Gestirnir leiða í hálfleik Heimaliðin Njarðvík og KR hafa ekki náð sér á strik í leikjunum tveimur sem standa yfir í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. ÍR hefur yfir gegn KR í hálfleik 48-37 og Snæfell hefur yfir gegn Njarðvík í Njarðvík 44-37. Körfubolti 29. mars 2008 16:45
Njarðvík - Snæfell í beinni á Stöð 2 Sport Tveir leikir eru á dagskrá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild karla í körfubolta í dag. KR tekur á móti ÍR í DHL höllinni og í Njarðvík mæta heimamenn Snæfelli. Báðir leikir hefjast klukkan 16 og verður síðarnefndi leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. Körfubolti 29. mars 2008 15:03
Valur vann Fsu í framlengingu Valur vann góðan og afar mikilvægan sigur á FSu í einvígi þessara liða um laust sæti í Iceland Express deildinni. Þetta var fyrsti leikur þessara liða en hann endaði 83-89 eftir framlengingu. Körfubolti 28. mars 2008 21:06
Grindavík og Keflavík unnu Úrslitakeppni Iceland Express deildar karla hófst í kvöld með tveimur leikjum en í báðum unnust heimasigrar. Grindavík tók á móti Skallagrími og Keflavík tók á móti Þór Akureyri. Körfubolti 28. mars 2008 20:39
Friðrik Stefánsson spilar ekki í úrslitakeppninni Njarðvíkingar hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku í úrslitakeppninni, en ljóst er að fyrirliðinn Friðrik Stefánsson getur ekki spilað með liðinu í keppninni. Körfubolti 26. mars 2008 13:05
Úrslitakeppnin hefst 28. mars Úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í körfubolta hefst föstudaginn 28. mars næstkomandi og í gærkvöld varð ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferðinni þegar deildarkeppninni lauk. Körfubolti 19. mars 2008 18:51
Justin Shouse valinn bestur Úrvalslið Iceland Express deildar karla fyrir síðustu sjö umferðir deildarkeppninnar var valið nú í hádeginu. Snæfell á besta leikmanninn og besta þjálfarann. Körfubolti 19. mars 2008 12:31
Þórsarar í úrslitakeppnina Lokaumferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta fór fram í kvöld. Þór Akureyri vann góðan sigur á Snæfelli og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 18. mars 2008 21:00
Fjórir leikir í beinni Stefnt er að því að hafa fjóra leiki í lokaumferð Iceland Express deildar karla í beinni lýsingu á heimasíðu KKÍ í kvöld. Körfubolti 18. mars 2008 16:07
Keflavík deildarmeistari Keflavík vann í kvöld sigur á Skallagrími í Borgarnesi, 84-76, og tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Körfubolti 14. mars 2008 21:19
Kannast ekki við að hafa klikkað fyrir utan Þorleifur Ólafsson hjá Grindavík fór gjörsamlega hamförum í gærkvöldi þegar Grindvíkingar lögðu Þórsara á heimavelli í Iceland Express deildinni. Hann skoraði 34 af 36 stigum sínum í síðari hálfleik. Körfubolti 14. mars 2008 11:30
Tindastóll vann Íslandsmeistarana Tindastóll heldur enn í vonina um sæti í úrslitakeppninni eftir tveggja stiga sigur á KR í framlengdum leik, 96-94. Körfubolti 13. mars 2008 21:08
Fjórir leikir í körfunni í kvöld Fjórir leikir eru á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og ljóst að þar verður mikil spenna enda eru þetta fyrstu leikirnir í næstsíðustu umferð deildarinnar. Körfubolti 13. mars 2008 16:07
Snæfell lagði Grindavík Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfibolta í kvöld. Stórleikurinn var í Stykkshólmi þar sem heimamenn í Snæfelli lögðu Grindavík í miklum spennuleik 75-72. Þá unnu Þórsarar auðveldan sigur á Fjölni 106-81 fyrir norðan og eru svo gott sem öruggir í úrslitakeppnina. Körfubolti 7. mars 2008 21:13
Njarðvík burstaði Skallagrím - Hamarsmenn fallnir Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld, en nú er spennan heldur betur farin að magnast enda stutt eftir af deildakeppninni. Lið Hamars úr Hveragerði varð að sætta sig við fall úr deildinni í kvöld eftir tap gegn KR. Körfubolti 6. mars 2008 21:01
