem hann var fremstur í flokki alþingismanna. Skoðun 11. september 2021 19:00
Djöfull í mannslíki eða geðsjúklingur; nema hvort tveggja sé Nú um síðustu helgi birti Fréttablaðið frétt af íslenzkum karlmanni á fertugsaldri, sem býr í Mosfellsbæ, en hann sendi út myndband á Instagram 21. ágúst, þar sem hann pyntar lítinn skógarþröst til dauða með fjölmörgum hnífsstungum. Skoðun 31. ágúst 2021 13:30
Flan og firrur Bjarna Benediktssonar á Hringbraut Í síðustu viku mætti Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra, í umræðuþáttinn Pólítík með Páli Magnússon á Hringbraut. Skoðun 28. ágúst 2021 10:01
Hvernig á alþjóðasamfélagið að verja samfélag, sem ekki sýnir minnsta vilja eða getu til að verja sig sjálft? Fyrir nokkrum mánuðum ákvað Biden Bandaríkjaforseti, að draga til baka bandarískt herlið, sem þá hafði verið staðsett í Afganistan í 20 ár, þar sem hann taldi tilgangi hertökunnar og hersetunnar vera náð, og, að Bandaríkin og NATO hefðu lagt heimamönnum, þ.e. ríkisstjórn þeirra og herliði, til nægilegt liðsinni – fjármuni, leiðsögn og þjálfun – til að stand á eigin fótum. Skoðun 17. ágúst 2021 18:01
Tillaga að skattleysi eldri borgara Á undanförnum áratugum, í reynd síðustu eina til tvær aldirnar, hefur farið fram margvísleg réttindabarátta, þar sem hinir ýmsu hópar þjóðfélagsins, sem minna hafa mátt sín, hafa reynt að sækja aukinn rétt, til valda og fjármuna, jafna rétt sinn við þá, sem sátu að meiri rétti fyrir; höfðu forréttindi. Skoðun 17. júlí 2021 20:00
Oftast eru vinsældir af hinu góða, en ekki alltaf Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur síðustu mánuði verið vinsælasti stjórnmálamaður landsins. Fylgi manna við hana, hennar vinsældir, hafa náð til allt að 67% landsmanna. Skoðun 12. júlí 2021 11:01
Frístundargaman utanríkisráðherra og tengd mál Í fyrra haust kom upp COVID-smit á hóteli á Suðurlandi, þar sem ráðherrar höfðu setið á fundi. Þurfti því að skima mannskapinn, en ekki náðist í utanríkisráðherra, en hann var sagður vera í fríi á Austurlandi. Skoðun 4. júní 2021 10:00
Aðstoðarmaður og utanríkisráðherra á rápi; ringluð og villt í afdölum Nýlega skrifaði frambjóðandi til prófkjörs hjá D, ung og fönguleg kona, að sjá, sem jafnframt er aðstoðarmaður utanríkisráðherra, grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni „Aðild að Evrópusambandinu fer gegn hagsmunum Íslands“. Skoðun 31. maí 2021 22:17
Sálfræðiþjónusta: Ég var heppinn að pabbi hafi greinst með krabbamein Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun