„Búumst við hinu versta en vonum það besta“ Borgarstarfsmenn eru nú á fullu við að tryggja niðurföll og tugum flugferða hefur verið aflýst vegna veðurspár, sem gerir ráð fyrir hvassviðri og asahláku. Gular og appelsínuguglar viðvaranir taka gildi ein af annarri frá hádegi. Innlent 31. janúar 2025 11:46
Lítið sem ekkert flug framundan Rúmlega fimmtíu komum og brottförum á Keflavíkurflugvöll hefur verið aflýst í dag. Þetta kemur fram inn á vef flugvallarins. Innlent 31. janúar 2025 11:00
Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði Næsta lægð nálgast landið í dag og gengur í suðaustanstorm og jafnvel -rok með rigningu og hlýindum, en helst að mestu þurrt á Norður- og Austurlandi. Veður 31. janúar 2025 07:18
„Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir landið allt á morgun. Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að mikil úrkoma og hláka geti valdið vatnavöxtum, krapaflóðum og skriðuhættu, sérstaklega á Suður – og Suðausturlandi og Austfjörðum. Veður 30. janúar 2025 23:28
Hellisheiði lokað vegna fastra bíla Hellisheiðinni var lokað upp úr klukkan sex í kvöld. Það var gert eftir að tveir bílar festust á heiðinni. Að minnsta kosti annar þeirra þverar veginn í Skíðaskálabrekkunni. Innlent 30. janúar 2025 19:18
Missti stjórn á bílnum og rakst utan í tvo Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi í dag, skammt frá brúnni um Víkurveg sem skilur að Grafarvog og Grafarholt. Innlent 30. janúar 2025 15:14
Sextíu flugferðum aflýst Hvassviðri sem gengur yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn á morgun, 31. janúar. Flug til Evrópu í fyrramálið er á áætlun en raskanir eru á flugi til Íslands frá Evrópu eftir hádegið á morgun og einnig flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis. Innlent 30. janúar 2025 14:43
Vegum um Hellisheiði og Þrengsli lokað Búið er að loka vegunum um Hellisheiði og Þrengsli vegna ófærðar. Innlent 30. janúar 2025 14:35
Umferð um brautina gangi hægt Reykjanesbraut hefur verið opnuð aftur eftir um tveggja tíma lokun. Lögreglustjóri segir umferð þó ganga hægt, enda aðstæður erfiðar. Gular viðvaranir eru í gildi víða, en appelsínugular taka gildi á morgun. Innlent 30. janúar 2025 12:11
Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Líkt og greint hefur verið frá eru gular viðvaranir í öllum landshlutum um helgina. Nú er einnig búið að gefa út appelsínugular viðvaranir í þremur landshlutum. Það er á Miðhálendinu, Suðausturlandi og í Breiðafirði. Veður 30. janúar 2025 11:40
Búið að opna Reykjanesbraut á ný Reykjanesbraut hefur verið opnuð á nýjan leik. Loka þurfti brautinni í átt til Reykjavíkur vegna gámabíls sem þveraði veginn. Betra færi er á brautinni en í morgun. Innlent 30. janúar 2025 10:52
Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Færð er farin að spillast á Reykjanesbraut og eru nú umferðartafir vegna þessa. Það sem af er morgni hafa tvö ökutæki runnið út af veginum, en ekki hafa þó orðið meiðsl á fólki. Innlent 30. janúar 2025 07:46
Gengur í storm með slyddu eða snjókomu Það mun ganga í suðaustanhvassviðri eða -storm með slyddu eða snjókomu með morgninum, en rigningu við ströndina og hlýnar nokkuð. Veður 30. janúar 2025 07:08
Vegfarendur horfi upp og húseigendur fjarlægi grýlukertin Þungar snjóhengjur og grýlukerti sem hanga víða fram af húsþökum geta valdið miklu tjóni, lendi þær á fólki eða bílum. Sérfræðingur í forvörnum segir slík slys verða á hverju ári. Veðurspáin næstu daga lofar ekki góðu. Innlent 29. janúar 2025 21:01
„Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, hefur áhyggjur af þeim mikla snjó sem hefur safnast upp í aðdraganda óveðursins sem er framundan. Veður 29. janúar 2025 17:30
Gefa út gula viðvörun fyrir landið allt Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið vegna þess sunnanstorms, úrhellisrigningar og asahláku sem spáð er um helgina. Veður 29. janúar 2025 11:41
Gult í kortunum Gular viðvaranir munu taka gildi klukkan tíu í fyrramálið í þremur landshlutum, klukkutíma síðar mun fjórða viðvörunin taka gildi. Viðvaranirnar eru vegna suðaustanhríðarveðurs. Innlent 29. janúar 2025 10:22
Fallegt vetrarveður en vetrarkyrrðin úti á morgun Útlit er fyrir hæga breytilega átt og að víðast hvar verði léttskýjað og því fallegt vetrarveður í vændum. Veður 29. janúar 2025 07:07
Eldingar á Íslandi Í frétt á Vísi í síðastliðinni viku var sagt frá eldingu sem laust niður í íbúðarhús í Dyrhólahverfi rétt við Vík í Mýrdal. Íbúar hússins urðu fyrir því tjóni að rafmagnstaflan í húsinu eyðilagðist og má segja að hún hafi sprungið sökum eldingarinnar. Leiða má að því líkum að engar eldingavarnir hafi verið til staðar í húsinu, en það hefur verið lenskan hérlendis. Tíðni eldinga á Íslandi er frekar lág miðað við önnur lönd en hættan er þó til staðar. Skoðun 28. janúar 2025 16:31
Líkur á eldgosi fara vaxandi Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Atburðarrásin heldur því áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos. Líkanreikningar sýna að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem kom upp í síðasta eldgosi. Innlent 28. janúar 2025 16:21
Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu Reykjavíkur segir snjómokstur hafa gengið vel í nótt og í morgun. Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt og hefur verið kallaður út aukamannskapur til að ryðja snjónum burt. Veður 28. janúar 2025 08:41
Víða mikil snjókoma og órólegar umhleypingar í kortunum Miðja kaldrar smálægðar er nú skammt suður af Reykjanesi og fer lægðin austur og síðar norðaustur í dag og snýr umhverfis sig bökkum með snjókomu eða éljum sem gera víða vart við sig á landinu. Veður 28. janúar 2025 07:07
Vegum lokað vegna snjóflóðahættu Veginum um Raknadalshlíð í Patreksfirði og Kleifaheiði var lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu. Snjóflóð hafa fallið á svæðinu og er talin hætta á fleiri flóðum næstu klukkustundir. Innlent 27. janúar 2025 20:32
Snjómagnið verulegt en ekki óeðlilegt miðað við árstíma Haraldur Ólafsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir snjómagnið sem féll um helgina líklega það mesta sem hefur fallið í vetur en ekki óeðlilegt fyrir þennan árstíma. Veður 27. janúar 2025 10:55
Snjókoma í flestum landshlutum Að sögn Veðurstofunnar er í dag útlit fyrir norðvestlæga eða breytilega átt og snjókomu eða él. Búast má við snjókomu í flestum landshlutum. Veður 26. janúar 2025 08:23
Einn látinn og nokkur hundruð þúsund heimili án rafmagns Maður er látinn og yfir 725 þúsund heimili og aðrar húseignir voru án rafmagns á Írlandi eftir að óveðrið Eowyn reið yfir Írland og Bretlandseyjar í gær. Erlent 25. janúar 2025 09:52
Útlit fyrir rólegt helgarveður Um helgina er útlit fyrir fremur rólegt veður, samkvæmt Veðurstofunni. Í dag verður norðvestlæg átt, víða gola en strekkingur syðst. Þá verður snjókoma norðantil á landinu, en það mun smám saman draga úr ofankomu sunnanlands. Þá er víða vægt frost. Veður 25. janúar 2025 08:36
Snjóar sunnan- og vestanlands í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, en norðaustan átta til þrettán metrar á austanverðu landinu. Veður 24. janúar 2025 07:12
Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Tjón varð á húsi í Dyrhólahverfi síðdegis í dag vegna eldinga. Nokkrar eldingar mældust á svæðinu. Innlent 23. janúar 2025 22:24
Gular viðvaranir vegna snjókomu á sunnanverðu landinu Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna talsverðrar eða mikillar snjókomu á Suður- og Suðausturlandi. Viðvaranirnar taka gildi klukkan 14 á Suðurlandi og klukkan 15 á Suðausturlandi og verða í gildi fram á nótt. Veður 23. janúar 2025 12:57