

Samkvæmislífið
Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði
Veitingastaðurinn Sæta svínið fagnaði átta ára afmæli sínu miðvikudaginn 10. apríl þar sem tónlist, glimmer, sirkus og svínslegt stuð setti sterkan svip á viðburðinn. Fjöldi gesta mætti og samfögnuðu tímamótunum.

Galvaskar á Gugguvaktinni
Skemmtistaðurinn AUTO stóð fyrir skvísukvöldi síðastliðinn föstudag undir heitinu Gugguvaktin. Margt var um skvísurnar sem fylltu staðinn og skvísusmellir ómuðu um dansgólfið.

Ragnar dillaði sér á Dillon og nýr ráðherra naut lífsins í Borgartúni
Það er ennþá fáránlega kalt í veðri jafnvel þó það eigi eiginlega að vera komið vor. Jafnvel sumar á næsta leyti. Þó er eilífðar vetur og ennþá snjór í Esjunni. Það er samt eitthvað í loftinu.

Stórstjarnan Bríet fagnaði 25 árum með stæl
Tónlistarkonan og Idol dómarinn Bríet Isis Elfar fagnaði 25 ára afmæli sínu á veitingastaðnum Kaffi Flóru á föstudagskvöldið. Öllu var tjaldað til í veislunni sem var hin glæsilegasta þar sem stórstjörnur, vindlabar og tónlistargleði einkenndi kvöldið.

Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni
Íslensku kvikmyndaverðlaun Eddunnar voru haldin með pomp og prakt í Gufunesi á laugardagskvöld. Kvikmynda-og leiklistabransinn skein sitt skærasta á rauða dreglinum.

Stjörnulífið: „Þarna á sviðinu er æskudraumur að rætast“
Liðin vika var með eindæmum viðburðarík. Edduverðlaunahátíðin, skvísutónleikarnir Mamma þarf að djamma, árshátíðir og afmæli báru þar hæst.

„Doctor Victor kveikti í kofanum“
Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson hélt sína fyrstu tónleika, Í fyrsta skipti, fyrir fullu húsi í Iðnó á föstudagskvöldið. Viðtökurnar fóru fram úr hans björtustu vonum og komust færri að en vildu.

Myndaveisla: Endurnýjuð ríkisstjórn hefur verið mynduð
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar var formlega mynduð í kvöld á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Þá endurstaðfesti Guðni Th. Jóhannesson lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur úr forsætisráðuneytinu.

Fagnaði 29 árum með glæsiteiti á Edition
Ofurskvísan, listakonan og ljósmyndarinn Anna Maggý fagnaði 29 ára afmæli sínu á skemmtistaðnum Sunset á Edition við Reykjavíkurhöfn á dögunum. Öllu var tjaldað til í veislunni sem var hin glæsilegasta en gríðarleg stjörnuorka sveif yfir vötnum.

Borgarstjóri og Vigdís hlógu að Jóni Gnarr og Sveppa
Það var mikið um dýrðir og margt um manninn í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi þegar leikritið And Björk of course var frumsýnt. Verkið er eftir Þorvald Þorsteinsson og hefur slegið í gegn á Akureyri í vetur.

Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó
Goðsagnir úr heimi knattspyrnunnar í bland við þjálfara, leikmenn og bransastjörnur úr auglýsingageiranum sameinuðust í Smárabíó í gær þar sem árleg auglýsing fyrir Bestu-deildirnar var frumsýnd. Góð stemning var á sýningunni líkt og myndirnar bera með sér.

Fögnuðu ekki bara plötunni með Júlí Heiðari heldur lífinu sjálfu
Útgáfupartý Júlí Heiðars Halldórssonar fór fram í Bragganum síðastliðinn föstudag. Margt var um manninn þar sem mannskarinn fagnaði plötunni og lífinu með tónlistarmanninum ástsæla. Hann átti nefnilega afmæli og tilefni til fögnuðar mikið.

„Fór langt fram úr mínum björtustu vonum“
Tónlistarmaðurinn Jóhann Egill var að senda frá sér sína fyrstu sóló plötu sem ber heitið LUCID DREAMING MOMENTS.

Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi
Það var bæði fjölmennt og góðmennt í Bókabúð Forlagsins á dögunum þegar Einar Lövdahl Gunnlaugsson hélt útgáfuhóf í tilefni af útgáfu bókar sinnar Gegnumtrekkur.

Átján ára og stefna langt
Helgi Trausti Stefánsson, Maron Birnir Reynisson og Egill Airi Daníelsson eru á öðru ári í menntaskóla og ætla sér stóra hluti í tónlistarheiminum. Þeir voru að senda frá sér myndband við splunkunýtt lag sem þeir gáfu út í gegnum Tónhyl akademíu en Tryggvi Þór Torfason gerði taktinn.

Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi
Það var margt um manninn, vor í lofti og gleði á hverju andliti í Sjálandi í Garðabæ síðastliðinn fimmtudag þar sem Audi og Arion banki buðu til síðvetrarkokteils.

Súperstjörnur landsins fögnuðu með GDRN
Ofurstjarnan GDRN fagnaði nýrri plötu með pomp og prakt á veitingastaðnum Önnu Jónu í síðastliðinni viku. Platan ber heitið Frá mér til þín og inniheldur átta einlæg og poppskotin lög.

Myndaveisla: Brynja, Bent og Birta á Bryggjunni
Húsfyllir var á veitingastaðnum Bryggjan Brugghús á dögunum þegar argentíski bruggmeistarinn Arturo bauð gestum að smakka tvær nýjar bjórtegundir frá staðnum.

Myndaveisla: Margt um dýrðir á Hlustendaverðlaunum 2024
Hlustendaverðlaunin 2024 voru afhent við hátíðlega athöfn í Gamla bíói í gærkvöldi. Mikið var um dýrðir líkt og myndirnar hér að neðan bera með sér þegar allt helsta tónlistarfólk landsins mætti.

Kátt á hjalla þegar Logi og félagar fögnuðu Ásgeiri
Kátt var á hjalla hjá Loga Bergmanni Eiðsyni og öðrum aðstandendum heimildarmyndar um einn sigursælasta fótboltaþjálfara landsins Ásgeir Elíasson þegar sýning á myndinni fór fram í Sambíóum Kringlunni í gær.

Geir H. Haarde og Friðrik Dór í banastuði
Margt var um manninn þegar heimilistækjaverslunin Eirvík frumsýndi nýjan sýningarsal í verslun sinni á Suðurlandsbraut á dögunum.

Frumsýning á X: Villi Neto mætti með mömmu að endimörkum sólkerfisins
Dulmagnaða og hrollvekjandi spennuleikritið X var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á laugardagskvöld. Þar var ákaflega góðmennt og mættu margir þekktir Íslendingar til að berja verkið augum í fyrsta sinn.

Sætustu skvísur landsins allar á einum stað
Skvísur landsins mættu í verslun íslenska húðvörumerkisins BIOEFFECT á Hafnatorgi síðastliðinn föstudag og skáluðu fyrir nýjum andlitshreinsi fyrritækisins.

Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu
Listunnendur sameinuðust á Kjarvalsstöðum á laugardaginn við opnun á sýningunni Borghildur Óskarsdóttir: Aðgát. Þar eru til sýnis verk eftir listakonuna Borghildi Óskarsdóttur sem er fædd árið 1942.

Fagnaðarfundir í 80 ára afmæli Loftleiða
Margt var um manninn á opnunarhátíð 80 ára afmælissýningu Loftleiða í bíósal Hótel Natura 8. mars síðastliðinn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og ferðamálaráðherra opnaði hátíðina og flutti fræðandi erindi.

Myndaveisla: Spessi frumsýndi Afsakið meðanað égæli
Íslenska heimildamyndin Afsakið meðanað ég æli var frumsýnd í Bíó Paradís að viðstöddum kvikmyndagerðarmönnum og leikstjóra miðvikudagskvöldið 13. mars. Þar létu helstu kanónur úr menningarlífinu sig ekki vanta.

Glæsilegt eftirpartý Laufeyjar á Edition
Tónlistarkonan og Grammy-verðlaunahafinn Laufey Lín Jónsdóttir fagnaði með fjölskyldu og vinum í eftirpartýi á skemmtistaðnum Sunset á lúxushótelinu Edition við Reykjavíkurhöfn á sunnudagskvöld eftir þriggja daga tónleikahald í Eldborgarsal Hörpu.

Myndaveisla: Söfnuðu hátt í milljón fyrir UN Women á Íslandi
Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) stóð fyrir góðgerðaruppboði í Gallerí Fold síðastliðinn föstudag til styrktar UN Women á Íslandi. Dagurinn var alþjóðlegur baráttudagur kvenna og stóð FKA fyrir uppboðinu undir nafninu „Fjárfestum í konum“ sem var einmitt tilefnið þar sem ágóðinn rennur óskiptur til verkefna UN Women á heimsvísu.

Vor í lofti í vorpartíi Icelandair
Vorboðinn ljúfi mætti í Laugardalshöllina síðastliðið laugardagskvöld þegar rúmlega 2000 manns mættu í vorpartí flugfélagsins Icelandair.

Öllu tjaldað til á árshátíð Hafnarfjarðarbæjar
Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar var haldin með pompi og prakt á laugardagskvöld á Ásvöllum. Um 1500 manns mættu í gleðskapinn og komust færri að en vildu. Þema kvöldsins var konunglegt eða Royal og klæddust gestir sínu fínasta pússi.