Brynjar bjargaði KR -Keflavík tapaði fyrir botnliðinu Brynjar Björnsson forðaði Íslandsmeisturum KR frá kinnroða í kvöld þegar hann skoraði sigurkörfu liðsins í naumum 106-105 sigri á Stjörnunni í Iceland Express deild karla. Keflvíkingar voru ekki jafn heppnir og þurftu að sætta sig við tap gegn botnliði Hamars í Hveragerði 94-88. Körfubolti 29. febrúar 2008 21:28
Jón Arnar ánægður með sína menn ÍR-ingar hafa heldur betur látið til sín taka í Iceland Express deildinni undanfarið og fylgdu eftir góðum sigri á Íslandsmeisturunum með því að leggja Grindvíkinga á útivelli í gærkvöldi. Körfubolti 29. febrúar 2008 15:50
Jonathan Griffin látinn fara frá Grindavík Grindvíkingar hafa ákveðið að láta Bandaríkjamanninn Jonathan Griffin fara frá liðinu og hafa í hans stað samið við landa hans Jamaal Williams sem er kraftframherji. Þessi ráðstöfun Grindvíkinga kemur nokkuð á óvart því Griffin var búinn að leika vel í vetur. Körfubolti 29. febrúar 2008 12:39
Óvænt tap Skallagríms á heimavelli Skallagrímur féll í sjötta sæti Iceland Express deildar karla í kvöld er liðið tapaði mjög óvænt fyrir Þór frá Akureyri á heimavelli. Körfubolti 28. febrúar 2008 21:44
Snæfell bikarmeistari Snæfellingar urðu bikarmeistarar með sigri á Fjölni 109-85 í úrslitaleik í Laugardalshöllinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Snæfell vinnur þennan titil. Körfubolti 24. febrúar 2008 17:41
ÍR skellti meisturunum Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og einni í kvennalfokk. ÍR-ingar unnu góðan sigur á Íslandsmeisturum KR í Seljaskóla 87-83 og Grindvíkingar unnu nauman heimasigur á Hamarsmönnum 89-83. Körfubolti 18. febrúar 2008 21:11
KR með öruggan sigur á Keflavík KR vann dýrmætan sigur á toppliði Keflavíkur í Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld, 80-69. Körfubolti 15. febrúar 2008 19:55
Fannar verður með KR í kvöld - Hlakkar til að mæta Keflvíkingum Fyrirliðinn Fannar Ólafsson verður í leikmannahópi KR í fyrsta skipti á árinu í kvöld þegar Íslandsmeistararnir taka á móti fyrrum félögum hans í Keflavík í Iceland Express deildinni. Hér er um sannkallaðan toppslag að ræða. Körfubolti 15. febrúar 2008 14:32
Óvæntur sigur Stjörnunnar á Njarðvík Stjarnan vann í kvöld átta stiga sigur á Njarðvík, 87-79, í Iceland Express deild karla í körfubolta en fjórir leikir voru á dagskrá í kvöld. Körfubolti 14. febrúar 2008 21:32
Fimmti sigur TCU í röð Helena Sverrisdóttir skoraði níu stig og tók tólf fráköst í sigri TCU á No. 22/22 Wyoming í bandaríska háskólakörfuboltanum í gær, 73-59. Körfubolti 14. febrúar 2008 15:55
Roland farinn frá Stjörnunni Stjörnumenn hafa leyst Bandaríkjamanninn Calvin Roland undan samningi og fengið landa hans Jarrett R. Stephens í hans stað. Körfubolti 14. febrúar 2008 12:33
Mikilvægur sigur Þórs á Stjörnunni Þór vann í dag góðan sigur á Stjörnunni á Akureyri, 89-85, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 42-42. Körfubolti 10. febrúar 2008 19:26
Frábær sigur hjá KR í Njarðvík Íslandsmeistarar KR sýndu mikla seiglu í kvöld þegar þeir lögðu Njarðvíkinga 106-97 í frábærum og sveiflukenndum leik liðanna í Iceland Express deild karla. Körfubolti 7. febrúar 2008 20:50
Tveimur leikjum frestað Tveimur leikjum sem áttu að fara fram í kvöld í Iceland Express-deild karla hefur verið frestað vegna ófærðar. Körfubolti 7. febrúar 2008 14:10
Webb: Verðum hættulegir í úrslitakeppninni Ken Webb var í dag útnefndur besti þjálfari Iceland Express-deildar karla fyrir umferðir 9-15. Hann segir að sínir menn í Skallagrími séu á uppleið. Körfubolti 5. febrúar 2008 16:05