

Samkvæmislífið
Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Myndaveisla: Víkingskonur kunna að halda gott partí
Mikil gleði og stemning var á Kvennakvöldi Víkings í Safamýrinni síðastliðið laugardagskvöld. Færri komust að en vildu en uppselt varð á viðburðinn.

Hryllingurinn sveif yfir vötnum hjá fræga fólkinu
Hryllingurinn sveif yfir vötnum á hrekkjavökupartýinu Skuggamessunni á Ölveri um helgina. Metnaðurinn sem lagður var í búninga var mikill og fræga fólkið lét sig ekki vanta.

„Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“
„Það er eitthvað töfrandi við það að leyfa sér að vera eins og barn,“ segir tónlistarkonan, danshöfundurinn og nýsköpunarfræðingurinn Melkorka Sigríður Magnúsdóttir. Hún var að frumsýna dansverkið Hverfa í samstarfi við Íslenska dansflokkinn um helgina á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og stemningin var í hæstu hæðum.

Myndaveisla: Snjórinn féll á bjórþyrsta borgara
Margt var um manninn þegar hinn svokallaði J-dagur var haldinn hátíðlega í gærkvöldi. „Snjórinn fellur“ kallast sá viðburður þegar jólabjórinn kemur til byggða 1. nóvember ár hvert.

Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu
Fullt var út úr dyrum í Eymundsson við Skólavörðustíg í gær þegar stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann hélt þar útgáfufögnuð í tilefni af útgáfu bókar hans Óvæntur ferðafélagi. Um er að ræða minningarbók Eiríks og ferðasögu með kvillann sem hann kennir við Tínu.

Tóm hamingja hjá forsetanum
Gleðin var við völd á föstudagskvöld þegar Gaflaraleikhúsið frumsýndi leikverkið Tóm hamingja. Um er að ræða verk sem leiki er á tveimur sviðum í einu og skipta áhorfendur um sal í hléi.

Gerður í Blush gladdi konur í Köben
Mikil stemning ríkti á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn liðna helgi þegar 120 íslenskar konur komu saman til að heiðra framúrskarandi fyrirmyndir. Viðburðurinn, Seigla og sigrar, var á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku.

Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum
Það var líf og fjör á Kjarvalsstöðum á dögunum á opnun glæsilegrar einkasýningar Hallgríms Helgasonar sem sækir innblástur í ýmis konar usla. Fullt var út úr dyrum og meðal gesta voru Gísli Marteinn, Þorgerður Katrín, Ármann Reynisson og Jón Sæmundur svo eitthvað sé nefnt.

Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér
Lana Björk Kristinsdóttir, eigandi lífsstíls- og íþróttamerkisins Kenzen, bauð sannkölluðum ofurskvísum í notalega samverustund á spa-svæði The Reykjavik Edition, á dögunum í tilefni opnunar pop-up verslunar merkisins á hótelinu.

Skálað fyrir skarti í Silfursmára
Fagurkerar og ofurskvísur mættu í opnun skartgripaverslunarinnar My Letra við Silfursmára á dögnunum. Verslunin er í eigu viðskiptahjónanna Sóleyjar Þorsteinsdóttur og Arnþórs Inga Kristinssonar.

Myndaveisla: Hlaupaveisla í Egilshöll
Forsýning á kvikmyndinni Laugavegurinn fór fram fyrir fullum sal í Egilshöll á dögunum. Í myndinni fylgir Garpur Elísabetarson, leikstjóri myndarinnar, eftir þeim Þorsteini Roy Jóhannssyni og Andreu Kolbeinsdóttur í 55 kílómetra löngu hlaupinu.

Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni
Ofurskvísurnar Aníta Björt og Sigrún Guðný lifa fyrir tískuna og reka nytjaverslunina Mamma Mia Vintage í miðbæ Reykjavíkur. Þær stóðu fyrir tískuteiti á dögunum þar sem skvísur bæjarins mættu í sínu fínasta pússi.

Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng
Forsýning á þáttaröðinni Útilega fór fram fyrir fullum sal áhorfenda í Smárabíói síðastliðið þriðjudagskvöld. Þáttaröðin verður sýnd í Sjónvarpi Símans.

Páll Óskar kveikti í kofanum
Veitingastaðurinn Tapas barinn fagnaði 24 ára afmæli sínu á dögunum þar sem tónlist, sangríur og dansandi senjorítur settu suðrænan svip á viðburðinn. Fjöldi gesta mætti og samfögnuðu tímamótunum.

Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar
Árshátíð Sýnar var haldin með glæsibrag í Laugardalshöll síðastliðið laugardagskvöld. Höllin var glæsilega skreytt í Þjóðhátíðarþema sem skapaði sannkallaða Eyja-stemningu fyrir gesti.

Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós
Raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir fagnaði nýrri fatalínu sinni með heitustu skvísum landsins síðastliðið sunnudagskvöld. Fatalínan er samstarfsverkefni Ástrósar og hönnuðarins Andreu en meðal gesta voru Sunneva Einars, Birgitta Líf, Magnea Björg, Manúela Ósk og Elísabet Gunnars.

Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu
Það var margt um manninn og mikil stemning þegar Lovísa Halldórsdóttir Olesen, skartgripahönnuður og gullsmiður, opnaði nýja verslun By L við Silfursmára liðna helgi.

Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu
Menningarlífið iðar á Baldursgötu 36 þar sem nýtt listrænt rými var að opna. Þar má finna ýmis konar handverk, bókabúð með sérvöldum bókum hvaðan af úr heiminum og myndlistar-og hönnunarstofu. Opnuninni var fagnað með stæl síðastliðinn fimmtudag.

Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands
Það var rífandi stemning í glæsilegri opnun á Listasafni Íslands um helgina í tilefni af 140 ára afmæli safnsins. Kanónur úr listheiminum, stjórnmálafólk og listunnendur létu sig ekki vanta.

Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið
Mikið var um dýrðir þegar Þjóðleikhúsið frumsýndi bráðfyndna útilegufarsann Eltum veðrið síðastliðið föstudagskvöld. Meðal þeirra sem létu sjá sig voru sjálf forsetahjónin.

Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn
Mikil spenna og lófaklapp ríkti á sérstakri forsýningu Eftirmála á Uppi bar í gær. Í þáttunum rifja fyrrum fréttakonurnar, Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði
„Þessi dagur var í alla staði fullkominn. Gullfallegt veðrið gaf tóninn fyrir því sem varð að frábærri afmælisveislu,“ segir þúsundþjalasmiðurinn, handritshöfundurinn, hugmyndasmiðurinn og fyrrverandi útvarpsmaðurinn Jón Gunnar Geirdal sem fagnaði um helgina stórafmæli sínu þegar hann varð fimmtíu ára.

Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið
Ljósmyndasýningin „Upprisa“ sem er unnin af sálfræðingnum Evu Gunnarsdóttur og ljósmyndaranum Richard Shutt opnaði í Núllinu í Bankastræti á föstudag og stendur yfir helgina.

„Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“
Brynhildur Þorbjarnardóttir og Heiðrún Mjöll Jóhannesdóttir eiga einstaka vináttu og hafa báðar brennandi áhuga á víni. Eftir sameiginlega lífsreynslu áttuðu þær sig á því að það var óumflýjanlegt fyrir þær að verða vinkonur og ákváðu þær í kjölfarið að stofna fyrirtæki saman sem sérhæfir sig í vínkynningum. Blaðamaður ræddi við þetta tvíeyki og fékk að heyra nánar frá.

Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn
Húsfyllir og frábær stemning var á frumsýningu framhaldsmyndarinnar Joker: Folie á Deux í Sambíóunum Kringlunni í vikunni.

Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda
Frumsýning á nýrri þáttaröð Svörtu sanda fór fram fyrir fullum sal áhorfenda í Smárabíói í gærkvöldi. Gestir mættu prúðbúnir í svörtum galaklæðnaði og skáluðu fyrir stjörnum kvöldsins.

Allt í banönum á Brút
Bananar og hetjur hafa tekið yfir veggi vinsæla veitingastaðarins Brút en þar opnaði einstök listasýning um síðustu helgi í samstarfi við Gallery Port og David Molesky. Margt var um manninn og fólk gæddi sér meðal annars á banönum meðan það skoðaði bananalistina gaumgæfilega.

Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar
Myndlistarkonan Ynja Blær opnaði sína fyrstu einkasýningu í Listval síðastliðinn föstudag. Margt var um manninn og stórstjarnan Bríet, góð vinkona Ynju, lét sig ekki vanta.

Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins
Það var margt um manninn í Borgarleikhúsinu síðastliðið sunnudagskvöld þegar fyrsta sýning vetrarins var frumsýnd en um er að ræða verkið Sýslumaður Dauðans. Verkið er íslenskur drama-gamanleikur eftir Björn Jón Sigurðsson fráfarandi leikskáld hússins.

Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni
Glæsilegustu konur landsins sameinuðust í Höfuðstöðinni í gærkvöldi þegar húðvörumerkið Neostrata bauð til helgjarinnar veislu. Kvöldið stóð svo sannarlega undir nafni þar sem september sólin skein sínu allra fegursta.